Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.04.2015, Side 38
38 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.4. 2015
Græjur og tækni
Sjónvarpsstöðin HBO sendi Periscope, þjónustu
Twitter sem gerir fólki kleift að senda út beint frá
símanum sínum, kvörtun og beiðni um að loka
tilteknum rásum á sunnudag þegar notendur
Periscope voru ítrekað staðnir að því að sýna frá
Game of Thrones-þætti í símanum sínum.
Sendu beint út frá Game of Thrones
F
allbyssan mikla“ er nýtt hug-
tak sem tekið hefur verið
upp í tungutaki netsins yfir
úrræði Kínverja til þess að
ritskoða vefinn í landi þeirra. „Eld-
veggurinn mikli“ hefur til þessa
verið þeirra skilvirkasta tæki til
þess að loka á heimasíður á borð
við Facebook og Twitter en sér-
fræðingar við háskólann í Toronto
segja nú að kínversk yfirvöld hafi
tekið til notkunar nýtt vopn í bar-
áttunni gegn tjáningarfrelsi á net-
inu.
Að sögn áðurnefndra sérfræð-
inga var Fallbyssunni miklu beitt í
fyrsta skipti seint í mars síðast-
liðnum, þegar gríðarlega mikil net-
umferð um vefsíðuna GitHub varð
skyndilega til þess að hún hrundi
og lá niðri um skeið. Árásin fólst í
aðferð sem kallast DDoS og grund-
vallast á þeirri hugsun að beina
gríðarlega mikilli umferð um til-
tekna síðu og stuðla þannig að því
að hún hrynur undan álagi. Ástæð-
an fyrir því að tæknin er kennd við
fallbyssu er sú að virknin er ekki
ólík; forritið bókstaflega skýtur
tölvuárásum á tilteknar síður.
Tveggja vikna árás
Kínverjar hafa nú tekið upp á því
að beita þessu nýstárlega netvopni,
ásamt eldveggnum fræga, til þess
að loka síðum sem yfirvöldum þar í
landi hugnast ekki. Árásin á Git-
Hub virtist fyrst og fremst beinast
að tveimur notendum sem njóta at-
beina síðunnar, annars vegar speg-
ilsetri New York Times í Kína og
hins vegar samtökunum Great-
Fire.org sem berjast gegn rit-
skoðun á netinu. Í báðum tilvikum
er um að ræða síður sem leggja
áherslu á að gera Kínverjum kleift
að komast hjá eldveggnum sem
kínversk yfirvöld nota til að útiloka
tiltekna kima netsins.
Árásin stóð yfir í um tvær vikur
og sérfræðingar við Toronto-
háskóla fylgdust náið með henni og
ályktuðu svo að þarna væri um
nýtt vopn í búri Kínverja að ræða.
„Jafnvel þótt árásin hafi verið
framkvæmd af búnaði sem er hýst-
ur á sama stað og Eldveggurinn
mikli, þá er ljóst að annars konar
vopnakerfi var hér á ferðinni með
annars konar hönnun og getu. Við
höfum kosið að kalla þennan hug-
búnað Fallbyssuna miklu,“ skrifuðu
sérfræðingarnir.
„Fallbyssan mikla er ekki bara
framlenging á Eldveggnum, heldur
sjálfstætt vopn sem stelur nett-
raffík og beinir henni inn á til-
teknar IP-tölur.“
Eldveggurinn mikli þykir heldur
passíf leið til þess að stunda rit-
skoðun, enda felst beiting hans í
því að hindra aðgang að tilteknum
síðum og gera kínverskum yfirvöld-
um kleift að njósna um ríkisborg-
ara sína. Fallbyssan gerir þeim
hins vegar kleift að breyta netinu á
svipstundu eftir eigin hentisemi.
Hugbúnaðurinn getur breytt
venjulegum notanda netsins í þátt-
takanda í árás á vefsíður. Í tilviki
GitHub klófesti Fallbyssan net-
umferð um innri vefi Baidu,
stærstu leitarvél Kína, og beindi
hluta hennar inn á síðu GithHub
og sá ógurlegi fjöldi notenda sem
sendi beiðnir inn á síðuna fyrir vik-
ið varð til þess að síðan lét undan
álaginu. Sérfræðingar Toronto-
háskóla álykta að Fallbyssunni
miklu sé í raun stýrt af kínversk-
um yfirvöldum. Fallbyssan og Eld-
veggurinn eru enda hýst á sömu
netþjónum og virðast byggjast á
sömu forritunarkóðum. Notkun
hugbúnaðarins þykir benda til þess
að Kínverjar ætli sér að beita nýrri
taktík við ritskoðun sína enda hafi
árásin verið mjög sýnileg og auð-
velt að fylgjast með henni. „Það
verður að teljast líklegt að árásin,
sérstaklega í ljósi þeirrar pólitísku
áhættu sem hún hefur í för með
sér, hafi ekki verið framkvæmd
nema með samþykki frá hátt sett-
um embættismönnum í Kína.“
Kínverska fallbyssan leggur vefsíður í rúst
KÍNVERJAR RITSKOÐA NET-
IÐ INNAN LANDAMÆRA
SINNA OG HAFA TIL ÞESSA
TREYST Á ELDVEGGINN
MIKLA, EINS OG HANN
ER KALLAÐUR, TIL ÞESS AÐ
LOKA Á VEFSÍÐUR. ÞEIR
HAFA NÚ TEKIÐ UPP
NÝTT VOPN Í BARÁTTUNNI
GEGN TJÁNINGAR-
FRELSINU.
