Morgunblaðið - 13.02.2015, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2015
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Hvergi hef ég kynnst einsmiklum og flæðandisköpunarkrafti og hjá Ís-lendingum. Og þeir vaða
líka bara í verkið, án þess að hika,
framkvæma það sem þeim dettur í
hug. Tökum rapphljómsveitina
Reykjavíkurdætur sem dæmi, þetta
er stórkostlegur hópur af ungum
konum sem eru hver annarri sjálf-
stæðari. Þær eru fyndnar, fallegar og
sannir femínistar sem láta verkin
tala í tónlist og texta hljómsveit-
arinnar. Menningin hér á Íslandi
virðist ala af sér afar sjálfstæða ein-
staklinga, en þeir eru reyndar líka fá-
ránlega óskipulagðir og óstundvísir.
En allt gengur upp þrátt fyrir þetta
stjórnleysi, það hefur sannast við
gerð þessar kvikmyndar, það var
bara farið af stað og það tókst,“ segir
Graeme Maley og hlær en hann er
skoskur leikstjóri og handritshöf-
undur kvikmyndarinnar A Reykjavik
Porno. Í þeirri mynd koma Reykja-
víkurdætur einmitt fram en Þuríður
Blær Jóhannsdóttir sem er meðlimur
í hljómsveitinni leikur eitt af þremur
aðalhlutverkunum.
Háskakvendi og glæpur
„Þegar ég sýndi íslensku fram-
leiðendunum handritið, þeim Hlín
Jóhannesdóttur og Birgittu Björns-
dóttur hjá Vintage Pictures, þá sögðu
þær einfaldlega: „Gerum þetta“. Ég
ætlaði varla að trúa því, en nú eru
ekki liðnir nema þrír mánuðir frá því
þetta var og við höfum lokið öllum
tökum og eigum bara eftir að klippa
hana og vinna. Þetta er alíslensk
kvikmynd, allir leikararnir eru ís-
lenskir og allt fólkið sem kemur að
henni er íslenskt. Hún gerist í
Reykjavík, enda er ég heillaður af
borginni og fólkinu sem býr hérna. Í
myndinni segir af ástarsambandi
ungs manns og eldri konu, en þessi
mynd fjallar ekki síður um hvernig
við nútímafólk lifum lífi okkar í gegn-
um skjái, ýmist símaskjái eða tölvu-
skjái. Mér finnst áhugavert að skoða
hvaða áhrif þetta hefur á sambönd
fólks og samskipti. Þetta er drama-
tísk mynd og ég gerði hana í hinum
gamaldags stíl sem kenndur er við
Film-Noir, svo hún er með dökku yf-
irbragði og þarna er glæpur, and-
hetja, háskakvendið femme-fatale og
annað sem tilheyrir þeim stíl. Yf-
irbragð myndarinnar er líkt og frá
fimmta áratugnum en ég set nútíma-
líf í Reykjavík inn í þá stemningu.
Myndin er um algerlega venjulegt ís-
Háskakvendi,
glæpur og andhetja
A Reykjavik Porno, er alíslensk mynd með íslenskum leikurum en handritshöf-
undurinn og leikstjórinn er Skotinn Graeme Maley. Í myndinni segir af ástarsam-
bandi ungs manns og eldri konu, en hún fjallar ekki síður um hvernig við nútíma-
fólk lifum lífi okkar í gegnum skjái, ýmist símaskjái eða tölvuskjái. Graeme finnst
áhugavert að skoða hvaða áhrif það hefur á sambönd fólks og samskipti.
Leikhúsmaðurinn Graeme Skoti sem vinnur í Skotlandi og á Íslandi og
hlakkar til að sjá útkomu sinnar fyrstu kvikmyndar, sem er alíslensk.
Undirbúningur Þau eru mörg handtökin við kvikmyndaupptöku, hér er
hugað að förðun og öðru hjá Reykjavíkurdætrum fyrir upptöku.
UN Women á Íslandi stendur fyrir við-
burði í dag til að vekja fólk til vit-
undar um útbreiddasta mannrétt-
indabrot í heiminum í dag, en það er
kynbundið ofbeldi. Fleiri konur deyja
eða tapa heilsu á hverju ári vegna of-
beldis en af völdum krabbameins,
umferðarslysa, malaríu og alnæmis.
