Morgunblaðið - 11.03.2015, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 11.03.2015, Blaðsíða 9
Fjáröflunartónleikarnir Gamlinginn 2015 til styrktar orlofsdvöl aldraðra á Löngumýri í Skagafirði verða haldnir í Lindakirkju í Kópa- vogi í kvöld og hefjast kl. 20. Í mörg ár hefur íslenska Þjóðkirkjan staðið fyrir orlofsbúðum fyrir eldri borgara. Síðast- liðin 11 ár hafa þær verið starfræktar á Löngu- mýri í Skagafirði, en þar áður í Skálholti. Þór- ey Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri eldriborgararáðs Reykjavíkurprófastsdæma, segir að ferðirnar eigi sér um 30 ára sögu og í fyrra hafi meðalaldur gestanna verið tæplega 88 ár. Þetta fólk hafi almennt ekki mikinn elli- lífeyri og hafi lítinn eða engan lífeyrissjóð á bak við sig. Því sé töluvert í lagt til þess að styrkja þessar ferðir og meðal annars gefi allir, sem komi að tónleikunum, vinnu sína. Fjórar ferðir verða farnar í sumar Í fyrra voru þrjár 30 manna ferðir en í ár verða þær fjórar í júní og júlí. Tveir hópar verða sex nætur, einn hópur í fimm daga og einn hópur í fjóra daga. Þórey Dögg segir að vegna mikillar ánægju með ferðirnar hafi hún ákveðið að bæta einni við í ár. Hún bætir við að flestir einstaklingarnir í ferðunum treysti sér ekki til þess að fara í skipulagðar ferðir til út- landa og sumir séu miklir einstæðingar. „Ein kona sagði við mig, þegar hún pantaði ferð í fyrra: „Ég veit að þú trúir því ekki en ég hlakka til þess að borða með einhverjum öðr- um.““ Á tónleikunum koma fram Áslaug Helga Hálfdánardóttir, Gissur Páll Gissurarson, Guðrún Gunnarsdóttir og Páll Rósinkranz. Gestasöngvarar eru Löngumýrargengið úr Skagafirði, sem sér um skemmtikvöldin í ferð- unum, en það eru Gunnar Rögnvaldsson, Íris Olga Lúðvíksdóttir, Jón Hallur Ingólfsson og Sigvaldi Gunnarsson. Tónlistarstjóri er Óskar Einarsson. Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, ávarpar gesti og sr. Guðmundur Karl Brynjarsson, sóknarprestur í Lindakirkju, verður kynnir. steinthor@mbl.is  Tónleikarnir Gamlinginn 2015 í kvöld til styrkt- ar orlofsdvöl aldraðra á Löngumýri í Skagafirði Gaman að borða með öðrum Gamlinginn Í fyrra voru þrjár 30 manna ferðir en í ár verða þær fjórar í júní og júlí. FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2015 - með morgunkaffinu Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/ Nú geta allir fengið iPad-áskrift Hjá Parka færðu gullfallegar innihurðir. Mikið úrval, sjón er sögu ríkari! Bjóðum aðeins það besta fyrir þig! Dalvegi 10-14 • Kópavogi Margar gerðir af innihurðum VAKANDI!VERTU blattafram.is VERNDARI BARNA Í 10 ÁR 93% þolenda þekkja þann sem beitir þá kynferðislegu ofbeldi! Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is Vertu vinur okkar á Facebook St.36–52 Klassísk sparipils og jakkar Ný sending Kringlunni 4c – Sími 568 4900 Flott föt fyrir öll tækifæri Laugavegi 63 • S: 551 4422 www.laxdal.is/kjólar 20-50% afsláttur KJÓLADAGAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.