Dagrenning - 01.02.1952, Qupperneq 33
DR. J. A. LOVELL:
Synciin, sem ekki fyrírgefst
í anieriska tímaritinu „Kingdom Digest", október-
heftinu 195r, birtist grein, sem á ensku nefnist
„The Unpardonable Sin“. Greinin er eftir ritstjór-
ann, Dr. J. A. Lovell, sem Dagrenning hefir áður
k\'nnt lesendum sínum og birt greinar eftir.
Þessi grein, sem ég hefi nefnt i þýðingunni. Synd-
in, sem ekki fvrirgefst? er að mörgu leyti at-
hyglisverð og sérstæð og óvenjulegt að prestar eða
aðrir prédikarar taki þetta efni til svo alþýðlegrar
meðferðar, sem hér er gert.
Möfundurinn, sem er doktor í guðfræði og hefir
verið prestur og prédikari í meira en tuttugu ár,
trúir á Guð og heldur að nokkurt mark sé takandi
á orðum Krists, sem gevmst hafa í Nýja testament-
inu. Rétt þvkir að taka þetta fram því nútínra guð-
fræði dregur flest í efa, sem þar cr sagt, nema þess sé
einnig getið hjá einhverjum heiðnum rithöfundum.
Höfundurinn er ennfremur þeirrar skoðunar, sem
mjög er fátitt meðal prestlærðra manna nú á dög-
um, að nokkurt tillit beri að taka til þess, þeg-
ar orð Krists eru gagnrýnd, við hverja hann er að
tala i það og það skitið, og skýra orð hans og
gjörðir með hliðsjón af því. Sérstaklega telur höf.
að menn verði að gera sér fulla grein fvrir baráttu
þeirri, sem Kristur háði við vfirstéttir samtiðar
sinnar, prestana, fræðimennina og öldungana og
merkileg er í því sambandi skýring höf. á hinum
einu ummælum Krists um synd, sem ekki verður
f)TÍrgefin.
Rétt þykir að benda lesendum á, að með umrnæl-
unum „hin babylonska klerkastétt" er átt \nð
klerkastétt nútímans, en ekki einstaka menn stétt-
ar þessarar, þvi á öllum tímum fyrirfinnast kristnir
menn innan klerkastéttarinnar eins og innan allra
annara þjóðfélagsstétta. Það er hinn mesti misskiln-
ingur að kirkjan sé stofnun, sem starfi samkvæmt
anda og aðferðum Krists, né hafi nokkru sinni gert
það. Kirkjan útrýmdi frumkristninni, sem komin var
frá Kristi og postulum hans, og er enn og hefir alla
tíð verið veraldleg stofnun og hennar riki „verið af
þessuin heimi“ — þ. e. hún hefir verið drottnandi
vald ák\eðins timabils i lifi mannkynsins, og það
thnabil er nú að kveðja og með því hverfur kirkjan
og vald það, sem hún hefir haft i andlegum og ver-
aldlegum efnum.
Þessu athyglisverða efni verða gerð betri skil bráð-
lega í Dagrenningu, en rétt þykir að vekja athygli
á þessum þýðingarmiklu atriðum áður en inenn lesa
greinina, því auðvitað hefir oft verið um þau fjallað
áður i Kingdom Digest þótt lítt eða ekki hafi verið
á þau drepið í Dagrennignu. Það þarf naumast að
taka það fram, að þótt höf. nefni í grein sinni ýmsar
hinna grófari synda, sem menn gera sig oftlega seka
um, og haldi því fram, að þær fáist fyrirgcfnar ef
sönn iðrun á sér stað og hugarfarsbreyting \erður
augljós sem tákn fyrirgefningarinnar, að hver inað-
ur hlýtur réttlátan dóm — réttláta hegningu fyrir
öll sín afbrot, þótt sálarheill lians glatist ekki að
eilífu, og því eru syndir þessar Guði andstyggilcgar
þótt þær fáist h’rirgefnar, eins og glæpur er andstyggi-
legur að dómi þjóðfélagsins, þótt hann fvrirgefist að
fullnægðri refsingu.
Sökum þess hve einarðlega og sérstætt er á efni
þessu tekið af Dr. Lovell í þessari grein hans, þótti
rirér rétt að fá hana þýdda og birta hana i Dag-
renningu. J. G.
Áhrif hinnar babylonsku klerkastéttar og
kenninga hennar, senr svo lítt eru í samræmi
við Ritninguna, hafa verið svo rík og orkað
svo lengi á hugi vora, að það er næstum
ógemingur að fá fólk til að trúa hinum ein-
földu og skýru kenningum Biblíunnar. Erfi-
kenningar þessarar klerkastéttar liafa gert
þvílíkan rugling úr kenningum Biblíunnar,
að oft er haldið, að þær og kenningar Bibí-
unnar séu eitt og hið sama, báðar jafn inn-
blásnar af anda Guðs. Þetta er sorglegt og
ógiftusamlegt. Þegar einhver reynir að greina
DAGRENNING 27