Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.04.2015, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.4. 2015
Matur og drykkir
V
íða eru barnamatseðlar einhæfir á veitingastöðum og oftar en ekki má þar finna óhollan
mat. Á meðan finna má dýrindis rétti á matseðlum íslenskra veitingastaða sem bjóða upp
á ferskan fisk, safaríkt kjöt og heilmikið af grænmeti er barnamatseðillinn afar lítilfjör-
legur með næringarsnauðum mat. Stálpuð börn átta sig einnig á því að barnamatseðlar
eru ætlaðir þeim og hvers vegna ættu þau þá að borða eitthvað annað sem er í boði á matseðlinum?
Bragðlaukar barna eru ekki eins þroskaðir og fullorðinna og ekki óalgengt að þau biðji um eins-
leitan mat. Það á þó ekki við um öll börn. Margar leiðir er þó hægt að fara til að tryggja að þau
borði fjölbreytta og næringarríka fæðu og fúlsi ekki við matnum. Til dæmis er hægt að búa til súp-
ur eða sósur með fullt af grænmeti og setja allt í blandara eða nota töfrasprota. Þannig fær barnið
nóg af grænmeti. Eins er hægt að gera hefðbundinn óhollan mat að hollum með því að útfæra á
nýjan máta. Til að mynda nota kjúklingabringur í svokallaða kjúklinganagga í stað þess að bjóða
upp á frosna kjúklinganagga sem eru yfirleitt fátt annað en bein og aukaefni.
Einstakir veitingastaðir hafa einsett sér að útbúa góðan barnamatseðil sem hefur vakið mikla
lukku. Sunnudagsblað Morgunblaðsins fékk nokkra matreiðslumenn til liðs við sig til þess að koma
með tillögur og hugmyndir að góðum réttum fyrir börn. Aukin umræða mun vonandi skila sér.
Bjóðum upp á holl-
ari mat fyrir börnin
á veitingastöðum.
NÆRINGARRÍKAN MAT FYRIR BÖRNIN
Hollari barna-
matseðla, takk
VÍÐA ERU BARNAMATSEÐLAR EINHÆFIR Á VEITINGASTÖÐUM OG OFTAR EN
EKKI MÁ ÞAR FINNA ÓHOLLAN MAT. ÞAÐ ER ÓHÆTT AÐ KALLA ÞETTA
VANDAMÁL SEM FLESTIR FORELDRAR ÞEKKJA EFLAUST.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
Getty Images/iStockphoto
Gerum oft ráð fyrir að börn
vilji eitt frekar en annað
Mini GOTT borgari með heimalagaðri
tómatsósu, sætri kartöflu, hýðis
hrísgrjónum og salati
Krakka spelt vefja með kjúklingi
og osti, brúnum grjónum, sætum
kartöflum og heimagerðri tómatsósu
Kjúklinganaggarmeð sætum kar-
töflum, brúnum hrísgrjónum og salati
Fiskur dagsins með kartöflumauki
og grilluðu grænmeti
Matseðill
Margir kannast eflaust við mat-
reiðslubækurnar Heilsuréttir fjöl-
skyldunnar og Nýir heilsuréttir
fjölskyldunnar sem Berglind Sig-
marsdóttir og eiginmaður hennar
Sigurður Friðrik Gíslason mat-
reiðslumaður skrifuðu. Þau opn-
uðu veitingastaðinn GOTT í Vest-
mannaeyjum í maí í fyrra og leggja
áherslu á hollt mataræði, einnig fyrir börn og
hefur barnamatseðillinn hjá þeim vakið at-
hygli. Þau gera allar sósurnar sínar sjálf og
vinna matinn frá grunni. „Okkur finnst þetta
mikilvægt því þá vitum við alltaf nákvæmlega
hvað við erum að bjóða upp á,“ segir Berg-
lind. „Við byrjuðum á því að bjóða jógúrt-
sósur sem við gerðum sjálf með sumum rétt-
unum okkar en sáum fljótt að börnin vilja og
eru vön tómatsósunni. Við brugðum því á
það ráð að panta lífræna tómatsósu fyrir þau
börn sem vildu en vorum ekki nógu ánægð
með það. Við ákváðum því að búa til okkar
eigin tómatsósu og erum afar stolt af henni.“
Berglind segir að börn sem hafi komið á
staðinn hafi mikið spurt um hamborgara og
því hafi þau útbúið lítinn GOTT borgara með
hreinu nautakjöti og heimalagaðri tómatsósu.
Með honum eru svo sætar kart-
öflur en ekki franskar, hýðishrís-
grjón og salat. „Svo það er alveg
hægt að útfæra þessa „hefð-
bundnu“ óhollu rétti á hollan
máta.“
Berglind telur að barnamat-
seðlar séu víða ekki vandaðir og
frekar hent saman í flýti þar sem
gert er ráð fyrir að öll börn vilji borða það
sama. Því miður mætti gera betur í þessum
efnum. Maturinn er oftar en ekki óhollur og
næringarsnauður sem er sorglegt því börn
þurfa næringarríkan mat, sérstaklega þar sem
þau eru að þroskast og stækka.“ Berglind
segir það vanvirðingu gagnvart fjölskyldum
að bjóða börnunum upp á t.d. frosna rétti
einfaldlega af því að það er þægilegt, ódýrt og
fljótlegt fyrir veitingastaðinn. „Ég hef aldrei
heyrt barn kvarta yfir matnum hér þó að
hann sé hollari en gengur og gerist. Ég held
að við vanmetum oft börnin og gerum ráð
fyrir að þau vilji bara eitt frekar en annað.
Það á að vanda sig gagnvart öllum við-
skiptavinum, líka börnum,“ segir Berglind.
Tillaga að matseðli Berglindar er barna-
matseðillinn á veitingastaðnum GOTT.
Plokkfiskur með rúgbrauði og smöri
Lambalæri með soðsósu, gulrótum og kartöflumús
Fiskibollur með buglum eða hrísgjónum
og léttri karrýsósu
Matarmikil sætkartöflusúpa með
kókosmjólk og grófu brauði
Matseðill
Ámundi Óskar Johansen,
annar eigandi Veislumið-
stöðvarinnar í Borgar-
túni, er ávallt með heitan
mat í hádeginu. Matinn
sem þar er boðið upp á
mætti titla ekta heimilis-
mat. Ferskan fisk, kjöt,
súpu og annað má finna í
hlaðborðinu hjá þeim á hverjum
degi.
Hann segist sjálfur oft hafa velt
þessu fyrir sér, hvers vegna barna-
matseðlar á mörgum veitinga-
stöðum séu ekki hollari og fjöl-
breyttari en raun ber vitni. „Í
rauninni ætti þetta að vera þannig
að börnin borði það sama og full-
orðnir. Hvers vegna ættu þau að
borða t.d. samloku með
skinku og osti með
frönskum á meðan full-
orðnir fá sér kannski
vænan pastadisk eða fisk
dagsins. Börn þurfa á
góðri næringu að halda
og ekki væri vitlaust ef
veitingastaðir myndu til
að mynda bjóða upp á minni útgáfu,
barnvæna útgáfu af réttunum á mat-
seðli,“ segir Ámundi. „Það besta
sem sonur minn fær er lambalæri og
kartöflur eða soðinn fiskur. Þegar
við fjölskyldan gerum okkur glaðan
dag og bökum eða pöntum pítsu þá
borðar hann ekki eins vel. Börnum
þykir hollur og alvöru matur vera
góður.“
Snjallt að bjóða upp á barnvæna
útgáfu af réttum á matseðli