Húnavaka - 01.05.1966, Blaðsíða 39
HÚNAVAKA
37
sinni nóttina. í Vestmannaeyjum, jiar sem ég var ein, hafði ég vakt
allan sólarhringinn. Eftir að ég giftist og var á mínu eigin heimili,
hugsaði ég stundum á kvöldin: — Það er dásamlegt að geta lagzt
út af og þurfa ekki að hlusta —.
Áður hafði mér aldrei dottið það í hug, svo að líklega hefur nrað-
ur gott af að reyna svona.
Flutt i HéraÖshœlið.
Milli jóla og nýjárs 1955 var flutt í Héraðshælið. Það var geysi-
leg breyting, lnisið stórt, og okkur fannst það ógurlega erfitt fyrst
í stað. Við söknuðum margs af gamla spítalanum. Hann var eins
og stórt heimili stórrar fjölskyldu, jrar sem frú Björg og Páll Kolka
voru húsbændurnir, sem vöktu yfir öllu. Við komuna í nýja hús-
ið, gat jiað ekki orðið eins — starfsfólkinu fjölgaði, sjúklingunum
fjölgaði og allt varð smátt og smátt svo stórt í sniðum.
Margir aðstoðarlæknar hafa starfað hér við sjúkrahúsið og eru
sumir þeirra nú meðal þekktari lækna landsins. Eitt finnst mér
merkilegt. I jressari stétt hljóta að vera gallagripir eins og í öðrum
stéttum, en hér hafa engir gallagripir verið. Flestir þessir ungu
læknar hafa verið úrvalsmenn.
Aðstaðan hérna er orðin allgóð. Mest aðkallandi tel ég, að
byggja starfsmannaíbúðir. Það er gott að hafa eitthvað af starfsliði
búandi í húsinu, en það er ekki heppilegt, eins margt og starfsfólk-
ið er orðið, að Jrað búi allt í húsinu.
Hér þurfa að vera tveir læknar og hafa stúlku sér til aðstoðar,
sem getur starfað á rannsóknarstofu, við röntgen og annazt skrifleg
störf að einhverju leyti. Það á að létta þeirn störfum af lækninum,
sem hægt er, svo að hann geti sinnt læknisstarfi sínu, en þurfi ekki
að slíta kröftum sínum við skriftir, skýrslugerðir og auðveld rann-
sóknarstörf, sem fólk með minni menntun getur innt af hendi.
I framtíðinni held ég að ekki komi til mála að hægt verði að hafa
fullkomið sjúkrahús í hverju læknishéraði, en ég er alveg viss um
að á Blönduósi á að vera og verður fullkomið sjúkrahús.
Þó að Páll Kolka sé farinn, finnst mér hið góða andrúmsloft og
góði hugur þeirra hjóna fylgi þessari stofnun. Þau hjónin voru
bænheit og unnu henni og það er eins og Kolka hafi lagt á, að lán
og góðir læknar fylgi ætíð þessari stofnun.