Húnavaka - 01.05.1966, Qupperneq 118
116
HÚNAVAKA
Að lokinni sauðfjárslátrun var
slátrað nautgripum og síðast
hrossum og stóð sú slátrun fram
í nóvember. Alls var slátrað 1000
stórgripum.
Innlögð mjólk á árinu 1965
var 3,685 tonn með 3,66 prósent
meðalfitu. Aukning á mjólkur-
magni frá því árið áður reyndist
4,5 prósent.
Þessir 4 bændur lögðu inn yf-
ir 60 þús. kg. mjólkur:
Kristófer Kristjánson, bóndi,
Köldukinn, 67.530 kg með
3,59% fitu.
Ingvar Þórleifsson, bóndi, Sól-
heimum, 61.099 kg. með 3,64%
fitu.
Heiðar Kristjánsson, bóndi,
Hæli, 60.514 kg. með 3.59%
fitu.
Torfi Jónsson, bóndi, Torfa-
læk, 60.374 kg. með 3.78%
fitu.
Árið 1965 var mesta vélakaupa-
ár í sögu K. H. Bændur keyptu
fleiri vélar en á nokkru einu ári
áður. Aukin kaup á dráttarvél-
um munu að nokkru stafa af því,
að nú um áramótin hækka þær
í verði, vegna þess að þá ganga í
gildi lög, sem ákveða að hér eft-
ir skuli allar dráttarvélar seldar
með öryggisgrind eða húsi.
Vörusala K. H. nam tæpum 47
millj. kr. árið 1965. Seld voru
1900 tonn af áburði og um 1200
tonn af fóðurbæti.
Samvinnufélögin greiddu 15,9
millj. kr. í vinnulaun á árinu.
Bygging Reykjaskóla við Reykja-
braut hafin.
Hafizt var handa um byggingu
á glæsilegum heimavistarbama-
skóla á Reykjum við Reykja-
braut. Eru nú þegar sex af átta
sveitahreppum í Austur-Húna-
vatnssýslu eignaraðilar að þessu
mikla mannvirki.
Keypt var 5 hektara lóð af
Páli Kristjánssyni bónda á Reykj
um. Teikningar af skólanum
voru samþykktar og byggingar-
framkvæmdir við grunn heima-
vistarálmu hafnar. Steyptir voru
jarðsökklar hennar, en eigi
vannst tími til frekari fram-
kvæmda í ár. Yfirsmiður var Þór
Þorvaldsson Sauðárkróki. Fyrir-
hugað er að gera heimavistarálm-
una fokhelda næsta sumar og
einnig kennaraíbúðir, þar sunn-
an við. Leitað mun verða tilboða
í þessar framkvæmdir.
Heildarkostnaður framkvæmda
ásamt teikningum, er orðinn um
1,8 millj. kr.
Frá Sparisjóði Skagastrandar.
Innstæður í sparisjóðnum
námu í árslok 1965 4 millj. og
453 þús. kr., en voru 2,6 millj.
kr. í ársbyrjun. Þær hafa því