Dagrenning - 01.02.1952, Side 38
gert yður seka urn hræðilega synd, guðlast,
ekki gegn mér, heldur gegn hinum heilaga í
ísrael, Heilögum Anda. Ef þér hefðuð talað
það eingöngu gegn mér, en ekki gegn And-
.anum, sem gaf mér vald til að gera þetta
kraftaverk, hefði það verið fyrirgefið nú, en
þar sem þér hafið talað gegn Heilögum Anda,
mun sú synd ekki verða yður fyrirgefin,
hvorki í þessum heimi (þ. e. því tímabili, sem
þá var) né þeim komanda“ (þ. e. því tíma-
bili, sem kemur næst á eftir).
Drottinn sagði þeim blátt áfram, að í þeim
.„heimi“ þ. e. því tímabili, — sem endaði með
krossfestingu hans, og því næsta þar á eftir,
þ. e. kirkjutímabilinu, — yrði ekki um neina
fjrirgefningu að ræða fyrir þennan hóp
manna í heild. Þetta skýrir og hvers vegna
hjörtu þessara manna eru svona hörð, hlevpi-
dómarnir svo gífurlegir, og frelsunin svo
sjaldgæf rneðal þeirra. Og þó gefur hann
greinilega í skyn, að þegar þessi sérstöku
tímabil séu runnin sitt skeið, muni á þeirri
öld, sem þá hefst, — Guðsríkisöldinni —
verða von slíkrar fyrirgefningar einnig fyrir
þennan hóp manna. Þess vegna væntum vér
þess, þegar næsta tímabil, Guðsríkisöldin,
rennur upp, að sjá hjörtu rnargra þessara
manna bráðna, hleypidóma þeirra hverfa
eins og dögg fyrir sólu, og þar af leiðandi
stefnubreytingu hjá fjölda þeirra, er þeir öðl-
ast fulla sannfæringarvissu. Ef vér trúum
því ekki, að Drottinn muni að lokum ná til
þeirra, þá afneitum vér einni af höfuðkenn-
ingum Ritningarinnar — friðþægingarkenn-
ingunni. — Vér hljótum að trúa því, að það
sé á valdi Drottins að hrósa sigri yfir öllum
að lokum, annars játum vér, að Satan sé
Guði máttugri. Ég þjóna sigursælum, mátt-
ugum Guði, sem að lokum mun vinna al-
geran sigur.
(G. M. Þýddi).
Adam Rudherford hlýtur tvær doktorsnafnbætur
í Bandaríkjunum
Svo sem getið hefir verið í Dagrenningu
áður dvaldi Adam Ruderford svo að kalla
allt árið 1951 í Bandaríkjunum, ferðaðist þar
um og flutti erindi um pýramídafræði og
önnur áhugamál sín. Þar á meðal dvaldist
hann við ýmsa háskóla í Bandaríkjunum og
þótti svo mjög til um þekkingu hans og lær-
dóm í þessurn efnum að honurn hlotnuðust
í förinni tvær doktorsnafnbætur, önnur í
Ohio en hin í Cahfomiu. í bréfi til ritstjóra
Dagrenningar segir um þetta:
„You will be interestet to know that
while in America I had the honour of
having two Doctorate Degrees conferred
upon me —
Doctor of Divinity in Ohoi and Doctor
of Theolegy in California."
Dagrenning óskar hinum mikilhæfa fræði-
manni og ágæta íslandsvini til hamingju með
þann verðskuldaða heiður, sem honum með
þessu hefir hlotnazt. Þessi viðurkenning sýn-
ir ljóslega að Bandaríkjamenn eru opnari
fyrir nýjum hugmyndum og sannindum, en
„hinar gömlu þjóðir" Evrópu, og fúsari til
viðurkenningar á því sem nýungar meiga
teljast.
32 DAGRENNING