Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.02.2015, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.02.2015, Blaðsíða 64
SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2015 Flestir kannast orðið við Ármann Höskuldsson eldfjalla- fræðing, enda hefur hann verið áberandi í fréttum af eld- gosum og jarðhræringum undanfarin misseri. Færri kannast líklega við Ármann Höskuldsson alþingismann en þetta er einn og sami maðurinn. Ármann settist nefnilega í tvígang á Alþingi sem varamaður veturinn 2001-02, fyrir Framsóknarflokkinn. „Ég bjó í Vestmannaeyjum á þess- um tíma og var varaþingmaður flokksins á Suðurlandi og fór tvisvar inn á þing, fyrst haustið 2001 og svo aftur vorið 2002. Mig minnir að ég hafi leyst Guðna Ágústsson af hólmi í fyrra skiptið en í það seinna var það Ísólfur Gylfi Pálmason vinur minn sem ég leysti af. Guðni var þá ráð- herra og eru það ekki yfirleitt þeir sem hleypa inn svona gríslingum? Ísólfur lagðist hinsvegar í pest og fór á spít- ala,“ segir Ármann. Hann segir setuna á Alþingi hafa verið ánægjulega reynslu. „Það var mjög gaman að kynnast því hvernig okkar lýðræðislega samfélag virkar í reynd og ég lærði heilmikið af þessu. Alþingi er vel skipulagður vinnustaður og starfsfólkið gott. Ég á bara góðar minningar frá Al- þingi. Þetta er reynsla sem flestir ættu að fá að njóta.“ Spurður hvort þingmaður blundi í honum svarar Ár- mann sposkur: „Nei, ætli ég væri þá ekki á þingi. Held- urðu það ekki?“ Að öllu gríni slepptu gerir hann ekki ráð fyrir að bjóða sig fram aftur. „Ég er ánægður í því sem ég er að gera. Það er gaman að fást við eldfjöllin og þau vandamál sem þar koma upp. Fyrir þá glímu er ég búinn að undirbúa mig stóran part ævinnar. Ætli ég haldi mig ekki við það.“ Ármann er ánægður með flokkinn sinn í ríkisstjórn, hann hafi gert vel við erfið skilyrði. „Við erum að fara upp úr mjög djúpri lægð og vonandi fer að rofa til hjá okkur. Ísland er vellauðugt samfélag, þegar allt kemur til alls.“ Tveir menn að nafni Ármann hafa setið á Alþingi frá upphafi. Hinn er Ármann Kr. Ólafsson, núverandi bæjar- stjóri í Kópavogi. Samsett mynd ELDFJALLAFRÆÐINGUR VIÐ AUSTURVÖLL Ármann (sat) á Alþingi Bréf frá lesendum hafa löngum sett svip sinn á Morgunblaðið og gefa oft og tíðum vísbendingu um tíðarandann hverju sinni. Stund- um botna þeir sem eldri eru ekkert í þeim yngri. Og líklega öfugt. Fyrir réttum þrjátíu árum, 22. febrúar 1985, skrifar 2712-2299 (nafnnúmer viðkomandi, fyrir þá sem ekki átta sig): „Ég get ekki lengur orða bundist yfir íslensku þjóðinni. Tökum t.d. börnin, í stað- inn fyrir að fara í kirkju á sunnu- dögum er nú farið á Duran Duran- hátíð þar sem börnin eru hvött til að taka sig saman og svindla popp- lögum inn á vinsældalista og and- varalaus börnin hlýða eins og ekk- ert sé. Endar þetta ekki með því að börnin fá hálsmen með myndum af poppstjörnum í staðinn fyrir háls- men með krossi, tákni Jesú Krists? Og svo í sambandi við kvik- myndamenningu íslendinga, þá verð ég að segja að ég varð alveg hlessa þegar ég frétti að aðeins 40.000 manns hefðu séð hina stór- góðu mynd Hrafninn flýgur og ættu Íslendingar að skammast sín fyrir að sjá ekki sóma sinn í því að sækja vel gerðar íslenskar myndir en fara þess í stað á alls kyns ómerkilegar sápuóperur frá út- landinu.“ GAMLA FRÉTTIN Hlessa á þjóðinni Frá tökum á kvikmyndinni Hrafninn flýgur eftir Hrafn Gunnlaugsson. Bréf- ritari er undrandi á því hve íslenska þjóðin sýnir henni lítinn áhuga. ÞRÍFARAR VIKUNNAR Phoebus kafteinn Disneypersóna. Reynir Lyngdal kvikmyndaleikstjóri. Charlie Hunnam kvikmyndaleikari. ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18, mánudaga - föstudaga 11-18:30 Borð. 90 x180cm. 119.900kr. Nú89.925kr. Bekkur. 35 x170cm. 49.900kr. Nú37.425kr. Vintage-borð og bekkur Borðstofuborð. 100 x200cm. 119.900kr. Nú89.925kr. Stóllmeð svörtu eðahvítu leðurlíki. Fætur úr hvíttaðri eik. 19.900kr. Nú14.925kr. Mallorca-borð og Plump-stóll Borðstofustóllmeð litaðri setu og krómfótum. Einnig hægt að fámeðsvörtum fótum. 14.900kr. Aros ny-borðstofustóll Borðstofustóll úr gúmmívið. 14.900kr. Nú11.175kr. Asta-borðstofustóll SPARAÐU 29.975 Vintage-borð 89.925 SPARAÐU 29.975 Mallorca-borð 89.925 SPARAÐU 3.725 Arosny-stóll 11.175 SPARAÐU 34.975 Bess-skenkur 104.925 SPARAÐU 3.725 Asta-stóll 11.175 Skenkurmeðþremur skúffumog tveimur hurðum. 170 x43 x72cm. 139.900kr. Nú104.925kr. Bess-skenkur 25% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM* BORÐSTOFUHÚSGÖGNUM 21. OG 22. FEBRÚAR *Gildir ekki um vörur á áður lækkuðu verði og merktum Everyday low price. Afsláttur reiknast á kassa.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.