Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.04.2015, Blaðsíða 52
Ljósvaki
52 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.4. 2015
Á enska öfgamálmbandið Cradle ofFilth, Vagga viðbjóðsins, engafylgjendur á Íslandi? Fór að velta
þessu fyrir mér á Ódýra tónlistarmark-
aðinum í Perlunni á dögunum. Ég hef van-
ið komur mínar á þann ágæta markað ár-
um saman og alltaf flæða plötur Cradle of
Filth út af borðinu. Plötur eins og Cruelty
and the Beast,
Damnation
and a Day og
Godspeed on
the Devil’s
Thunder.
Hvers vegna í
ósköpunum lít-
ur enginn við
þessu efni?
Hygg að eina
bandið sem á
að jafnaði fleiri plötur á markaðinum séu
Bítlarnir. Annað breskt band sem daðraði
við öfga á sinni tíð.
Komnir á skrifstofuna?
Annað öfgamálmband, Cannibal Corpse frá
Buffalo í Bandaríkjunum, virðist ekki eiga
meira fylgi hér uppi á klakanum en Cradle
of Filth. Alltént er ekki að sjá að plötur
þeirrar ágætu sveitar hreyfist heldur í
Perlunni. Hvar eru þeir nú Agnar Death
og félagar sem óku rúntinn á Akureyri í
gamla daga með drynjandi dauðarokk í
kassettutækinu? Og flösuna fjúkandi í allar
áttir. Man að einn þeirra gegndi nafninu
Röri og bruddi bárujárn með morg-
unkaffinu. Mögulega eru þeir allir komnir
inn á einhverja skrifstofuna í dag.
Það er önnur saga.
Meiri hreyfing er á plötum þrass-
kónganna í Slayer í Perlunni. Rakst meira
að segja á þá fyrstu, Show No Mercy, um
daginn. Frá því herrans ári 1983. Man ekki
eftir að hafa séð hana í íslenskri plötubúð
um langt árabil. Er það vel. Stórkostleg
sveit, Slayer, og ein sú áhrifamesta í
málmsögunni.
Úrvalið er gjarnan prýðilegt í Perlunni
og á svona markaði er maður líklegri til að
kaupa efni sem maður myndi annars ekki
kaupa. Það veltur auðvitað á verðinu en
það er ansi misjafnt í Perlunni. Nær væri
raunar að tala um Misjafnlega ódýra tón-
listarmarkaðinn. Margar plötur eru á fullu
verði, að því er virðist. Og þær ódýrustu
þeirrar gerðar að enginn girnist þær. Ekki
einu sinni sem gjöf.
Inn á milli slæðast þó frambærilegar
skífur á hagstæðu verði. Splæsti til dæmis
í fyrsta skipti í plötu með bandaríska
málmkjarnabandinu Killswitch Engage um
daginn. Hef lengi ætlað að kynna mér það
band. Fyrir mörgum árum stóð valið milli
Frá tónlistarmarkaðinum í
Perlunni. Þar má líka fá alls-
kyns myndefni í DVD-formi.
Morgunblaðið/Kristinn
Enginn vill Vöggu viðbjóðsins
ÉG ER FURÐUFUGL OG ÞESS VEGNA ER ÉG LÍKLEGA ENNÞÁ AÐ KAUPA HLJÓMPLÖTUR. MEST GEISLA EN EKKI VÍNYL, ÞAR SEM NÁLIN Á PLÖTUSPILARAN-
UM ER BILUÐ. FYRIR VIKIÐ HLAKKA ÉG ALLTAF JAFN MIKIÐ TIL MISJAFNLEGA ÓDÝRA TÓNLISTARMARKAÐARINS Í PERLUNNI SEM NÚ STENDUR EINMITT YFIR.
Bob gamli Dylan. Á ég að gefa honum tækifæri? Killswitch Engage er í dúndurformi á plötunni Disarm the Descent sem kaupa má á tónlistarmarkaðinum.
Tónlist
ORRI PÁLL
ORMARSSON
Það ætti ekki að hafa farið framhjá nein-um í þessu sólkerfi að kynningar-myndband fyrir kvikmyndina StarWars: Episode VII - The Force Awa-
kens var frumsýnt fyrir helgi fyrir framan
7.500 æsta aðdáendur á ráðstefnu í Kaliforníu.
Myndin er framhald af Star Wars: Episode VI -
Return of the Jedi frá árinu 1983 og á að ger-
ast þrjátíu árum síðar. Harrison Ford lítur vel
út í hlutverki sínu sem Han Solo en margir eru
nú að furða sig á hvaða örlög hafi beðið Lukes
Skywalkers (Mark Hamill) en vélhönd sést
snerta R2-D2. Margir hafa giskað á að þetta sé
hönd Lukes og að hann hafi gengið til liðs við
myrku öflin. Kemur í ljós 18. desember.
STYTTIST Í MEIRA STJÖRNUSTRÍÐ
Tveir ómótstæðilegir á sinn hátt, Chewbacca
og Han Solo (Harrison Ford).
Meira af Harrison Ford en viðræðurstanda yfir við Ryan Gosling aðleika í framhaldi Blade Runner ámóti Ford. Leikstjórinn Denis
Villeneuve, sem tónskáldið Jóhann Jóhannsson
hefur unnið mikið með, leikstýrir myndinni en
Ridley Scott framleiðir. Myndin gerist nokkrum
áratugum á eftir fyrri myndinni, sem kom út ár-
ið 1982 en gerðist í Los Angeles árið 2019.
Ford verður á ný í hlutverki Rick Deckard en
ekki er vitað hvaða hlutverk Gosling fer með.
Sicario, nýjasta mynd Villeneuve, verður á Can-
nes-kvikmyndahátíðinni en Jóhann gerir tónlist-
ina í henni. Með aðalhlutverk fara Emily Blunt,
Josh Brolin og Benicio del Toro.
RYAN GOSLING Í BLADE RUNNER 2
Ryan Gosling og Harrison Ford verða
áreiðanlega góðir saman.