Reykjalundur - 01.06.1962, Síða 6

Reykjalundur - 01.06.1962, Síða 6
Þeir huöttu rnig og atra unglinga til náms Rætt við Elís Kristjánsson húsa- smíðameistara, sem fyrstur manna fékk iðnréttindi eftir nám að Reykjalundi. Fyrsti vistmaður að Reykjalundi, sem útskrifast þaðan með full iðnrétt- Í7idi eftir að hafa lœrt þar að öllu leyti — bóklega og verklega —, er Elis Kristjánsson, husasmíðameistari. Ég hitti Elis að máli á heimili hans, Vindási á Seltjarnarnesi. Elís er fœdd- ur á Arnarnúpi i Dýrafirði árið 1926, kona hans er Anna Óskarsdóttir og eiga þau tvö börn, 8 ára og 11 ára. Anna var einnig vistmaður á Reykja- lundi og áttu þar sitt fyrsta heimili saman. — Hvaða vinnu hafðirðu stundað, Elís, áður en þú komst að Reykjalundi? — Eg var alinn upp í sveit, en eins og flestir Vestfirðingar byrjaði ég snemma á sjónum — það þótti enginn maður með mönn- um, sem ekki var kominn til sjós á ferming- ardaginn. Næstu árin var ég svo á bátum fyrir vestan og síðan á togurum hér, hef lík- lega ætlað mér sjómennskuna sem ævistarf. — Svo verður þú fyrir veikindum? — Já, það var um vorið 1946, að ég veikt- ist af berklum í lunga, ég var þá á Júpíter með Bjarna Ingimarssyni. Eg vildi ekki fara á Vífilsstaði, þá voru í rauninni allir hrædd- ir við berkla, og mér fannst það eins og að fara í gröfina, en kannski hefur verið í mér óhugur, af því að kunningi minn sem einnig var sjómaður hafði þá nýlega dáið þar. Ég átti gott heimili fyrir vestan og lá þar, en gekk seint að batna. Haustið 1947 var svo ákveðið að ég færi á Reykjalund. — Hvernig var þá umhorfs þar? — Ég hafði varla heyrt Reykjalund nefnd- an, vissi aðeins, að hann var í Mosfellssveit, en hélt að þar væri bara aðrir Vífilsstaðir. Þá var Reykjalundur svo til nýlega tekinn til starfa, og ég var settur í stóra húsið — eins og það var kallað — þar til annað losn- aði, og varð að flytja herbergi úr herbergi eftir því sem málað var og dúklagt. — Þú hefur strax farið að vinna? — Já, á Reykjalundi verða vistmenn að vinna minnst 3 stundir á dag. Ég fór að vinna við smíðar og hafði þó varla haldið á hamri áður. — Hvenær byrjar þú svo að læra? — Mér hafði að sjálfsögðu ekki komið til hugar neitt nám í sambandi við dvölina á Reykjalundi, fór þangað einungis til að fá bata og bjóst við að hverfa aftur að sjó- mennsku, ef ég fengi heilsu til þess. En ráða- menn á Reykjalundi hvöttu mig og aðra ung- linga til náms, svo að við gætum haft not af tímanum á Reykjalundi til að búa okkur undir lífsstarfið. —Síðan ferðu í Iðnskólann að Reykjalundi. — Já, ég var nú satt að segja hálf tregur til þess, taldi það alveg vonlaust að ég gæti staðið mig, því að ég hafði ekki annan und- irbúning en barnaskólapróf. En þeir Oddur Olafsson yfirlæknir og Hjörtur Kristjánsson trésmíðameistari, sem stjórnaði verkstæð- inu, voru óþreytandi að hvetja mig. Mér var ekki ljóst þá hve mikilsvert það yrði fyrir mig síðar að geta notað tímann á Reykja- lundi til náms og fá full réttindi sem iðnað- armaður. 4 Reykjalundur

x

Reykjalundur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.