Dagrenning - 01.02.1952, Blaðsíða 17

Dagrenning - 01.02.1952, Blaðsíða 17
þráfaldlega lýst því yfir, að hann telji það hlutverk Bandaríkjanna að varðveita friðinn hvað sem það kostar. Þessi stefna hefir liaft í för með sér sífelklar tilslakanir og undan- látssemi við einræðisstefnu Rússa, sem not- ar öll ráð til að þrengja sér í gegn og þenja veldi Rússa út í allar áttir. Þessi „friðar- stefna“ hefir kostað allar þjóðir Austur- Evrópu frelsi þeirra, s\'0 og Kína og fleiri Asíulönd. Republikanar eru andvígir þessari „friðar- stefnu“ og telja að Bandaríkin eigi að nota yfirburði sína til þess að frelsa þær þjóðir undan rússneskri yfirdrottnun, sem „friðar- stcfnan“ hefir ofurselt einræðinu. Republik- anar telja að þó þetta verði gert þori Rússar ekki að leggja til hcimssRrjaldar vegna yfir- hurða Bandaríkjanna hæði i lofti og á sjó. 2. Sameinðuðu þjóðirnar eru annað ágreiningsefni flokkanna. Truman og flokk- ur hans vill ekki kasta burt allri von um það að Sameinuðu þjóðirnar geti orðið einskonar „yfirríki" í heiminum, og leitt blessun friðar og velmegunar yfir mannkvnið. Republikanar telja þetta hinsvegar alveg vonlaust. Þeir vilja að vísu ekki leggja stofn- unina niður nú þegar, heldur lofa henni að starfa eitthvað enn, brevttri eða óbreyttri, en þeir telja að framtíðarskipulagið muni verða samtök þjóðahópa, sem standa á líku menningar og þroskastigi, og aðrar þjóðir geti svo gerst aðilar að þeim samtökum er þær finna sig til þess færar. Slík hópsamtök sem Republikanar vilja styðja með ráði og dáð eru t. d. Atlantshafsbandalagið, og banda- lag Ástralíu, Formósu og Japan í Asíu. 3. Fjárhagsstuðningur við aðrar þjóðir á að dórni Republikana aðallega að eiga sér stað við þær þjóðir, sem verða meðlimir í þessunr hópasamtökum, og þeir vilja hafa þann stuðning svo nrikinn, að verulega nruni unr lrann, en lrætta fjáraustri til þjóða, sem eru fjandsamlegar stefnu Bandaríkjanna og styðja lrina rússnesku einræðisstefnu beint eða óbeint. Demokratar segjast raunar vilja þetta líka, en hafa þó ekki bundið franrlög Bandaríkj- anna og fjárhagshjálp við ákveðin hópsanrtök þjóða, heldur eins og Republikanar orða það „ausið henni út til verðugra og óverðugra“. ASÍUPÓLITÍK BANDARÍKJANNA. Asíu pólitík Bandaríkjanna er miklu nreiri þáttur í utanríkisnrálunr þeirra en Evrópuþjóðimar alnrennt gera sér grein fyrir, því þeinr megin á hnettinum geta nú Banda- ríkin ekki treyst á neina bandanrenn eða samherja nenra Ástralíu, síðan Kína „innlinr- aðist undir konrnrúnisnrann“. Varnir Banda- ríkjanna á Kyrrahafi eru því eitt þvðingar- nresta nrál þcirra. Unr Asíupólitíkina er ágreiningurinn nrest- ur lrvað Kína snertir. Denrokratar virðast trúa því að hægt sé „að reka fleyg“ nrilli Rússa og Kínverja og vinna Kínverja til fylgis við sig á svipaðan hátt og t. d. Jugóslovia er nú talin „vinveitt“ Bandaríkjunum: Republikanar telja þetta lrinn mesta bama- skap og benda á margt nráli sínu til stuðnings. Þeir telja, að Bandaríkin cigi að styðja með vopnunr og fé — og jafnvel herliði ef nreð þarf — innrás Sjang Kaisjeks í Kína, og beita herjum Sanreinuðu þjóðanna frá Kóreu og herjunr Breta og Frakka frá Indo-Kína gegn konrnrúnistastjórninni í Peking og brjóta þannig niður vald konrmúnista í Kína. Republikanar líta svo á að Rússar mundu ekki leggja til heimssh'rjaldar þó þetta yrði gert, ef Bandaríkin þvrftu ekki að binda í þessunr í hemaðaraðgerðunr nema taknrark- aðan herstyrk. Takist hins vegar að sigra í Kína á þennan hátt væri það svo stórkost- legur vinningur í þá átt að tryggja raunveru- legan frið í heinrinum, að ekkert spor jafn DAGRENNING H

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.