UN Women hvetur fólk til að gera
árið 2015 að ári sem konur eru frjáls-
ar og lifa án ótta við ofbeldi. Þess
vegna er blásið til feminískrar flóð-
bylgju um land allt og reyndar heim
allan, þegar milljarður rís upp gegn
ofbeldi á konum. UN Women á Íslandi
hvetur landsmenn til að mæta á við-
burðinn Milljarður rís, sem verður í
dag kl. 12 í Hörpu, í Hofi á Akureyri, í
félagsheimilinu Herðubreið á Seyðis-
firði og í Menntaskólanum á Ísafirði.
Ofbeldinu verður mótmælt og einnig
verður dansað gegn kynbundnu of-
beldi, líkt og gert var í fyrra.
Vefsíðan www.unwomen.is
Morgunblaðið/Ómar
Í Hörpu í fyrra Um 3.500 manns mættu og dönsuðu fyrir breyttum heimi.
Milljarður rís gegn ofbeldi í dag
Söngkonan Ragnheiður Gröndal sest
við slaghörpuna og flytur dagskrá
með sínum uppáhalds djass-
standördum í hádeginu í dag í Gerðu-
bergi í Breiðholti kl. 12.15. Hún
endurtekur leikinn á sunnudag kl.
13.15. Með Ragnheiði leikur Leifur
Gunnarsson á kontrabassa en hann
er listrænn stjórnandi djassdagskrár-
innar í vetur sem og meðflytjandi.
Hann fær til liðs við sig ýmsa tónlist-
armenn úr djasssenunni og boðið er
upp á fjölbreytta og skemmtilega
dagskrá sem er til þess fallin að
kynna djasstónlist fyrir almenningi.
Allir velkomnir, aðgangur ókeypis.
Endilega …
… kíkið á Ragn-
heiði Gröndal
Morgunblaðið/Ómar
Ragnheiður Ætlar að djassa í dag.
„Herratrend.is á upphaf sitt í hug-
mynd sem ég fékk í miðjum forrit-
unartíma í Tækniskólanum. Verkefn-
inu var skipað þannig að við áttum að
koma með hugmynd fyrir vefsíðu og
búa hana til og þá kviknaði fyrsta
hugmyndin fyrir herratrend,“ segir
Alex Michael Green, nemi í grafískri
miðlun, en hann ásamt nokkrum fé-
lögum sínum hannaði og opnaði ný-
lega vefsíðu fyrir karlmenn, herra-
trend.is. Þar er fjallað um tísku,
tónlist, húðflúr, tölvuleiki og fleira.
„Sjálfur var ég alltaf að bíða eftir
því að einhver stofnaði vefsíðu fyrir
íslenska herra sem höfðu áhuga á
tísku, en það gerðist ekki. Eftir að ég
kláraði fyrrnefnt verkefni byrjaði ég
að afla mér upplýsinga um hvernig
maður kemur alvöru vefsíðu af stað
og þá fór boltinn að rúlla. Mig langaði
einfaldlega til að bjóða upp á afþrey-
ingu fyrir alla sem hafa aðallega
áhuga á tísku en einnig tónlist, næt-
urlífi og ýmsu öðru. Við viljum ná til
sem flestra og viljum að íslenskir
karlar á öllum aldri skoði síðuna okk-
ar. Eins og staðan er í dag er herra-
tískan á Íslandi á uppleið, karlar spá
meira í því sem tengist útliti, þeir
þora, prófa nýja hluti og þá sér-
staklega yngri kynslóðin. Þar af leið-
Ný vefsíða fyrir karla: Herratrend.is
Ungir menn
tóku málin í
sínar hendur
Framtakssamir Fjórir af þeim
ungu mönnum sem standa að
vefsíðunni herratrend.is, Alex
Michael Green, Sindri Már Hann-
esson, Einar Logi Þorvaldsson og
Stefán Már Högnason.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
TA
KT
IK
/4
33
1/
fe
b1
5