Dagrenning - 01.02.1952, Blaðsíða 18

Dagrenning - 01.02.1952, Blaðsíða 18
stórt hefði til þessa verið stigið í friðar- átt. SAMVINNA BRETA OG BANDARÍKJA- MANNA. Samvinnan við Breta er viðkvæmt ágreiningsmál í utanríkispólitík bandarísku- flokkanna. Bandaríska þjóðin er sjálf allmjög skipt um afstöðunana til Breta. Mikill rneiri hluti hinna almennu borgara vill náið sam- starf við Bretland og bresku samveldislöndin. Hins vegar eru mjög sterk öfl að verki, sem ekki vilja þetta samstarf og er það einkum fjármálaauðvaldið, (finanskapitalisminn), sem þar hefir forustuna. Baráttan milli ster- lingssvæðisins og dollarasvæðisins er svo al- þekkt, að óþarft er að rekja þann ágreining nánar hér. Demokrataflokkurinn hefir alla tíð litið stefnu Breta í nýlendumálum óhýru auga og verið henni andvígur. Cordell Hull lét eitt sinn svo um rnælt er hann var utanríkisráð- herra, „að með tilliti til framtíðar nýlendu- veldis Breta hefðu Bandaríkin ákveðnar hug- myndir“, og „í því efni greinir okkur á við Breta“, sagði ráðherrann. Þessi afstaða Dcmokrataflokksins hefir oft leitt til þess, að Bandarikin liafa beint og óbeint stutt kröfur nýlenduþjóða — þ. á. m. Indverja, um sjálfstæði, og tvístaða þeirra nú, bæði í Persíu og Egyptalandi, er greini- leg.Þessi afstaða hefir átt mjög mikinn þátt í því að spilla vináttu og samstaifi þessara miklu frændþjóða. Republikanar virðast aftur á móti ekki þessarar skoðunar. Þeir virðast telja vafasamt að styðja beri allar „frelsislircvfingar" ný- lenduþjóða, því ýmsar þeirra eru greinilega „gerfi-frelsishreyfingar“, sem kommúnistar og hjálparflokkar þeirra búa til þar sem þarf í það og það skiptið, til stuðnings heimsveldis- stefnu Sovietríkjanna. Svo er þetta t. d. hvað Suður-Afríku snertir, og er það mikið og við- kvæmt mál fyrir Breta og samveldislöndin. Ef Republikanar sigra í kosningunum er líklegt að í þessu efni yrði nokkur breyting á stefnu Bandaríkjanna. Sennilegt er að Republikönum gengi betur að sernja við Breta en Demokrötum liefir gengið og sigur Republikana mundi verða til að sameina betur en verið hefir hinar engil- saxnesku þjóðir. í bók sinni „The Foregn Policy for Ame- ricans“ hefir Taft öldungadeildarþingmaður gert glögga grein fyrir utanríkisstefnu sinni og þótt flokkur hans hafi enn ekki samþvkkt þá stefnu sem sína, er ekki að efa, að hann markar stefnuna mjög nálægt því, sem hún verður. ATKVÆÐAVEIÐAR. Vegna hinnar hörðu baráttu heimafyrir má búast við því, að Bandaríkin láti minna til sín taka í alþjóðamálum á þessu ári en þau hafa gert að undan förnu. Atkvæðaveið- arnar verða að sjálfsögðu meginviðfangs- efni flokkanna, og nú virðist svo sem Demo- kratar treysti ekki eins á fylgi Zionista eins og í síðustu kosningum og mun valda því sú vissa, að Eisenhower er vel séður af Zionistum Bandaríkjanna. Hins vegar virðist Truman forseti hafa hug á því að fá katolsku kirkjuna í Bandaríkjunum til fylgis við sig. Til þess benda m. a. tilraunir hans til að skipa sendiherra í Páfagarði. í bili er þó hætt við þá fyrirætlan, enda vafa- samt að það mæltist vel fyrir hjá öðrum trúarsamtökum i Bandaríkjunum. Þessi til- raun forsetans er þó athvglisverð því hún sýnir, að katólska kirkjan er í Bandaríkjun- um eins og annars staðar, pólitísk stofnun, — ekki ósvipuð Zionistahreyfingunni — sem heimtar allt vald yfir hugsanalífi áhangenda sinna og getur verzlað með þá jafnvel í kosn- ingum. 12 DAGRENN I NG

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.