Húnavaka


Húnavaka - 01.05.1961, Side 40

Húnavaka - 01.05.1961, Side 40
38 HÚNAVAKA ég helzt bara blöndu eða vatn.“ „Svitna?“ tók frúin upp eftir mér. ,,Já, það er stundum dálítið erfitt þarna nyrðra, — og mér er fremur svitagjarnt.“ ,,Já, þið hafið alltaf sólskin þarna fyrir norðan.“ „O, \ ið svitnum nú svo sem líka, þó kalt sé.“ „Já, þegar þið dansið.“ ,,Ja, ég er nú eiginlega hættur að dansa síðan ég tók að eldast, en ég gat nú einu sinni dáldið á dansgólfinu, þegar ég var ungur — sögðu stúlkurnar þarna norður frá.“ „Gamall, þér eruð svo sem ekki mikið garnall,11 sagði frúin og brosti glettin til mín. „Fjörutíu og fimm ára,“ sagði ég og laug til um heilan tug. Stendur heima, — það vonda, sem ég ekki vil, það geri ég. Undarlegur fjandi þetta með okkur karlmennina, nærri sama hvað gamlir við verðum, við höfum alltaf jafn gaman að kvennahrósinu — að þeim lítist ögn vel á okkur. Eg fór mér hægt við drukkinn, en frúin hafði þegar tæmt tvö glös. — Snögglega spratt hún upp úr stól sínum, en var reikul í spori. Fyrr en varði var hún sest á kné mér. Ég kipptist ögn við. Nú fór mér ekki að lítast á blikuna. Skyldi ég nú lentur í kvenna- snöru fyrir alvöru, harðgiftur, roskinn bóndi og eiginlega kvenvar nú í seinni tíð. Eg varð að stimpast við þessari feikna freistingu, sem setti að mér — og var holdið jaó veikt. Ég laumaði út úr mér og setti dálítinn jjjóst í röddina: „Frú, •— mér er ögn illt i jjessu hné.“ „O, — ætli það sé nokkuð — ég er varla svo hörð viðkomu,11 sagði frúin og brosti freistandi. Um leið strauk hún dúnmjúkum lófa um vanga mér. Nú fór gamanið að grána. Ég forðaðist að mestu að snerta á henni, jjví nú var að duga eða drepast. „Jahá — ég þarf eiginlega að fara strax,11 hreytti ég út úr mér, með herkjum. „Fara,11 hafði frúin upp eftir mér — og ekki batnaði aðstaða mín gegn þessu freistinganna fári. Ég varð að gera ákveðna útrás úr þessu háskans virki. „Já, — ég þarf endilega að hafa tal af dýralækni.11 „Dýralækni,11 tók frúin upp eftir mér — færði sig á hitt hnéð á mér, strauk vagna minn aftur og spyr: „Hvað á það nú eiginlega að þýða að fara.“ Yfir löngunarfull augu hennar brá munaðarbliki.

x

Húnavaka

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húnavaka
https://timarit.is/publication/1122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.