Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.04.2015, Side 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.04.2015, Side 4
* Formaður SI fær meira á mánuði fyrir stjórnarsetu ensem nemur samanlagðri þóknun til sex einstaklinga íframkvæmdaráði Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. ÞjóðmálEYRÚN MAGNÚSDÓTTIR eyrun@mbl.is 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.4. 2015 Formaður Samtaka iðnaðarins með 617 þúsund á mánuði Um 70% launafólks á almenn-um vinnumarkaði starfa hjáeinhverju af þeim 2.000 fyr- irtækjum sem heyra undir Samtök atvinnulífsins. Samtökin eru regn- hlífarsamtök sex aðildarsamtaka á vinnumarkaði en þau eru Samorka (Samtök orku- og veitufyrirtækja), Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrir- tækja í sjávarútvegi, Samtök iðnað- arins og Samtök verslunar og þjón- ustu. Í stjórn Samtaka atvinnulífsins sitja 20 manns og í framkvæmda- stjórn sitja formaður og varafor- maður samtakanna ásamt sex ein- staklingum úr hópi stjórnarmanna. Ekki er greitt fyrir setu í þessum stjórnum, en þeir sem sitja í stjórn SA eru jafnan einnig í stjórnum að- ildarfélaga. Formaður stjórnar SA, Björgólfur Jóhannsson, er ekki á launum hjá samtökunum. Aðildarfélögin sex virðast hafa ólíkan hátt á þegar kemur að þókn- un vegna stjórnarsetu. Samtök iðn- aðarins skera sig úr þegar kemur að greiðslum til formanns. SI greiða mest fyrir stjórnarformennsku Samtök iðnaðarins eru stærstu sam- tökin innan SA, með um 1.350 fé- lagsmenn eða fyrirtæki innan sinna vébanda. Guðrún Hafsteinsdóttir er formaður SI og ólíkt formanni SA þá þiggur hún laun fyrir for- mennsku sína. Formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins fær greiddar tæpar 617 þúsund krónur á mánuði og varaformaður stjórnar fær þriðj- ung launa formanns, eða um 206 krónur á mánuði fyrir setu í stjórn. Hjá Samtökum iðnaðarins sitja 10 manns í stjórn en aðeins formaður og varaformaður fá greitt fyrir stjórnarsetu. Fastir fundir eru haldnir mánaðarlega og aukafundir eftir þörfum. Engin stjórnarlaun hjá SFF og SAF Stjórn Samtaka fjármálafyrirtækja fundar um átta sinnum yfir árið en í stjórninni eiga sæti níu fulltrúar að- ildarfélaga. Engin stjórnarlaun eru greidd hjá Samtökum fjármálafyrir- tækja. Samtök ferðaþjónustunnar greiða heldur enga þóknun til stjórnar- manna eða stjórnarformanns, en þar er fundað mánaðarlega og sitja sjö manns í stjórn hverju sinni. Greiðslur til stjórnarmanna SFS afnumdar Hjá Samtökum fyrirtækja í sjávar- útvegi, SFS, sitja 19 manns í stjórn. Á síðasta aðalfundi var ákveðið að þóknun til almennra stjórnarmanna skyldi afnumin. Formaður stjórnar SFS, Jens Garðar Helgason, og varaformaðurinn Jón Eðvald Frið- riksson fá þó greitt fyrir stjórnar- setuna. Formaður fær 250 þúsund krónur á mánuði og varaformaður 125 þúsund krónur á mánuði. Fjórir stjórnarmenn auk for- manns og varaformanns skipa svo- kallað framkvæmdaráð en hver þeirra fjögurra fær greiddar 50 þús- und krónur á mánuði fyrir setu í ráðinu. Samtök verslunar og þjónustu greiða stjórnarformanni sínum Mar- gréti Sanders 20 þúsund krónur á mánuði í