Dagrenning - 01.02.1952, Síða 45
Hin nýja bók Dr. Adam Rutherfords
öllum þeim, sem lesa Dagrenningu, er það kunnugt, að Dr. Adam
Rutherford hefir á undanförnum árum ritað liverja bókina annari merki-
legri um spámælingar Pýramídans mikla og sýnt fram á hið undursamlega
samræmi, sem er milli spádóma Biblíunnar og spádóma Pýramídans mikla
eins og menn skilja þær nú.
í bókaflokki, sem nefndur er „The Great Pyramid Series“ hefir Rut-
herford nú gefið út þrjár bækur um þessi efni. Hina fyrstu þeirra, „Boð-
skapur Pýramidans mikla“, gaf hann út 19U8 og var hún þýdd á íslenzku
og út gefin 1945. Önnur bókin nefnist „Ný opinberun Pýramidans mikla“.
Hún kom út í London 1945 og var birt í heild í 4■ hefti Dagrenningar 1946.
Nú er þriðja bókin komin út og nefnist hún „Harmagedon“ — Orustan á
hinum mikla degi degi Drottins allsherjar 1955—1956 opinberuð í Pýra-
midanum mikla (Steinbiblíunni).
Nú hefir verið hafist handa um að þýða þók þessa á íslenzku og mun
hún koma út í Dagrenningu á þessu ári og byrjar í þessu hefti. Þýðinguna
gerir Víglundur Möller fulltrúi, en hann þýddi ásamt Kristmundi Þorleifs-
syni báðar hinar fyrri bækur, sem nefndar eru, og er því vel fyrir þýð-
ingunni séð. Þegar bókin hefir öll birzt í Dagrenningu mun hún verða gefin
út í sérstöku hefti og seld lágu verði.
Fyrir hinni nýju bók sinni hefir höf ritað eftirfarandi formála:
„Margir velta fyrir sér þeirri spurningu, hver endalokin verði á óöld
þeirri, sem nú gengur yfir heiminn og hver tilgangur hinnar guðlegu for-
sjónar sé með því, að leyfa þetta ástand. Ef við ætlum aðeins að styðjast
við mannlega visku og dómgreind, í leitinni að svarinu, væri vonlaust að
finna hið rétta, því hvorttveggja er „að það er mannlegt að skjátlast“ og
Drottinn hefir sjálfur sagt: „Eins og himinninn er hærri er jörðin, þann-
ig eru mínir vegir hærri yðar vegum og mínar hugsanir yðrum hugsun-
um.“ Eina von okkar til þess að öðlast nokkra örugga vitneskju um fram-
tíðina er því sú, að Guði þóknist að opinbera okkur hana.
BÓKAFLOKKNJJM UM PÝRAMÍDANN MIKLA er ætlað að
sýna fram á það, með Guðs náð, að það er vilji Drottins, að opinbera
áform sín, á tilteknum tíma, þeim mönnum, sem leita hans af heilum hug,
en öðrum ekki. Þessi bók, sem er hin þriðja í röðinni, fjallar því nær ein-
göngu um nútíðina og framtíðina, og sérstaklega það, sem gerist nú á
DAGRENN I NG 39
L