Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.02.2015, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.02.2015, Blaðsíða 41
22.2. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41 Eins og náttúran hafði í hyggju • Magnesíumsprey sem virkar strax! • Slakandi, bætir svefn og slær á fótaóeirð og sinadrátt • Frábær upptaka Sefurðu illa? MagnesiumOil Spray Fæst í flestum apótekum, Lifandi Markaði, Heilsuhúsinu, Fjarðarkaup og Systrasamlaginu Nánari upplýsingar á www.gengurvel.is og á Facebook síðunni Better You Ísland P R E N T U N .IS Goodnight K im Kardashian átti ekki sjö dagana sæla þegar hún mætti með 19 mánaða dóttur sína, North West, á tískuvikuna í New York. Mæðgurnar voru í sínu fínasta pússi á fremsta bekk þegar pabbinn, hann Kayne West, sýndi línu sem hann hannaði fyrir Adidas. Við hlið þeirra mæðgna sat ein valdamesta kona tískuheimsins, Anna Wintour, ritstjóri bandaríska Vogue. Það sem gerðist næst var að þessi 19 mánaða var alveg á röngunni alla sýninguna, grét krókódílatárum og var mjög ósátt við að þurfa að sitja kyrr í fangi móður sinnar meðan á sýningunni stóð. Á endanum þurfti móðirin að fara með dóttur sína fram því það var einfaldlega ekki hægt að þagga niður í henni. Þegar ég sá þetta litla 19 mánaða krútt þarna á fremsta bekk fann ég til með þeim báðum. Fann til með mömmunni sem langaði eflaust til að sýna sig og sjá aðra með það verðmætasta sem hún á í fanginu. Og svo fann ég líka til með þeirri 19 mánaða sem vildi vera allt annars staðar en í kastljósinu innan um allt fína fólkið. Fyrir rúmlega níu árum eignaðist ég frumburð minn og áður en þessi fríðleiks- piltur kom í heiminn hélt ég pínulítið (og þið megið ekki dæma mig) að börn væru fylgihlutir, ekki litlar manneskjur með sínar eigin þarfir og langanir. Ég hélt að ég gæti klætt börnin mín upp í sitt fínasta púss og sportað mig með þau í bænum. Ég hélt að það væri hlutverk foreldranna að ala upp litla menningarvita með því að fara með þá á fullorðinssamkomur eins og á myndlistaropnanir eða í lek- ker síðdegisboð. En nei, þetta er því miður ekki alveg svona. Börn hafa engan áhuga á fín- um boðum og hvað þá að þurfa að haga sér eftir fyrirfram ákveðnum reglum. Það kannast örugglega allar mæður við þessa tilfinningu og allar höfum við örugglega lent í því að vera með börnin okkar í einhverjum aðstæðum sem þau vilja alls ekki vera í. Eftir að hafa farið í gegnum þann öldu- gang sem móðurhlutverkinu fylgir veit ég það að börn eru alltaf til vandræða í þau fáu skipti sem maður óskar þess að þau séu prúð. Eins vandræðalega og það hljómar þá hagar hann yngri sonur minn, sem er fimm að verða sex ára, sér yfirleitt eins og trúður þegar kær- astinn minn er innan seilingar. Í hvert skipti sem þetta gerist signi ég mig og vona að barnið sýni hvað það sé ógur- lega vel uppalið … Því miður bregst þetta alltaf! Ef við förum í búðina seinni partinn hendir hann sér í gólfið ef hann fær ekki nammið sem er við kassann og ef ég neita honum um eitthvað verður hann hræðilega móðgaður út í mig. Og svo er þetta með klæðaburðinn sem er alveg að fara með mig í gröf- ina. Það var nú aldeilis glatt á hjalla þegar ég gat ráðið hverju litlu ljós- álfarnir mínir klæddust eða áður en þeir tóku upp smákrimmalúkkið sem gengur út á hettupeysur, íþróttabuxur með hvítum röndum og hvíta strigaskó. Meðan á þessu ógæfutímabili stendur reynir móðirin bara að anda inn … og anda út og nýtur þess að vera í eltingaleik um húsið með geisla- sverð á meðan vinir hennar keyra upp stemninguna í öllum heimsins partíum. martamaria@mbl.is Kim Kardashian með dóttur sína. Þótt synir mínir, Kolbeinn Ari og Helgi, nenni aldrei með mér neitt eru þeir hjálplegir í eldhúsinu. Börn eru ekki fylgihlutir Victoría Beckham tekur dóttur sína, Harper Seven, með sér hvert sem hún fer. North West gerði allt vitlaust á tískuvikunni í New York. Þarna nennti hún ekki að vera.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.