Morgunblaðið - 11.03.2015, Side 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2015
AF TÖLVUSKRIFUM
Karl Blöndal
kbl@mbl.is
Þegar tölvan gerðist jafnokimannsins í skák vakti þaðheimsathygli. Heimsbyggðin
fylgdist með viðureignum tölvu og
manns, Kasparovs og Djúpblárrar,
tölvu IBM. Nú er tölvan farin að
ryðja sér til rúms í skrifuðu máli, en
í stað þess að tefla saman tölvum og
nóbelshöfundum, fer frekar lítið fyr-
ir fréttum um þessi tíðindi – það er
frekar að tölvurnar skrifi fréttirnar.
Eftirspurn eftir upplýsingum er
mikil og oft er þolinmæðin lítil.
Fréttir um íþróttakappleiki þurfa að
skila sér um leið og þeim lýkur og
fylgjast þarf jafnt og þétt með gengi
gjaldmiðla og sveiflum á mörkuðum.
„Sjálfvirk frásagnargerð“
Þessari eftirspurn hefur verið
svarað með því sem kalla má „sjálf-
virka frásagnargerð“ („automative
narrative generation“ á ensku), sem
verður æ fullkomnari.
Við textagerðina eru notuð
reiknirit eða algrím og tungumála-
forrit. Tölvan er mötuð á upplýs-
ingum um uppgjör fyrirtækis eða
úrslit leiks og á augabragði liggur
fyrir frétt, ýmist ágeng eða kurteis-
leg eftir því hver markhópurinn er.
Dagblaðið The New York Tim-
es birti um helgina tvö textabrot úr
íþróttafréttum, annað eftir mann,
hitt eftir tölvu, og það var ógerning-
ur að greina muninn.
„Útlitið var dökkt hjá Engl-
unum þegar þeir voru orðnir tveim-
ur stigum undir í níundu lotu, en Los
Angeles rétti úr kútnum, þökk sé
mikilvægu höggi Vladimirs Guerre-
ros til að komast áfram um eina höfn
og knýja fram 7-6 sigur gegn Boston
Tölvur skrifa fréttir án
þess að nokkur taki eftir
Fréttahaukur Er þetta næsti handhafi blaðamannaverðlaunanna? Tölvur skrifa nú fréttir í síauknum mæli.
Red Sox í Fenway Park á sunnu-
dag,“ hljóðaði fyrri búturinn.
„Hafnaboltalið Michigan-
háskóla skoraði í fjórgang í fimmtu
lotu og bjargaði lokaleiknum af
þremur, sem fóru fram um helgina
gegn Iowa, með því að sigra 7-5 síð-
degis á laugardag (24. apríl) á Wil-
pon-hafnaboltavellinum, sem áður
var hinn sögufrægi Ray Fisher-
völlur,“ sagði í síðari textanum.
Þetta er auðvitað þýðing, sem
ekki er gerð í tölvu, og því ómark.
Tölva gerði hins vegar fyrri textann,
en mannvera þann seinni.
Gátu ekki greint á milli
Í greininni í The New York
Times er vísað í rannsókn Christer
Clerwall, sem er við Karstad-
háskóla í Svíþjóð. Hún leiddi í ljós að
fólk getur ekki greint á milli þess
hvort texti er skrifaður af tölvu eða
manni. Þátttakendum í rannsókn-
inni fannst þó íþróttafréttir, sem
reyndust skrifaðar af manni, oftar
„skýrar“ og „ánægjulegar aflestr-
ar“, en sams konar fréttir eftir tölvu
oftar „trúverðugar“, „upplýsandi“
og „hlutlægar“.
Í The New York Times kemur
fram að fréttaveitan Associated
Press notar forritið Wordsmith frá
Automated Insights til að skrifa
fjármálafréttir. Á heimasíðu AP
kemur fram í tilkynningu til við-
skiptavina síðan í júní 2014 að fram-
vegis verði „sjálfvirk tækni“ notuð
til að skrifa þorra frétta um uppgjör
fyrirtækja. Þar segir að í stað þess
að blaðamenn skrifi 300 fréttir sé nú
hægt að láta skrifa allt að 4.400
sjálfvirkt um fyrirtæki um öll
Bandaríkin á hverjum ársfjórðungi.
