Húnavaka


Húnavaka - 01.05.1966, Page 80

Húnavaka - 01.05.1966, Page 80
78 HÚNAVAKA í tvö jafn stór herbergi, rúmin voru sex alls, þrjú í hvoru herbergi. Klukkan tifaði innan á skilþilinu og taldi tímann af nákvæmni. Fyrir sexrúðuglugganum á suðurstafninum voru hvít tjöld, en ekk- ert breitt fyrir litlu hliðargluggana, sem allir vissu í vestur. Þetta hús mun alltaf verða mitt traustasta vígi. Þar var ég ómálga barn borin á örmum ástríkrar móður. Þar gekk ég fyrstu sporin. Þar var ég umvafin kærleika og umhyggju ástvina minna. Þar lærði ég allt, sem gefur lífi mínu mest gildi, því að þar hef ég lifað mínar ljúfustu, og líka sárustu stundir. Á rúrni sínu inn við stafninn sat mamma og las. Hún var mjög bókhneigð, en gaf sér sjaldan tíma til lestrar á virkum dögum fyrr en seinast á kvöldin, oftast þegar allir voru háttaðir, því að hún var ákaflega dugleg og vinnusöm. Mamma fékk æfinlega lánaðar dansk- ar bækur hjá Guðmundi frænda sínum í Hvammi fyrir hátíðarnar. Þá las hún öllum stundum, sem luin gat. Það voru skemmtilegar stundir, sem fjölskyldan átti saman, þegar hún sagði langa kafla úr þessum dönsku bókum, því að hún hafði sérstaklega mikla frásagnar- hæfileika. Á borðinu stóð borðlampinn hennar, gylltur með hvít- um kúpli. Ekkert ljósfæri hef ég séð enn, sem mér hefur fundist bera jafn góða birtu og hann. Framar á húsgólfinu var komið fyrir borði. Við það sátu systur mínar og pabbi og Bjössi og spiluðu, en ég var of heimsk til að geta verið með í vistinni. Ég var samt ekkert óánægð, vissi að það yrði spilað við okkur púkk daginn eftir. Svo var líka Pétur minn að spila við mig eitthvert tveggja manna spil. Við höfð- um ágæta birtu af kertunum, sem ég kom fyrir á rúmgaflinum og eins uppi á hillunni, sem var yfir höfðalaginu á rúminu, sem við sátum á. Við notuðum barnaspilin, sem amma sendi mér, og ég hló þegar vinnulúnar hendur vinar míns „áttu bágt með að góma þessar litlu grýtur“, eins og hann komst að orði um spilin. Ég var montin af systrum mínum þetta kviild. Mér fundust þær svo falleg- ar og fínar, bjartur og litfagur hörundslitur þeirra og ljósu hár- lokkarnir skáru svo fagurlega af við dökkan klæðnaðinn. Ólöf var alvarleg og fylgdi spilaganginum með athygli. En smábros lék ann- að slagið um varir Jónu og kæmi eitthvað spaugilegt fyrir gerði hún sér óspart gaman af því. Húslesturinn þetta kvöld fannst mér torskilinn, fannst einnig pabbi fletta of mörgum blöðum í bókinni, enda var lesturinn langur og ég orðin syfjnð.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Húnavaka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Húnavaka
https://timarit.is/publication/1122

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.