Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.04.2015, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.04.2015, Blaðsíða 41
19.4. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41 D jöfull átti ég ömurlegan dag,“ sagði vinkona mín mæðulega þegar hún hringdi í mig á dögunum og svo byrjaði hún að telja upp allt sem fór úrskeiðis þann daginn og hvernig hún hefði siglt á milli skers og báru í lífsins ólgu sjó og rétt náð að sigla í höfn án stórslysa. „Og svo þurfti ég aðeins að stelast til að reykja til að ná mér niður eftir dag- inn,“ sagði hún og bætti við: „Sálfræð- ingurinn minn segir að ég ráði bara alls ekki við það að sleppa þessari einu sígar- ettu á dag á meðan líf mitt er statt á þessum stað.“ Ég skildi hana fullkomlega og var eig- inlega mest hissa á því að hún hefði ekki tekið hárblásarann mörgum sinnum á alla þessa fávita sem urðu á vegi hennar þann daginn. Það er nefnilega svo ótrú- lega auðvelt að öskra og æpa þegar manni mislíkar eitthvað, henda sér í gólf- ið eins og fimm ára krakki, og láta bara öllum illum látum. Svo miklu auðveldara en að anda inn og anda út, telja upp á tíu og segja ekkert óviðeigandi. Að vera vandaður er stundum alveg full vinna. Ég er samt ekki að mæla með því að konur láti vaða yfir sig en það er gott að hafa það bak við eyrað að það er hægt að fá sínu framgengt á ótal vegu og yfirleitt er mun vænlegra að nota mjúku leiðina (sparibrosið). Svo er ýmislegt sem ber að varast. Fyrir nokkrum árum vann ég með manni sem kenndi mér besta trixið í bókinni og það er að skrifa aldrei neitt í tölvupósti sem ekki má fara í út- varpið. Maðurinn þekkti þetta út og inn enda búinn að vera í pólitík og reka fjölmiðla og hafði augljóslega brennt sig. Í pólitíkinni er engum treystandi. Ég bý ennþá að því að hafa horft á gömlu Dalls-þættina frá byrjun, ser- íu fyrir seríu. Í þeim þáttum var JR Ewing upp á sitt besta og hugsa ég oft til hans þegar ég er við það að kasta mér í gólfið í óhemjugangi út af óréttlæti heimsins. Ef ég staldra við og hugsa hvað hann frændi minn á Southfork hefði gert þá kemur svarið til mín. Hann fékk alltaf sínu framgengt og plottaði grimmt. Það síðasta sem hann hefði boðið upp á var að láta „bösta“ sig þegar hann slysaðist til að gera eitthvað sem hann átti ekki að gera. Það er ákveðin list og á sama tíma áhugavert consept – eitthvað sem konur eru svo allt of lélegar í. Karlar kunna að plotta. Tilfinningar okkar eru svo allt of oft að þvælast fyrir okkur og koma okkur í vandræði. Þess vegna er ágætt að skilja til- finningarnar eftir heima þegar við mætum í vinnuna og hugsa eins og stórlax. Þegar fyrrnefnd vinkona mín hringdi spannst samtalið út í hvað hún gæti gert sem væri valdeflandi fyrir hana og myndi koma í veg fyrir að hún væri alltaf alveg að fara fram af brúninni. Auðvitað er engin ein leið rétt en hver og ein þarf að finna sér eitthvert tákn sem minnir hana á að hún hafi valdið. Því þegar við höfum valdið þá gengur okkur mikið betur að synda í land án þess að láta smámuni koma okkur í uppnám. Nú svo má alltaf nota frasann sem hann fimm ára sonur minn kenndi mér á dögunum (hann lærði hann í Svínasúpunni á youtube.com) og það er að hvísla blíðlega í eyra: „Skíttu í þig helvítis bröggull.“ martam- aria@mbl.is JR Ewing í Dallas hefndi sín kerfisbundið á fólki. Claire Underwood er vönduð. Hún lætur eiginmann sinn samt ekki komast upp með neitt rugl. Að skilja til- finningarnar eftir heima Hillary Clinton setti eigin tilfinningar til hliðar þegar hún fyrirgaf framhjáhald eiginmannsins. Laugavegi 34, 101 Reykjavík Sími: 551 4301 | gudsteinn.is Guðsteins Eyjólfssonar sf V E R S L U N Mjór er mikils vísir Þessi litla auglýsing birtist á forsíðu Morgunblaðsins 19. apríl 1918, en Guðsteinn Eyjólfsson hafði þá nýstofnað fyrirtæki sitt. Skömmu síðar flutti fyrirtækið á Laugaveg 34, þar sem hann byggði stórhýsi sitt árið 1929. Þar erum við enn til húsa og enn er fyrirtækið í eigu afkomenda Guðsteins. Við höfum á boðstólum vandaðan herrafatnað á hagstæðu verði og bjóðum góða þjónustu, sem verið hefur okkar aðalsmerki undanfarin 97 ár
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.