Tekið er fram að blaðamönnum
verði ekki fækkað þrátt fyrir þessa
tækni. Nú fái þeir meira svigrúm til
greiningar.
Dagblaðið The Los Angeles
Times notar forritið Quakebot til að
greina jarðfræðilegar upplýsingar
og skrifaði það fyrstu fréttina, sem
birtist um jarðskjálfta, sem mældist
4,7 á Richter í Suður-Kaliforníu í
fyrra. Blaðið notar einnig algrím í
glæpafréttum.
Tölvur skrifa líka bækur
Fyrirtækið Automated Insights
heldur því fram að hugbúnaður þess
hafi skrifað milljarð frétta í fyrra og
oft hafi mannshöndin hvergi komið
nálægt.
Tölvur eru einnig farnar að
skrifa bækur. Philip M. Parker, sem
er prófessor við franska við-
skiptaháskólann Insead, á einkarétt
á algrímskerfi, sem hann segir að
hafi sennilega skrifað rúmlega millj-
ón bækur og um hundrað þúsund
þeirra eru til sölu í vefversluninni
Amazon. Hann er skráður höfundur
þeirra og hefur þó vart skrifað staf.
Þar er um að ræða allt frá „Hinu op-
inbera heimildariti sjúklingsins um
lömun raddbanda“ til kennslubóka í
bókbandi, krossgátubóka og ljóða-
bóka.
Kristian Hammond, einn af
stofnendum Narrative Science, sem
framleiðir textahugbúnaðinn Quill
(tímaritið Forbes notar hann til
fréttaskrifa), telur að um miðjan
næsta áratug verði hægt að skrifa
90% frétta með hjálp reiknirita eða
algríms. Ætli tölvur verði þá ekki
líka farnar að lesa fréttirnar og við
getum snúið okkur að öðru.
» Því er spáð að um miðjan næsta
áratug geti tölvur
skrifað 90% frétta.
Kór Breiðholtskirkju heldur tón-
leika í kvöld kl. 20.30 í Kristskirkju,
Landakoti. Á efnisskránni eru fornir
kaþólskir sálmar sem gefnir voru út
í íslenskri þýðingu í Graduale (Grall-
aranum) og auk þess tvö af fegurstu
kórverkum J.S. Bachs, mótetturnar
Jesu, meine Freude BWV 227 og
Komm, Jesu, komm BWV 229, segir
í tilkynningu. Á milli mótettanna
syngur Hildigunnur Einarsdóttir
altsöngkona sálma úr Schemelli-
söngbókinni. Kórnum til aðstoðar
eru Guðný Einarsdóttir organisti,
Sigurður Halldórsson sellóleikari og
Gunnlaugur Torfi Stefánsson bassa-
leikari og stjórnandi kórsins er Örn
Magnússon.
„Ástæða heimsóknar Kórs Breið-
holtskirkju í Landakot er hinn fagri
hljómur Kristskirkju sem hentar
einkar vel fjölradda söng barokktím-
ans,“ segir í tilkynningu um tón-
leikana. Í kórnum eru 27 söngvarar
sem hafa margir hverjir ríkan tón-
listarbakgrunn.
Mótettur
Bachs o.fl.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hljómfögur Kór Breiðholtskirkju á æfingu 4. mars sl. Hann syngur í kvöld í
Kristskirkju þar sem hljómur er fagur og hentar fjölradda barokksöng.
