Morgunblaðið - 11.03.2015, Blaðsíða 24
24 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2015
- Þín brú til betri heilsu
www.heilsuborg.is Heilsuborg ehf. • Faxafeni 14 • 108 Reykjavík • Sími 560 1010
Komdu þá og prófaðu nýju námskeiðin okkar
um betri lífshætti og mataræði.
Vilt þú...
... ná tökum á mataræðinu og læra
hvaða mataræði hentar þér?
... læra að elda hollan og góðan mat?
... léttast á heilbrigðan hátt?
... ná jafnvægi á blóðsykrinum og auka orkuna?
... kynnast mataræði þar sem ekkert er bannað
en læra að umgangast freistingar?
... bæta lífsstílinn og ná langtímaárangri?
Hvernig næ ég tökum á mataræðinu?
Opinn fyrirlestur fimmtudaginn 12. mars kl. 17:00.
Borðum betur!
Lærðu hvernig þú getur komið reglu á
mataræðið og hvaða skammtastærðir henta þér.
Kynntar eru ýmsar hugmyndir að matseðlum,
uppskriftum og skipulagi innkaupa sem einfalda
þér fyrstu skrefin að bættu mataræði.
Nærumst betur!
Góðar matarvenjur er rauður þráður í gegnum
námskeiðið. Fræðsla um næringarefni, hvar þau
er að finna, hvernig við lesum á umbúðir og
hvað við þurfum að hafa í huga við innkaupin.
Eldum betur!
Áherslan lögð á eldamennskuna og tengsl
mataræðis við heilsuna. Sólveig Sigurðardóttir
sýnir hvernig hægt er að elda hollan og góðan
mat með fáum innihaldsefnum á einfaldan
og ódýran hátt. Uppskriftahefti hennar fylgir
námskeiðinu. Erla útskýrir hvernig við getum
passað ýmsa þætti heilsunnar með bættu
mataræði.
Á tveimur manns-
öldrum sem liðnir eru
frá skiptingu Kóreu
árið 1945 í Norður- og
Suður-Kóreu hafa lífs-
kjör mæld í hag-
fræðilegum stærðum
þróast í þessum hlut-
um landsins þannig að
suðurhlutinn mælist
með 20 sinnum betri
efnahagsleg kjör en
ríkir í Norður-Kóreu,
sem kallar sig því fráleita nafni Al-
þýðulýðveldið Kórea. Hér er miðað
við þann mælikvarða sem kemur
best út fyrir „alþýðulýðveldið“ þ.e.
innlenda kaupgetu þjóðarfram-
leiðslu ( 35.485 á móti 1.800 US$ á
mann).
Ef miðað er við alþjóðlega kaup-
getu þjóðarframleiðslu á mann
verður munurinn næstum 50 faldur
(28.730 á móti 621 US$ ). Munurinn
á öðrum lífsgæðum er einnig stjarn-
fræðilegur; annars vegar nánast
staðnað helvíti á jörðu en hins vegar
samfélag, sem er í sífelldri þróun til
betra mannlífs og þar sem einstakl-
ingurinn fær að njóta sín.
Fyrir um sjötíu árum bjó almenn-
ingur í Kóreu allur við svipuð kjör,
sömu forsendur. Það, sem breyttist
1945, var stýrikerfið, hugmynda-
fræðin, sem löndin bjuggu við.
Norðurhlutinn lenti undir marxísku
alræðiskerfi, en samfélagið sunnan
38. breiddargráðu þróast í frjálst
samfélag að vestrænni fyrirmynd.
Norðurhlutinn lenti undir hernámi
Sovétríkjanna, en suðurhlutinn und-
ir hernámi Bandaríkjanna.
Svipuð dæmi eru til víða um heim
og víða í sögu mannsins. Þó að ytri
aðstæður skipti að sjálfsögðu
nokkru eru það þó fyrst og fremst
innri aðstæður, sem skipta mestu
um afkomu þjóða. Lönd og land-
svæði, sem áður bjuggu við lífsham-
ingju og allsnægtir hafa breyst í
hryllingsbúðir og öfugt.
Gott dæmi um þetta er Austur-
Evrópa eftir seinni heimsstyrjöld en
þó sérstaklega Mið-Austurlönd eftir
útrás íslams inn í löndin, sem áður
bjuggu við glæsilegustu menningu
heimsins og voru vagga vestrænnar
menningar. Þetta sama á þó einnig
við um Persíu og Indlandsskagann
þar sem menningin reis hvað hæst í
heiminum fyrir rúmu árþúsundi.
Íslam lagði þessi landsvæði í rúst,
en við þá sögu vilja menn helst ekki
kannast. Ástandið í Mið-Austur-
löndum er engin tilviljun. Það er af-
leiðing vaxandi styrks íslams, sem
leggur allt í rúst og dróma sem það
snertir.
Til skamms tíma voru á Íslandi
stórir hópar manna, sem unnu að
því að gera Ísland að marxísku sam-
félagi þannig að það gæti orðið hluti
að alheimsveldi komm-
únismans. Öllum upp-
lýsingum um hrylling-
inn víða um lönd af
völdum þessarar hel-
stefnu var vísað á bug
og erfiðar staðreyndir
kallaðar Moggalygi. Nú
þegar þessum stað-
reyndum verður ekki
lengur neitað bregður
svo við að sambærilegir
menn og jafnvel stund-
um sömu mennirnir og
áður áttu sér þann
draum að alræði öreiganna næði hér
völdum eru helstu hvatamenn þess
að greiða fyrir yfirráðum íslams yfir
Íslandi.
