Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.02.2015, Side 58

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.02.2015, Side 58
Bækurnar Ógæfa og Ofan og neðan eruí bókaröð sem ber yfirheitið Endir oghófst með bókinni Opinberun sem kom út 2012. Hugleikur Dagsson segir að upphafi að endinum megi rekja til þess að hann sé mjög áhugsamur um heimsendi, hvort sem það er í kvikmyndum, skáldsögum eða teiknimyndasögum. „Mig langaði alltaf að gera heimsendasögu en ég fékk bara of margar hugmyndir,“ segir Hugleikur. Þá datt honum í hug að gera bók þar sem hann myndi hafa hundrað sinnum heimsendi og einn slíkan á hverri síðu, „en þá fór ég að ofhugsa hverja einustu hugmynd þannig að það kom ekkert annað til greina en að gera bókaflokk og þá með mismunandi teiknara að hverri bók þannig að hún yrði einstök útlitslega. Ég ætlaði svo ekki að teikna sjálfur en útgefandi minn heimtaði að ég myndi teikna fyrstu bókina og ég sé ekki eftir því ég er mjög ánægður með að hafa gert svo íburðarmikla spýtukallabók.“ Eins og nafn fyrstu bókarinnar ber með sér sækir Opinberun innblástur í Opinber- unarbók Biblíunnar og að sögn Hugleiks var sú hugmynd ein af þeim fjölmörgu heimsendahugmyndum sem hann velti fyrir sér í upphafi. „Ég var lengi búinn að vera með þá hugmynd í kollinum að geimverur myndu framkvæma heimsendi en nota op- inberunarbókina sem einskonar upp- skriftabók og galdurinn var að reyna að koma því í einhverskonar söguþráð. Ég sá netmyndasögu þar sem einhver hafði gert Pokemon-útgáfu af opinberunarbókinni og las biblíuna til þess að staðfesta að þessi Pokemon-saga hafi í raun og veru verið skrifuð eftir henni og eftir það langaði mig til að gera sögu líka með öllum þessum skepnum og allri þessari sögu, hún er svo risavaxin og súrrealísk og furðuleg.“ Eins og getið er komu tvær heimsenda- bækur til viðbótar út á síðasta ári, ann- arsvegar Ógæfa, sem Rán Flygenring teikn- aði eftir handriti Hugleiks, og Ofan og neðan, sem er í raun í tveimur hlutum, þar sem Sigmundur B. Þorgeirsson og Lilja Hlín Péturs teikna hvort sinn hlutann. Hugleikur segir að sér hafi þótt tilvalið að fá Rán Flygenring til að teikna Ógæfu, enda hafi hún meðal annars fengist við að teikna hversdagslega hluti í miðborg Reykjavíkur „og þess vegna fannst mér það passa svo vel í þessa sögu þar sem heim- urinn sem endar í bókinni er miðborg Reykjavíkur“. Eitt af því sem vekur athygli við bókina er að Páll Óskar Hjálmtýsson er í aðalhlutverki í henni en Hugleikur skýrir það svo að hann hafi verið að hlusta á lag með Páli Óskari og séð allt í einu fyrir sér þar Pál Óskar að slátra uppvakningum. „Ég hafði samband við hann og spurði hvort hann væri til í að vera í aðalhlutverki í bók og hann var til í það enda er hann mjög hrifinn af hryllingssögum og þá sérstaklega uppvakningum.“ Þriðja bókin í röðinni er svo Ofan og neð- an sem þau teikna Sigmundur B. Þorgeirs- son og Lilja Hlín Pétursdóttir. Hugleikur segist hafa byrjað á að tala við Sigmund, en hann hafi svo ákveðið á síðustu stundu að ræða við Lilju líka, „enda passaði það svo vel í konseptið að láta bókina skiptast í tvo hluta. Svo passar það líka svo vel að Sig- mundur er neðan, því hans saga er svo þunglyndisleg, en Lilja ofan þar sem hún segir frá stelpunni sem nennir ekki að hanga heima hjá sér þrátt fyrir heimsendi.“ ÁFRAMHALD ENDIS Áhugsamur um heimsendi Hugleikur Dagsson er mjög áhugasamur um heimsendi og vinnur að bókaflokki þar sem hann er útfærður á ýmsa vegu. Morgunblaðið/Styrmir Kári Á SÍÐASTA ÁRI KOMU ÚT TVÆR TEIKNIMYNDASÖGUR SEM BYGGJ- AST Á HANDRITUM HUGLEIKS DAGSSONAR, ÓGÆFA OG OFAN OG NEÐAN. ÞÆR ERU BÁÐAR Í BÓKARÖÐ UM HEIMSENDI. Árni Matthíasson arnim@mbl.is 58 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.2. 2015 Bækur Eftirlætisbók mín hefur mikla tilhneigingu til að vera sú bók sem ég er upptekinn af akkúrat þá stundina en það er Salt- arinn, svokallaður, öðru nafni Davíðssálm- arnir í Gamla testamentinu. Ég er að reyna að sjá í þeim merki um áhrifasögu og er að spá í hvort byrjunin á Barni nátt- úrunnar eftir Halldór Laxness frá 1919 geti verið undir áhrifum frá sálminum sem Jesús vitnaði í á krossinum með orðunum „Guð minn. Guð minn. Hví hefur þú yfir- gefið mig?“ Í sálmi 22.7 segir „Ég er maðkur og ekki maður.“ En eins og kunnugt er byrjar Barn náttúrunnar á orðunum: „Maðk- ur! Aumlegi maðkur. Þarna liggurðu varnarlaus, þarna skríð- urðu áfram með því að eingjast sundur og saman! Bíddu! Bráðum traðka ég þig sundur með fætinum; traðka þig sundur af því að ég er máttugri en þú, eins og drottinn, þessi stóra almáttuga sál sem nýtur yndis af að sjá manns- sálina skríða í duftinu fyrir fótum sér dálitla stund, en treð- ur hana svo vonbráðar sundur.“ Svo hef ég verið að lesa Síraksbók en formálinn að þeirri Apókrýfubók biblíunnar frá 180 fyrir Krist er stórmerki- legur. Þar tjáir þýðandinn sig um starf sitt óvitandi um að þannig slysast hann til að verða laumugestur í bók Guðs um aldir. Ég hafði gaman af því að vitna í þetta spekirit við kon- una mína og segja: „Sæll er sá sem hlýtur góða konu því að tala ára hans mun tvöfaldast.“ Eftir þetta segist hún fíla Sírak. Ég ætla því ekkert að segja henni að í honum stendur líka: „Til konu á syndin rót sína að rekja, hennar vegna deyj- um vér allir.“ BÆKUR Í UPPÁHALDI BJARNI BJARNASON RITHÖFUNDUR Rithöfundurinn Bjarni Bjarnason er mjög upptekinn af Saltar- anum, Davíðssálmunum í Gamla testamentinu. Morgunblaðið/Kristinn

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.