Billy Elliot (Stóra sviðið)
Mið 11/3 kl. 19:00 4.k. Fös 27/3 kl. 19:00 aukas. Mið 22/4 kl. 19:00
Fim 12/3 kl. 19:00 5.k. Sun 29/3 kl. 19:00 10.k Fim 23/4 kl. 19:00
Sun 15/3 kl. 19:00 6.k. Mið 8/4 kl. 19:00 11.k Fös 24/4 kl. 19:00
Þri 17/3 kl. 19:00 aukas. Fim 9/4 kl. 19:00 12.k Sun 26/4 kl. 19:00
Mið 18/3 kl. 19:00 7.k. Lau 11/4 kl. 19:00 aukas. Mið 29/4 kl. 19:00
Fim 19/3 kl. 19:00 8.k. Sun 12/4 kl. 19:00 13.k Fim 30/4 kl. 19:00
Fös 20/3 kl. 19:00 aukas. Fim 16/4 kl. 19:00 14.k Sun 3/5 kl. 19:00
Sun 22/3 kl. 19:00 9.k Fös 17/4 kl. 19:00 15.k Fim 7/5 kl. 19:00
Fim 26/3 kl. 19:00 aukas. Sun 19/4 kl. 19:00 aukas. Fös 8/5 kl. 19:00
Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Lau 14/3 kl. 13:00 Lau 28/3 kl. 13:00 Lau 18/4 kl. 13:00
Sun 15/3 kl. 13:00 Sun 29/3 kl. 13:00 Sun 19/4 kl. 13:00
Lau 21/3 kl. 13:00 Lau 11/4 kl. 13:00 Lau 25/4 kl. 13:00
Sun 22/3 kl. 13:00 Sun 12/4 kl. 13:00 Sun 26/4 kl. 13:00
Sterkasta stelpa í heimi er mætt á Stóra sviðið
Er ekki nóg að elska? (Nýja sviðið)
Fös 20/3 kl. 20:00 Frums. Þri 14/4 kl. 20:00 aukas. Sun 3/5 kl. 20:00 17.k
Sun 22/3 kl. 20:00 2.k Mið 15/4 kl. 20:00 9.k Mið 6/5 kl. 20:00 aukas.
Þri 24/3 kl. 20:00 aukas. Fim 16/4 kl. 20:00 10.k Fim 7/5 kl. 20:00 18.k
Mið 25/3 kl. 20:00 aukas. Fös 17/4 kl. 20:00 11.k Fös 8/5 kl. 20:00 19.k
Fim 26/3 kl. 20:00 3.k. Sun 19/4 kl. 20:00 aukas. Lau 9/5 kl. 20:00 20.k.
Fös 27/3 kl. 20:00 4.k. Mið 22/4 kl. 20:00 12.k Sun 10/5 kl. 20:00 21.k
Sun 29/3 kl. 20:00 aukas. Fim 23/4 kl. 20:00 13.k Þri 12/5 kl. 20:00 aukas.
Mið 8/4 kl. 20:00 5.k. Fös 24/4 kl. 20:00 aukas. Mið 13/5 kl. 20:00 22.k.
Fim 9/4 kl. 20:00 6.k. Sun 26/4 kl. 20:00 14.k Fim 14/5 kl. 20:00 23.k.
Lau 11/4 kl. 20:00 7.k. Mið 29/4 kl. 20:00 15.k Fös 15/5 kl. 20:00 aukas.
Sun 12/4 kl. 20:00 8.k. Fim 30/4 kl. 20:00 16.k Sun 17/5 kl. 20:00
Nýtt verk eftir Birgi Sigurðsson höfund hins vinsæla leikrits Dagur vonar
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Fim 12/3 kl. 20:00 Lau 14/3 kl. 20:00 Lau 28/3 kl. 20:00
Fös 13/3 kl. 20:00 Lau 21/3 kl. 20:00
Stærsti smáglæpamaður Íslands stelur senunni
Beint í æð (Stóra sviðið)
Fös 13/3 kl. 20:00 Lau 28/3 kl. 20:00 Lau 25/4 kl. 20:00
Lau 14/3 kl. 20:00 Fös 10/4 kl. 20:00
Lau 21/3 kl. 20:00 Lau 18/4 kl. 20:00
Sprenghlægilegur farsi
Billy Elliot –★★★★★ , S.J. Fbl.
Persónuleg þjónusta og vinalegt umhverfi
Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | veggsport.is
Fjölbreytt
æfingarstöð
eitthvað fyrir alla
Ketilbjöllur v Spinning v Hópatímar
Skvass v Golf hermir v Körfuboltasalur
Cross train Extreme XTX
Einkaþjálfun v Tækjasalur
12 mán. kort: kr. 59.900,- (ekki skvass)
nánar á veggsport.is