Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.04.2015, Blaðsíða 2
Hvað er Heima? „Heima er tónlistarhátíð sem
stendur yfir eitt kvöld, þar sem spilað er í heimahúsum.
Eins og svo margt gott er þetta stolin hugmynd. Við
Kiddi kanína hittum þá sem standa að G-Festival í
Færeyjum á Iceland Airwaves í hittifyrra en þá voru
þeir að starta svona tónlistarhátíð í heimahúsum í
Götu í Færeyjum. Við fengum góðfúslega að stela hug-
myndinni. Við gerðum þetta fyrst í fyrra og það var
ferlega gaman, þannig að við gerum þetta aftur núna.“
Er þetta liður í því að koma Hafnarfirði
ennfrekar á kortið sem tónlistarbæ? „Já
kannski. Hafnarfjörður er mikill tónlistarbær og þetta er
örlítil viðbót. Okkur sem stöndum að þessu finnst þetta
skemmtilegt. Vonandi er Heima komin til að vera og öðl-
ast sjálfstætt líf.“
Er tónlist lífið? „Já, er hægt að svara því öðruvísi? Í mínu
tilfelli hefur hún verið allt um kring síðan ég var smábarn. Ég á
myndir af mér tveggja ára með stóra Pioneer-heddfóna á höfðinu
að hlusta á músík. Svo var ég alltaf með kassettur í vösunum
þegar ég var unglingur, vildi leyfa öllum að heyra.“
Er Hafnfirðingabrandarinn dauður? „Ja, þú segir
nokkuð. Ég hef ekki heyrt Hafnfirðingabrandara í fimmtán-
tuttugu ár líklega. Ég veit ekki hvort það er gott eða slæmt.
Ætli það sé ekki frekar slæmt. Annars verða menn að stíga var-
lega til jarðar eftir að Facebook og allt það kom til skjalanna.
Aðgát skal höfð í nærveru sálar.“
FH eða Haukar? „Ég er ekki innfæddur Hafnfirðingur og
rígurinn þarna á milli hefur aldrei snert mig mikið. Maður
þarf að hafa alist hérna upp til að skilja þann ríg held ég. Eig-
um við ekki bara að segja Björk. Sonur minn var að æfa
taekwondo í Björk og dóttir mín fimleika. Er þetta ekki
diplómatískt svar? Annars hef ég takmarkaðan áhuga á
íþróttum, nema maður skilgreini gönguferðir og útivist
sem íþróttir. Eina fótboltaliðið sem skiptir mig máli í
heiminum eru þessir gulu og glöðu á Akranesi. Það gleður
mig samt frekar en hitt þegar bæði FH og Haukum
gengur vel.“
Morgunblaðið/RAX
ÓLAFUR PÁLL GUNNARSSON
SITUR FYRIR SVÖRUM
Tónlistina
heim!
Í fókus
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.4. 2015
„Já, ég hef almennt svolitlar áhyggjur af verk-
föllunum og fylgist með gangi mála svona
með öðru auganu. Ég vona að það leysist úr
þessu.“
Marta Sveinbjörnsdóttir, 27 ára.
„Já, maður hefur áhyggjur af áhrifum verkfall-
anna á heilbrigðiskerfið og svo bara allt kerfi
landsins. Þetta leysist náttúrulega fyrir rest
en ekki fljótlega.“
Indriði Albertsson, 70 ára.
„Ég hef áhyggjur af því hvaða áhrif verkföllin
muni hafa á heilbrigðisgeirann og svo á þjón-
ustu í þjóðfélaginu almennt. Ég er frekar
bjartsýnn á að það leysist úr þessu fljótt.“
Ríkharður Ríkharðsson, 60 ára.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
„Nei, ég hef engar áhyggjur af verkföllunum,
held að þau muni ekki hafa nein áhrif á mitt
líf. Er bara algjörlega áhyggjulaus yfir þessu
öllu saman.“
Brynjar Logi Þórisson, 41 árs.
Morgunblaðið/Júlíus Sigurjónsson
SPURNING VIKUNNAR HEFURÐU ÁHYGGJUR AF YFIRVOFANDI VERKFÖLLUM?
Í Safnahúsinu við
Hverfisgötu er verið
að leggja lokahönd á
einstakan leiðangur
um íslenskan
myndheim. Sýning-
arstjórinn Markús Þór
Andrésson hefur stað-
ið í ströngu undan-
farið. Menning 54
Í BLAÐINU
Forsíðumyndin er
úr myndabanka AFP
Lista- og tónlistahátíðin
Coachella er nú í fullum
gangi í Bandaríkjunum. Þar
mæta yfirleitt stærstu
stjörnur og stíl-íkon Banda-
ríkjanna og leggja línurnar
fyrir útihátíðatísku sumars-
ins. Í ár réðu bóhemískir
straumar ríkjum. Tíska 42
Penny Simkin verður með vinnusmiðju þar sem
hún fjallar um fæðingarreynslu kvenna sem urðu fyrir
kynferðisofbeldi í æsku og leiðir fyrir fagfólk til að styðja
þær í gegnum barneignarferlið. Fjölskyldan 16
Hervör Guðjóns-
dóttir, fyrrverandi for-
maður Félags heyrnar-
lausra, var ung að árum
send frá heimahögum í
Önundarfirði til náms í
Málleysingjaskólanum
sem síðar hét Heyrn-
leysingjaskólinn.
Mannlíf 48
Tónlistarhátíðin Heima verður haldin öðru sinni í Hafn-
arfirði á miðvikudaginn kemur, síðasta vetrardag. Þrettán
listamenn/hljómsveitir koma þá fram í jafnmörgum heima-
húsum í miðbænum. Hver konsert er u.þ.b. 45 mínútur og
hver listamaður/hljómsveit spilar í tveimur húsum. Meðal
þeirra sem fram koma eru Eivör Pálsdóttir, KK, Dimma,
Herbert Guðmundsson, Emmsjé Gauti og Agent Fresco
og Jón Jónsson og Friðrik Dór. Miðasala á midi.is.