Íslam, kommúnismi og nasismi
eru náskyld alræðis stjórn-
málakerfi, sem miða að heims-
yfirráðum. Í bili virðist hafa tekist
að koma böndum á tvö síðasttöldu
kerfin en íslam er nú í þriðju stóru
útrásinni í þær 14 aldir sem saga
þess nær til, keyrt áfram með olíu-
auði arabaríkjanna. Aldrei skyldi
gleymast að íslam er fyrst og fremst
stjórnmálakerfi frekar en trúar-
brögð. Trúarþáttur íslams hefur
ruglað fórnarlömb hans í ríminu þó
að hann sé með ólíkindum and-
styggilegur.
Með því að leyfa jihadistum að
byggja hér mosku er verið að greiða
fyrir yfirtöku íslams á Íslandi eins
og stefnt er að og sagan sýnir okkur
að hefur alls staðar gerst nema þar
sem hugrakkir menn hafa snúist til
varnar. Ef íslam vinnur stríðið gegn
vestrænum gildum þýðir það enda-
lok siðmenningarinnar sem hefur
tekist að koma á með blóði, tári og
svita. Mannkynið mun sökkva niður
svartan pytt þaðan sem það á
kannski aldrei afturkvæmt. Nú ríð-
ur á að hinn frjálsi heimur standi í
lappirnar og að við látum ekki dóm-
greindarlaust fólk ráða ferðinni. Ísl-
am stenst engin siðferðileg viðmið
og stríðir gegn allsherjarreglu og
ætti því ekki að njóta trúfrelsis. Ísl-
am mun leiða yfir þjóðina hnignun,
glundroða, fátækt, forheimskun og
ofbeldi eins og alls staðar hefur
gerst þar sem það festir rætur. Þeir
sem vinna að framgangi íslams
vinna gegn framtíðarhagsmunum
Íslands. Slíkir menn eru þjóð-
níðingar.
Hugmyndafræðin
skiptir öllu
Eftir Valdimar H.
Jóhannesson
Valdimar H
Jóhannesson
»Ef íslam vinnur
stríðið gegn vest-
rænum gildum þýðir
það endalok siðmenn-
ingarinnar sem hefur
tekist að koma á með
blóði, tári og svita.
Höfundur er á eftirlaunaaldri.
Ég fór með dóttur
minni á Hvalasafnið
úti á Granda um dag-
inn. Þar var múgur
og margmenni og
virtust allir skemmta
sér hið besta. Þar er
líka aðstaða til að fá
sér hressingu. Ég
mæli eindregið með
að fólk geri sér ferð
til að skoða herleg-
heitin.
Hvalavinur.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Hvala-
safnið
Morgunblaðið/Kristinn
Hvalasafnið Þar má sjá 23 hvali í fullri stærð.
Flúðabrids
Starfið hófst eftir áramót hjá
Bridsfélagi Hrunamanna með
þriggja kvölda tvenndarkeppni. Þar
sigruðu með glæsibrag sveitarstjór-
inn og doktorinn.
Lokastaðan:
Ingibj. Harðard. - Pétur Skarphéðinss. 373
Þórdís Bjarnad. og Ari Einarsson 312
Helga Teitsd. og Karl Gunnlaugsson 311
Elín Kristmundsd. - Guðm. Böðvarss. 310
Margrét Runólfsd. - Gunnar Marteinss. 290
Þá tók við fjögurrakvölda 16 para
tvímenningur þar sem þrjú bestu
skorin gilltu. Þar sigruðu gömlu ref-
irnir eins og Sigurður heitinn Sig-
mundsson hefði orðað það.
Karl Gunnlss. - Jóhannes Sigmundss.518
Hörður Úlfarsson - Jóhann Gestss. 511
Brynjólfur Gestss. - Garðar Garðarsson 477
Þórdís Bjarnad. - Ari Einarsson 469
Margrét Óskarsd. - Baldur Garðarsson 469
Sveitakeppnin er hafin með þátt-
töku 6 sveita þar sem konur eru fyr-
irliðar allra sveitanna.
Helgi Bogason og Ólafur
Steinason unnu aðaltvímenning
Bridsfélags Kópavogs
Aðaltvímenningi Bridsfélags
Kópavogs lauk sl. fimmtudag með
sigri Helga Bogasonar og Ólafs
Steinasonar. Tuttugu pör spiluðu
barómeter á fjórum kvöldum og
varð niðurstaðan þessi.
Ólafur Steinason - Helgi Bogason 1108
Guðbjörn Baldvinss. - Guðm. Grétarss.
1105
Björk Jónsdóttir - Jón Sigurbjörnsson/Ás-
grímur/Birkir Jón 1096
Júlíus Snorrason - Eiður Mar Júlíuss. 1085
Sigm. Stefánss. - Hallgrímur Hallgrss. 1057
Næsta fimmtudag hefst Hrað-
sveitakeppni og stendur í fjögur
kvöld. Skráning hjá Jörundi s. 699-
1176 og thorduring@gmail.com
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| brids@mbl.is