Dagrenning - 01.02.1952, Page 39
JÓNAS GUÐMUNDSSON:
Hafa Rússar stórkostlegar neðanjarSar-
herstöSvar á SvalbarSa?
í aprílmánuði 1950, eða fyrir tæpum tveim-
ur árum, birtist grein í Dagrenningu undir
fyrirsögninni: „Hemema Rússar ísland frá
Spitzbergen?“ Tilefni greinarinnar voru um-
mæli úr þýzku blaði, sem ritinu hafði borist.
Síðan Norðmenn gengu í Atlantshafs-
bandalagið hefir rússneska stjómin við og við
verið að bera fram ýmsar ásakanir á hendur
þeim út af Spitsbergen og eru Norðmenn þá,
m. a. sakaðir um að verið sé að koma upp her-
stöðvum á eyjum þessum í þeim tilgangi
að hefja þaðan árásir á Sóvietríkin.
Spitzbergen, eða Svalbarði eins og evjar
þessar eru stundum nefndar, liggja í Norður-
íshafinu nokkumveginn miðja vega milli
Grænlands og Síberíu og fast við rönd ís-
breiðunnar sem hylur heimskautið. Aðal-
eyjamar em tvær en auk þeirra margar smá-
eyjar.
Eftir heimstyrjöldina 1914—1918 var um-
ráðaréttur Norðmanna yfir eyjum þessum
viðurkenndur, en þó með því skilyrði, að
nokkrar tilteknar þjóðir mættu vinna þar
málma og kol og stunda þaðan veiðiskap,
ef þær tilkynntu Norðmönnum áður en til-
tekinn tími væri liðinn, að þær óskuðu að
hagnýta sér þessi réttindi.
Rússar em eina þjóðin, sem liefir hagnýtt
sér þessi ákvæði samningsins frá 1920 um
Spitzbergen. Er þar því einskonar h'íbýli.
Norðmenn hafa þar að lögum húsbóndarétt
og bera ábyrgð á eyjunum gagnvart öðrum
þjóðum, en Rússar reka þar a. m. k. að nafn-
inu til allverulegan námugröft.
Rússar hafa livað eftir annað farið fram á
það við Norðmenn, að þeir víggirtu eyj-
arnar í félagi eða kæmu þar upp sameigin-
legum vömum.
Því tilboði hafa Norðmenn ávallt hafnað
enda er samningurinn frá 1920 skilinn svo,
að öllunr sé óheimilt að víggirða eyjamarr
eða setja þar upp hernaðarbækistöðvar.
Norðmenn reka nokkum námugröft á evj-
unum, einkum kolanám, auk þess sem þeir
reka þar veðurathuganastöð og ýmsar vís-
indalegar athuganir í sambandi við veðurfarr
strauma, dýralíf á heimskautssvæðinu o. fl.
Rússar hafa á Spitzbergen ákveðið svæði, þar
sem námur þær eru, sem þeir hagnýta, og í
sambandi við þær að sjálfsögðu höfn eða
hafnir og hafnarmannvirki, en ekki hafa
Norðmenn sérstaklega eftirlit með starfsemi
þeirra þar, enda ekki gert ráð fvrir því í samn-
ingnum frá 1920, þar sem það er með öllu
bannað að koma upp herstöðvum þar.
Allmargt manna, bæði rússneskra og
norskra, dvelur á Spitzbergen.
Eftir að Atlantshafsbandalagið var stofn-
að og Norðmenn gerðust virkir aðilar þess,
hafa Rússar látið í það skína að Norðmenn
muni hafa í hyggju að koma upp hernaðar-
bækistöðvum á Spitzbergen og muni þeim
vígbúnaði, eins og öðrum aðgerðum Atlants-
DAGRENN I NG 55