Reykjalundur - 01.06.1962, Síða 38

Reykjalundur - 01.06.1962, Síða 38
Brostnir hlekkir Haukur Frímannsson F. 9. okt. 1903. — D. 10. febr. 1961. Hann hét fullu nafni Björn Steinar Hauk- ur Frímannsson, fæddur 9. október 1903. Foreldrar hans, Sigríður Rósa Sveinbjörns- dóttir og Frímann Þorvaldsson, bjuggu að Ytri-Vík á Árskógsströnd. Þar ólst hann upp í hópi systkina, við góða heimilishætti — starf og ábyrgð í hita dagsins — gleði á góðri stund. Alla stund var Haukur tengdur átthögunum og ættmönnum og vinum þar, traustum böndum. En atvik féllu þannig, að síðustu árin fékk hann aðeins notið þess í hlýju minning- anna. Mikinn hluta ævinnar bjó Haukur Frí- mannsson við heilsubrest og frá 1948 var hann óslitið sjúklingur í Kristneshæli. Á því tímabili háði hann oft harða baráttu við hinn erfiða sjúkdóm, og síðustu misserin var hann löngum sárþjáður. Andlát Hauks bar að þann 10. febrúar 36 1961. Þá veittist þreyttum manni sú hvíld, sem hlaut að teljast miskunn, eftir því, sem högum var komið. En sjónarsviftir var að Hauk og tregi í hjörtum ástvina og félaga eftir hann genginn. — Þó að engin reynsla gangi yfir án vitnis- burðar í einhverri mynd, og merkin eftir eldskírnina hljóti að segja sína sögu, þá munum við, sem þekktum vel Hauk Frí- mannsson, hann ekki fyrst og fremst mót- aðan af þrautagöngu um þyrnóttan stig, heldur munum við hann lengst og Ijósast sem hinn góða, glaða félaga. orðsnjallan og ánægjulegan í viðræðu. Við geymum í huga mynd glæsimennisins, sem á beztu stundunum gneistaði af gleði og skaporku, er hreif alla með sér. Þegar Haukur naut sín, munu þeir hafa verið fáir, sem ekki sóttust eftir návist hans og fundu í henni yl og ánægju. Að eðlisfari var Haukur skapríkur og við- kvæmur tilfinningamaður og sótti fast að settu marki. Hann var skarpgreindur, rökvís og hugðnæmur og fljótur að átta sig á mönn- um og málefnum. Vegna þessara hæfileika var hann eftirsóttur til starfa og samvinnu, enda um alllangt skeið einn af beztu for- ystumönnum i félagsmálum sjúklinga í Krist- neshæli. Hvar sem hann kom fram fyrir þeirra hönd, var hann ágætur fulltrúi, háttvís, áhugsamur og félagslega þroskaðuv Fram til hins síðasta fylgdist hann vel með því, se n gjörðist í málum berklasjúklinga yfirleitt og gladdist innilega af öllu, sem til heilla horfði og vísaði til sigurs. Áhugi hans fyrir því, að Kristneshæli fengi að starfa áfram á þeim grundvelli, sem það var upphaflega reist — var heitur og æ- vakandi. Hann barðist — einn gegn mörgum, fast og af fyllstu heilindum gegn hugmynd- um, sem hnigu í þá átt, að láta Kristneshæli skipta um hlutverk. Var honum þetta mikið Reykjalundur

x

Reykjalundur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.