Morgunblaðið - 13.02.2015, Side 20
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2015
www.rekstrarland.is Mörkinni 4 | 108 Reykjavík | Sími 515 1100Rekstrarland er byggt á fyrrum rekstrarvörudeild Olísog er dótturfyrirtæki Olíuverzlunar Íslands hf.
Samsettir fjáröflunarpakkar eða sérsniðnir eftir óskum hópsins
Öflug fjáröflun
fyrir hópinn
Hafðu samband við sérfræðinga okkar í Rekstrarlandi
í síma 515 1100 eða næsta útibú Olís og leitið tilboða.
REYKJAVÍK
BREIÐHOLT
H
EI
MS
ÓKN Á HÖFUÐBO
R
G
A
R
S
V
Æ
Ð
IÐ
2015
Breiðholtið hefur styrkst á fast-
eignamarkaði að undanförnu og
eignir þar seljast fljótt. Skýring-
arnar á þessu
kunna að vera
margar, að sögn
Þóru Birgisdóttur,
lögg. fasteignasala
hjá Fasteignasöl-
unni Borg. Höfuð-
borgarbyggðin
hafi síðustu ár
teygt sig til suðurs
og austurs og
Breiðholtshverfi
sé því orðið miðsvæðis. Það auki
vægi þess en verð eigna þar sé þó
enn 5-10% lægra en gerist með sam-
bærilegar eignir á höfuðborgar-
svæðinu.
Fjölbreytni mannlífs einkennir
Breiðholt. Þar eru margar góðar
sérbýliseignir en líka t.d. fjölbýli,
þar sem er fjöldi íbúða í félagslegri
leigu á vegum Reykjavíkurborgar.
Þá eru þar útlendingar áberandi.
„Það gildir almennt um hverfin þar
sem innflytjendur eru margir að Ís-
lendingar settu slíkt fyrir sig við
fasteignakaup lengi framan af. Nú
hefur landinn aðlagast þessu og okk-
ur foreldrum með börn í skóla finnst
þetta eftirsóknarvert,“ segir Þóra.
Í dag er algengt fermetraverð í
Breiðholtsblokk í 260 til 270 þús.
krónur og um 250 þús. kr í sér-
eignum. „Að undanförnu hefur verið
farið í endurbætur á fjölda eigna í
Breiðholtinu og slíkt styrkir verðið.
Fjárfestingasjóðir hafa að undan-
förnu keypt þarna nokkurn fjölda
blokkaríbúða til að leigja út. Hið
sama hafa iðnaðarmenn gert. Þeir
eiga kannski peninga á bók, kaupa
eignir og gera upp og leigja síðan út.
Telja slíkt góða ávöxtun,“ segir Þóra
sem um stöðu Breiðholtsins nefnir
að fyrir nokkrum dögum hafi blokk-
aríbúð í Bakkahverfi komið í sölu.
Þá voru þrír á lista hjá Borg áhuga-
samir um eign þar. Í heild lýsi þetta
því hvernig Breiðholtsmarkaður sé.
Hverfið er eftirsótt
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Byggð Misjafnt orð fór af Breiðholti í eina tíð, en nú eru breyttir tímar.
Þóra
Birgisdóttir
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Í miðju Efra-Breiðholts stendur
glæst og fagurt íþróttasvæði Leikn-
is, knattspyrnufélags sem fyrir rúm-
um áratug keppti í neðstu deild en
hefur síðan náð að vinna sér leið upp
í deild þeirra bestu.
Þórður Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Leiknis, segir í sam-
tali við Morgunblaðið að útlitið hafi
ekki verið jafnbjart um aldamótin.
„Félagið var þá næstum farið á
hausinn og í kjölfar þess endur-
skipulögðum við reksturinn og
fækkuðum deildum,“ segir Þórður
og bætir við að upp frá því hafi
áherslan verið lögð á knattspyrnuna.
Á félaginu eru þó teknar að vaxa
nýjar greinar, að sögn Þórðar.
