Morgunblaðið - 11.03.2015, Síða 19
Í átta vikna ferðalagi blaðamanna Morgunblaðsins um
hverfin í Reykjavík og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu
er fjallað ummannlíf og menningu, atvinnulíf og opinbera
þjónustu, útivist og umhverfi og skóla og skipulag með
sérstakri áherslu á það sem einkennir hvern stað.
neytisins er starfslið bandaríska
sendiráðsins fjölmennast, 65 manns.
Erlendir starfsmenn, þ.m.t. fjöl-
skylda og þjónustulið, er 29 manns.
Staðarráðnir starfsmenn sem ekki
njóta diplómatískra réttinda eru 36.
Næstfjölmennast er rússneska sendi-
ráðið. Á skránni er 51, en enginn
þeirra er staðarráðinn. Í þriðja sæti
er sendiráð Kína með 18 á skrá, dipló-
mata, fjölskyldufólk og þjónustulið.
Enginn í hópnum er staðarráðinn.
Hjá fjórum sendiráðum, breska, ind-
verska, japanska og sendiráði ESB,
eru síðan 17 samtals á skrá. Þar af
eru 11 staðarráðnir hjá breska sendi-
ráðinu, einn hjá indverska, þrír hjá
því japanska og fimm hjá ESB.
Kínverjar stærstir
Kínverjar eru skráðir fyrir
stærsta skrifstofuhúsnæðinu, sam-
tals 5.200 fermetrar. Bandaríkin eru
skráð fyrir 2.290 fermetrum skrif-
stofuhúsnæðis. Sendiráð Japans er í
þriðja sæti með 765 fermetra. Önnur
sendiráð eru með mun minna hús-
næði.
Morgunblaðið/SigurðurBogi
Kínverjar Sendiráð Kína er í stórhýsi við Bríetartún, mitt á milli tvennra höfuðstöðva lögreglunnar.
Rússar Sendiráð Rússlands er við
Garðastræti eins og það sovéska var.
Indverjar Sendiráð Indlands er við
Túngötu eins og þrjú önnur.
Danir Danska sendiráðið hefur lengi verið við Hverfisgötu.
Tvö saman Sendiráð Bretlands og Þýskalands eru saman við Laufásveg.
laggirnar í öllum bandarískum
sendiráðum eftir hryðjuverkaárás
á eitt þeirra í Austur-Afríku 1998.
Öryggisvarsla sendiráðsins var síð-
an stórefld í kjölfar hryðjuverk-
anna í New York haustið 2001.
Íslensk lögregluyfirvöld fylgjast
einnig náið með sendiráðunum og
umferð í grennd þeirra. Aka lög-
reglubílar reglulega um sendiráðs-
hverfin. Er slík gæsla skylda sam-
kvæmt Vínarsamningnum um
réttindi diplómata. Í 22. grein
samningsins segir: „Sérstök skylda
hvílir á móttökuríkinu til að gera
allar þær ráðstafanir, sem viðeig-
andi eru, til að vernda sendiráðs-
svæðið fyrir öllum árásum og tjóni
og koma í veg fyrir röskun á friði
sendiráðsins eða skerðingu á virð-
ingu þess.“
Samkvæmt Vínarsamningnum
njóta erlend sendiráð og sendi-
herrabústaðir friðhelgi. Í áður
nefndri skýrslu ríkislögreglustjóra
segir að erlendum sendiráðum sé
heimilt að grípa til öryggisráðstaf-
ana á sendiráðssvæðum. Þetta eigi
einnig við um heimili sendiherrans.
Yfirleitt ríkir friðsæld og gagn-
kvæmur skilningur í sambúð borg-
arbúa og erlendu sendiráðanna.
Starfsfólk þeirra er enda ósköp
venjulegt fjölskyldufólk, margt
með lítil börn, og reynir að aðlag-
ast samfélaginu þrátt fyrir alla ör-
yggisgæsluna í kringum hýbýli
þeirra og ferðir. gudmundur@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Öryggi Búið er að reisa háa girðingu við bústað sendiherra Indlands.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2015
Láttu okkur létta
undir fyrir
næstu veislu
Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík • haleiti@bjorg.is • Sími 553 1380
GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA
Serviettu- og
dúkaleiga
Gardínuhreinsun
Dúkaþvottur
Bílar með grænum númeraplötum, hvítum CD-
stöfum fremst og síðan númeri eða bókstöfum
eru algeng sjón í miðborg Reykjavíkur. Þetta eru
farartæki erlendra sendiherra og sendiráðsstarfs-
manna hér á landi.
Sérstakar reglur gilda um merkingu ökutækja
sendiráða. Öll eru þau merkt bókstöfunum CD
sem stendur fyrir „Corps diplomatique“, sendi-
sveit erlends ríkis. Síðan eru aðrir bókstafir not-
aðir hér á landi til að aðgreina einstök sendiráð.
Þannig merkir A á númeraplötunni bandaríska
sendiráðið, B merkir Bretland, C Danmörk og svo
framvegis. Sendiráðsbílar eru af ýmsu tagi. Sendiherrarnir og æðstu
menn sendiráðanna aka yfirleitt á svörtum eðalvögnum, jeppum eða
fólksbílum, en óbreytt sendiráðsfólk verður að láta sér nægja hvers-
dagslegri ökutæki.Litið er svo á að friðhelgi sendiráða gildi einnig í bif-
reiðum þeirra. Þannig er íslensku lögreglunni óheimilt að fara inn í
sendiráðsbíl og handtaka diplómat sem ekki vill stíga út, jafnvel þótt
hann hafi gerst sekur um brot á umferðarlögum eða öðrum lögum. En
aðeins örfá dæmi eru um að slík mál hafi komið upp.
Eðalvagnar diplómatanna
BÍLAR ERLENDRA SENDIRÁÐA ERU SÉRMERKTIR
Eðalvagn Þessi var
við Garðastræti.