Halldór A. Ásgeirsson haa@mbl.is
Ritskoðun er alvarlegt vandamál í mörgum harðstjórnarríkjum og kínversk yfirvöld virðast nú ætla að auka kraftinn
í skoðanakúgun sinni enn frekar í stað þess að draga úr.
Frægt er þegar Nikolai Yeshov hvarf af opinberri ljósmynd af Stalin, eftir að hann var tekinn af lífi árið 1940.
Maðurinn nefnist Eddie Raymond
Tipton og sá um öryggismál fyrir
the Multi-State Lottery Association
í Bandaríkjunum þegar hann var
handtekinn í janúar síðastliðnum af
lögregluyfirvöldum í Iowa. Saksókn-
arar segja að Tipton hafi sést á ör-
yggismyndavél fjárfesta í vinnings-
miðanum, sem að endingu hljóðaði
upp á 14,3 milljónir Bandaríkjadoll-
ara, eða tæpa tvo milljarða króna.
Vinningurinn var hins vegar aldrei
sóttur. Tipton hefur neitað sök.
Í dómsskjölum málsins kemur
fram að talið sé líklegt að maðurinn
hafi sett USB-kubb í tölvuna sem
velur vinningstölurnar hverju sinni.
Tölvan, sem er ónettengd, er geymd
í glerherbergi og aðeins geta tveir
einstaklingar nálgast hana hverju
sinni. Hún er jafnframt vöktuð af
öryggismyndavél. Talið er að Tipton
hafi í krafti embættisins getað átt
við stillingar myndavélarinnar svo
hún tók aðeins upp eina sekúndu á
hverri mínútu. Þetta veitti honum
nægan tíma til þess að fara inn í
herbergið og stinga USB-kubbnum í
tölvuna. Inni á kubbnum var leyni-
legt tölvuforrit, hannað til þess að
uppfylla tiltekið verkefni og eyða
sér svo sjálfkrafa.
Þetta verkefni var í þessu tilviki
að ákveða fyrirfram vinningstölur
lottósins í næsta drætti. Tipton fjár-
festi svo samviskusamlega í miða
sem innihélt nákvæmlega þessar
sömu tölur. Mike McLaughlin, yf-
irgreinandi hjá tölvuöryggisfyrir-
tækinu First Base, segir í samtali
við BBC að ásakanirnar kunni að
hljóma fjarstæðukenndar, en geti
engu að síður átt við rök að styðj-
ast. „Það er vel hægt að hugsa sér
að slíkur búnaður á USB-kubbi geti
átt við hugbúnað á tölvu og svo eytt
sjálfum sér. Það myndi bara taka
hann eina sekúndu að gera skyldu
sína. Engu að síður getur svona
hegðun skilið eftir sig slóð á tölv-
unni sem brotist var inn í og hana
er hægt að finna, sé réttum hand-
tökum beitt.“
Mátti ekki spila með
Sem einn starfsmanna lottósins var
Tipton ekki heimilt að vinna sjálfur
í lottóinu. Dómsskjölin benda til
þess að gerð hafi verið tilraun til að
sækja vinninginn nokkrum klukku-
stundum áður en fresturinn til þess
rann út. Sá sem reyndi að sækja
vinninginn var fyrirtæki með aðset-
ur í Belize í Mið-Ameríku. Verði
Tipton fundinn sekur getur hann átt
yfir höfði sér fimm ára fangelsi og
sekt upp á 7.500 dollara.
Hakkaði sig inn
í lottótölvu
FYRRVERANDI ÖRYGGISSTJÓRI LOTTÓS EINS Í BANDARÍKJ-
UNUM HEFUR NÚ VERIÐ ÁKÆRÐUR FYRIR SVIK Í LJÓSI ÞESS
AÐ HANN ER GRUNAÐUR UM AÐ HAFA HAKKAÐ SIG INN
Í TÖLVUNA SEM VELUR VINNINGSTÖLURNAR HVERJU
SINNI. FJALLAÐ ER UM MÁLIÐ Á VEF BBC.
Verði hakkarinn
fundinn sekur
gæti hann átt yfir
höfði sér allt að
fimm ár bak við
lás og slá.
Morgunblaðið/Eggert