„Við stofnuðum karatedeild fyr-
ir fjórum árum og keppum einnig í
meistaraflokki í körfubolta.“
Félagið endaði í efsta sæti
fyrstu deildar síðasta sumar og mun
því keppa í efstu deild að liðnum
vetri, í fyrsta sinn. Þórður segir að
nýtt aðsetur félagsins, sem reist var
árið 2008, hafi haft mikið að segja.
„Ekki einungis fyrir félagið
heldur einnig fyrir hverfið, því þetta
er viss hluti af ímynd hverfisins.
Þegar þú keyrðir inn í hverfið árið
2003 blasti við ónýtt gervigras og
gamall sumarkofi, sem var þá eini
húsakostur félagsins,“ segir Þórður.
„Þegar þú keyrir inn í hverfið núna
sérðu stórglæsilegt íþróttasvæði og
gróið svæði í kringum það. Þetta
skapar betri ímynd bæði inn á við og
út á við því íbúunum líður þá líka
betur með sitt nærumhverfi.“
Kraftaverk að tjaldabaki
Þórður segir að félagsmenn séu
spenntir fyrir komandi sumri í efstu
deild knattspyrnunnar.
Morgunblaðið/Eva Björk
Loksins Leiknismenn voru sigri hrósandi í lok leiksins við Tindastól þegar þeir tryggðu sér loks sæti í efstu deild.
Hófu ímynd hverfisins
á loft með bikarnum
Framkvæmdastjóri Leiknis segist finna fyrir meiri hverfisvitund
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Góðverk og þakklæti er þema febr-
úarmánaðar hjá skátafélaginu Haf-
örnum í Breiðholti. Starf félagsins
skiptist í þrjár
skátasveitir eftir
aldri og eru
hverri þeirra fal-
in verkefni sem
hafa það inntak
að leggja lið og
þakka það sem
vel er gert.
„Skátastarfið er
lærdómsríkt og
fjölbreytt. Mér
finnst ein-
staklega gaman að sjá hvað krakk-
arnir taka út mikinn þroska til
dæmis á einum vetri. Verða örugg-
ari, ábyrgðarfyllri og ákveðnari í
því að bjarga sér,“ segir Ásta
Bjarney Elíasdóttir sem er einn
sveitarforingja Hafarna.
Börnin hafa ólíkan bakgrunn
Ásta Bjarney byrjaði í skáta-
starfinu í Breiðholtinu fyrir þrjátíu
árum og segir það mótað sig mikið.
Hafi með öðru átt nokkurn þátt í
því að hún ákvað að leggja starf
með börnum fyrir sig. Fór því í
kennaranám og er í dag skólastjóri
Húsaskóla í Grafarvogi. Og skáta-
starfið í landinu er öflugt. Er lær-
dómsríkt og kostar lítið, hjá Haf-
örnum er þátttökugjald annarinnar
12 þúsund krónur og er allt dag-
skrárefni, skátaklútur og niður-
greiðsla í helgarferð innifalin.
Liðlega 40 krakkar taka þátt í
starfi Hafarna í dag. Yngstir eru
drekaskátar sem er flokkur 8 til 9
ára barna, Fálkar eru 10 til 12 ára
og dróttskátar er flokkur 12 til 15
ára unglinga. Þetta eru krakkar úr
Hólum, Bergum og Fellum í Breið-
holti og eru af ýmsu þjóðerni.
„Hve víða krakkarnir koma frá
og hve bakgrunnur þeirra er ólíkur
gerir starfið fjölbreytt og skemmti-
legt. Fyrir stuttu voru elstu skát-
arnir með matarfund þar sem
krakkarnir lögðu á borð rétti frá
sínu heimalandi, til dæmis, Lett-
landi, Íslandi, Bandaríkjum og víð-
ar, og buðu foreldrum sínum í
mat,“ segir Ásta Bjarney og heldur
áfram:
Þakka með fallegum orðum
„Við höfum lagt okkur eftir því
að fá foreldra til að taka þátt í
starfinu með okkur. Bjóðum þeim
Lærdómsríkt og
krakkarnir þroskast
Kátir skátar í Breiðholti 40 Hafernir
Ásta Bjarney
Elíasdóttir