stjórnarlaun og 40 þúsund krónur að auki í ökutækjastyrk. Samtals fær formaður SVÞ því 60 þúsund krónur á mánuði í þóknun, aðrir stjórnarmenn fá ekki greitt. Í stjórn SVÞ sitja sjö manns og fund- ir eru einu sinni í mánuði. Ekki mega allir þiggja þóknun Hjá Samorku eru greidd stjórnar- laun en samkvæmt upplýsingum frá samtökunum mega aðeins þrír af sjö stjórnarmönnum þiggja þóknun- ina. Ástæðan er úrskurður kjara- ráðs um launakjör forstöðumanna fyrirtækja í ríkiseigu. Laun stjórn- armanna hjá Samorku eru 15 þús- und krónur á mánuði en formaður stjórnar fær tæpar 30 þúsund krón- ur á mánuði fyrir sín störf. Laun formanns Samtaka iðnaðar- ins fyrir stjórnarsetu í samtökunum eru sér á parti eins og ljóst má vera af samantekt um stjórnarlaun í þeim sex aðildarfélögum sem mynda Samtök atvinnulífsins. Næsthæstar greiðslur til formanns og varafor- manns eru hjá Samtökum fyrir- tækja í sjávarútvegi. Þó eru þær að- eins hluti af því sem greitt er í stjórnarlaun hjá SI. Til að setja upphæðirnar í samhengi þá nema samanlagðar greiðslur til formanns, varaformanns og fjögurra annarra í framkvæmdaráði Samtaka fyrir- tækja í sjávarútvegi samanlagt 575 þúsund krónum á mánuði, eða um 42 þúsund krónum minna en greiðslur til formanns Samtaka iðn- aðarins á mánuði. Formaður SI hefur alltaf verið á launum Formaður Samtaka iðnaðarins, Guðrún Hafsteinsdóttir, gegnir starfi markaðsstjóra hjá Kjörís. Varaformaður samtakanna er Eyj- ólfur Árni Rafnsson, forstjóri Mannvits. Að sögn Jóns Bjarna Gunnars- sonar, aðstoðarframkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins, er hefði fyrir því að formaður SI fái greitt fyrir störf sín fyrir samtökin. „Formaður og að hluta til vara- formaður taka mjög virkan þátt í starfi samtakanna og mæta á fundi sem fulltrúi samtakanna í mörgum tilfellum. Formanni hafa verið greidd laun fyrir störf sín frá stofn- un samtakanna og fyrir nokkrum árum var ákveðið að greiða varafor- manni einnig. Við lítum svo á að bæði formaður og varaformaður vinni alveg fyrir þessu,“ segir Jón Bjarni. Ólíkt hafast formennirnir að í Húsi atvinnulífsins. Formenn Samtaka fjármálafyrirtækja, Sam- taka ferðaþjónustunnar og Sam- taka atvinnulífsins þiggja engin laun fyrir störf sín fyrir félögin. Morgunblaðið/Kristinn EKKI ER GREIDD ÞÓKNUN FYRIR SETU Í STJÓRN SAMTAKA ATVINNULÍFSINS OG FORMAÐUR ÞIGGUR EKKI LAUN. HJÁ STÆRSTA AÐILDARFÉLAGINU, SAMTÖKUM IÐNAÐARINS, FÆR FORMAÐUR HINS VEGAR 617 ÞÚSUND KRÓNUR Á MÁNUÐI OG VARAFORMAÐUR ÞRIÐJUNG ÞEIRRA LAUNA. ÖNNUR AÐILDARFÉLÖG SAMTAKA ATVINNULÍFSINS GREIÐA ÝMIST ENGIN STJÓRNARLAUN EÐA MARGFALT LÆGRI UPPHÆÐIR TIL FORMANNA. Samtök iðnaðarins 9,9 milljónir króna, þar af fær formaður 7,4 milljónir Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi 6,9 milljónir króna, þar af fær formaður 3 milljónir Samorka 1,4 milljónir króna, þar af fær formaður 360 þúsund Samtök verslunar og þjónustu 720 þúsund krónur, aðeins formaður Samtök fjármálafyrirtækja 0 krónur Samtök ferðaþjónustunnar 0 krónur Samtök atvinnulífsins 0 krónur ÁRLEGAR GREIÐSLUR VEGNA STJÓRNARSETU

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.