Húnavaka


Húnavaka - 01.05.1966, Page 43

Húnavaka - 01.05.1966, Page 43
HÚNAVAKA 41 II. Hannes á Fjósum var sonur Gísla bónda í Köldukinn Jónssonar og seinni konu hans, Sigþrúðar Hannesdóttur frá Tindum. Ólst hann upp með foreldrum sínum í Köldukinn og hóf svo búskap á Fjósum vorið 1861. Um líkt leyti kvæntist hann Þórunni Þorsteins- dóttur bónda á Æsustöðum, Ólafssonar. Samfarir þeirra lijóna urðu skammar, því að Þórunn lézt af barnsförum eftir eins árs sambúð, og var hún þá einungis 25 ára. Fóru móðir og barn í sömu gröl;. Hannes átti svo Sigríði Einarsdóttur frá Svínavatni, bróðurdóttur Jósefs Skaftasens læknis í Hnausum og konu hans Ingibjargar Björnsdóttur. Ingibjörg hafði alizt upp á Svínavatni hjá alnöfnu sinni Ingibjörgu Björnsdóttur, er þar hafði búið í hálfa öld um aldamótin 1800. Var Ingibjörg yngri sonardóttir Valgerðar systur Ingibjargar á Svínavatni og hafði sama ættin setið þá jörð síðan 1754. Hannes Gíslason var góður bóndi og sérstaklega vinsæll. Hann byggði upp allan bæ sinn á árunum 1870—1880. Hann gegndi hrepp- stjórastörfum í Bólstaðarhlíðarhreppi nokkur ár og þótti vel takast. Refaskytta var hann svo mikil, að með fádæmum var. Þótti hann taka öllum fram í nálægum sýslum. Mun hann hafa lagt að velli nálægt þrjú þúsund dýrum. Um þau afrek hans skrifaði Jóhann Sigvaldason hreppstjóri í Mjóadal í blaðið Norðanfara á Akureyri. Jónas Illugason lýsir Hannesi svo: Hann var ljúfmenni hið mesta, greindur vel, hjálpsamur og góðgjarn, ölkær í meira lagi. Hann var vart meðal maður á vöxt, manna frískastur á fæti á yngri árum. Þegar kom fram undir 1880 fór Hannes að leggja sig eftir smá- skammtalækningum. Var hann lángefinn við það sem annað. Oft var hann sóttur til sjúklinga og fengin hjá honum meðöl, og það jafnvel úr fjarlægum sveitum. Vorið 1882 gekk hér skæð mislingasótt, sem olli miklu mann- tjóni, enda hafði faraldur sá ekki gengið um Húnavatnssýslu síðan 1843. Gat því megin hluti fólksins tekið veikina, enda varð ástandið víða hið hörmulegasta. Var ekki einsdæmi að allt heimilisfólkið lægi samtímis. Hannes á Fjósum átti mjög annríkt í mislingafaraldr- inum. Var hann sóttur víðsvegar að og varð því oft að leggja nótt með degi.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Húnavaka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Húnavaka
https://timarit.is/publication/1122

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.