Dagrenning - 01.02.1952, Qupperneq 19
Ekki virðist svo sem ráðamenn Bandaríkj-
anna geri sér grein fyrir þeirri svikamyllu,
sem nú starfar í landi þeirra öfluglegar en í
nokkru öðru landi. Hér er átt við sambandið
milli alþjóðaauðvaldsins (fínanskapitalism-
ans) og kommúnismans, en nú Hrðist svo,
sem þessi tvíhöfðaða tortímingarstefna leiki
svipaðan leik með Bandaríkin og hún lék
með Þýzkaland á árunum h’rir síðustu heims-
styrjöld. Verður þetta mikilvæga atriði rætt
nánar í næstu heftum.
ARFTAKI HINS „HEILAGA“
RÓMARÍKIS.
Útþenslustefnu Sovietríkjanna mun gæta
mjög á árinu 1952 í Afríku og Suðvestur og
Suðaustur-Asíu, og ef til vill einnig í Indlandi.
Allir vita að það eru Sovietríkin sem standa
að baki persnesku stjórninni í olíudeilunni og
svo er og í Súesdeilunni.
í Pravda, blaði rússnesku stjórnarinnar,
segir að „egvpska þjóðin beini nú vonar aug-
um til Sovietríkjanna, til Moskvu og til
Stalins. Þjóðin veit,“ segir blaðið, „að land
vort hefir óeigingjama og heiðarlega samúð
með egypsku þjóðinni.“ Óeirðimar á strönd
Norður-Afríku eru allar studdar af kommún-
istum og blásið í glæðumar af nasistum og
kommúnistiskum áróðursmönnum.
Stjórnmálastefna Sovietríkjanna er ákveðin
fvrirfram og skipulögð á mjög lævísan hátt.
Hún stefnir að algjörum heimsyfirráðum, að
vísu á alllöngum tíma og í ákveðnum áföng-
um, til þess að blekkja þær þjóðir, sem
hneppa á í þrældómsfjötrana. Sovietríkin eru
arftaki „Hins heilaga rómverska ríkis“, og
katólsku kirkjunnar, og starfa með mjög lík-
um aðferðum og þá voru notaðar.
Enginn hefir lýst eðli þeirrar stefnu bet-
ur en Marteinn Luther, í sálmi sínum: Vor
Guð er borg á bjargi traust“, þar sem segir:
„Nú geyst — því gramur er —
hinn gamli óvin fer,
hans vald er vonsku nægð,
hans vopn er grimmd og slægð.“
Þetta er lýsing Lúthers á katolsku kirkj-
unni, sem hann taldi vera ríki Satans hér
á jörð og forustulið hennar taldi hann vera
innblásið djöfullegum vísdómi. Nákvæm-
lega hið sama á í dag við um Sovietríkin. Hin
vísindalega skipulagða undirokun milljón-
anna, sem byggja Sovietríkin er yfirskilvitlegs
eðlis. Það vit og sú speki, sem þar er að verki,
er innblásið af Satan sjálfum. „Hans vopn er
grimmd og slægð“ enn í dag eins og á dögurn
Lúthers. Þetta ættu menn sifellt að hafa í
huga. En í stað þess að minnast þessa jafnan,
og gæta þess vel, að þegar „sá gamli“ sýnir
á sér samkomulagssnið, þá er það til þess að
beita enn meiri slægð en nokkru sinni fvrr.
En alla jafna er það svo að það er eins og
tákn hafi orðið á himni, ef fulltrúar Soviet-
ríkjanna láta skína í einhverja tillátsemi.
Fulltrúar og stjórnendur hinna frjálsu þjóða
verða þá yfir sig glaðir og halda að nú hafi
höggonnurinn loksins látið taka úr sér eitur-
tönnina. Kóreubrosið ætti nú að hafa sann-
fært frjálsar þjóðir um einlægni Sovietríkj-
anna í alþjóðamálum.
VÍSINDALEGA SKIPULÖGÐ BLEKK-
INGASTARFSEMI.
Með hinni vísindalega skipulögðu blekk-
ingastarfsemi sinni á sviði alþjóðamála hafa
Sovíetríkin nú komið ár sinni svo vel fvrir
borð, að engar líkur eru til þess, frá mann-
legum sjónarhóli séð, að komið verði í veg
fyrir algjöra valdatöku þeirra um allan heim.
Kerfið, sem þeir starfa eftir, er svo meist-
aralega útbúið, að allur þorri þeirra manna,
sem eru beint í þjónustu þeirra, hafa enga
DAGRENNING 13