Læknablaðið - 01.12.2015, Qupperneq 41
l Ö G F R æ ð i 1 6 . P i S T i l l
Læknar eru hvattir til að koma á framfæri við
ritstjórn eða pistlahöfund ábendingum um efni.
Dögg
Pálsdóttir
lögfræðingur
Læknafélags Íslands
Dogg@lis.isRáðningarsamningur
og launaviðtal
Eitt meginmarkmið Læknafélags Íslands
í kjaraviðræðum þeim sem leiddu til nýs
kjarasamnings hinn 7. janúar 2015 var að
stækka launatöflu lækna. Þetta markmið
náðist. Frá 1. janúar síðastliðnum gildir ný
og stærri launatafla fyrir lækna. Í gömlu
launatöflunni voru fjórir launaflokkar, 100
fyrir kandídata, 200 fyrir almenna lækna,
300 fyrir sérfræðilækna og 400 fyrir yfir-
lækna. Launaflokkarnir eru nú 100 fyrir
kandídata, 200-205 fyrir almenna lækna,
300-307 fyrir sérfræðilækna og 400-407
fyrir yfirlækna.
Í fylgiskjali II með kjarasamningnum
er nánar lýst starfsbundnum þáttum sem
hafa vægi til launahækkunar, annaðhvort
tímabundið eða varanlega. Læknar geta að
hámarki hækkað um fimm launaflokka á
grundvelli þessara viðbótarþátta.
Með viðbótarþáttum er átt við starfs-
bundna þætti sem umbuna skal fyrir sér-
staklega. Viðbótarþættirnir sem hér koma
til skoðunar snúa að stjórnun, kennslu,
gerð vaktaáætlana, sérstökum verkefnum,
rannsóknum, gæðastarfi, teymisvinnu,
þróunarvinnu, nýsköpunarvinnu, auknu
aðgengi að þjónustu og sérþekkingu. Við-
bótarþáttunum er nánar lýst í fylgiskjali
og vísast til þess. Kjarasamningurinn
ásamt bókunum og fylgiskjölum er að-
gengilegur á bæði innri og ytri vef heima-
síðu Læknafélags Íslands undir flipanum
Kjaramál.
Hækkanir samkvæmt fylgiskjali II mið-
ast við 1. júní 2015. Af ýmsum ástæðum
dróst undirbúningsvinna vegna þessa.
Heilbrigðisstofnanir hafa nú fengið bréf
frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu þar
sem fram kemur að mikilvægt sé að stofn-
anir fari að greiða læknum laun í sam-
ræmi við fylgiskjal II um nýtingu starfs-
bundinna þátta. Í bréfinu segir: „Eðlilegast
er að stofnanir efni til starfsmannasamtala
við lækna til að ræða mögulegar hækkanir
samkvæmt fylgiskjali II.“
LÍ hvetur lækna til að kalla sem fyrst
eftir starfsmannasamtali vegna fylgiskjals
II. Góður undirbúningur slíks samtals
er mikilvægur og minnt er á mögulegan
stuðning frá starfsmönnum félagsins
vegna þess undirbúnings.
Nýr kjarasamningur gefur læknum
sem eru að ráða sig til starfa nýja og aukna
möguleika til að semja um laun sín. LÍ
gengur út frá því að áður en læknir ræður
sig til starfa þurfi launagreiðandinn að
semja við hann um þau laun sem hann
fær fyrir starf sitt og þá starfsbundnu
þætti sem hann tekur að sér gegn við-
bótarlaunum. LÍ lítur svo á að þegar al-
mennur læknir eða sérfræðilæknir ræður
sig til starfa á heilbrigðisstofnun fari fram
launaviðtal þar sem fulltrúi stofnunar og
læknirinn semja um launin. Það er skoðun
LÍ að það sé ekki lengur sjálfgefið að byrj-
unarlaun almennra lækna sé launaflokkur
200 og sérfræðinga 300. Í grein 3.2.1 í
kjarasamningnum segir skýrt að læknir
raðist í launaflokk 200-205 og læknir með
sérfræðileyfi raðist í launaflokka 300-307.
Hvar innan 200 launaflokksins almenni
læknirinn raðast og hvar innan 300
launaflokksins sérfræðingur raðast getur
aldrei orðið annað en samningsatriði milli
læknis / sérfræðings og launagreiðanda
og tekur mið af því hvaða verkefni við-
komandi tekur að sér, umfram daglegar
starfsskyldur, sem umbuna skuli fyrir sér-
staklega samkvæmt reglum fylgiskjals II.
Lögum samkvæmt ber að gera ráðning-
arsamning við hvern og einn lækni, áður
en hann hefur störf. Þetta er áréttað í grein
2.1.1 í kjarasamningi lækna. LÍ hvetur
lækna til að gæta þess að skrifa ekki undir
ráðningarsamning fyrr en þeir hafa fengið
launaviðtal þar sem laun eru ákveðin. LÍ
veit til þess að sumar heilbrigðisstofnanir
hafa skorast undan slíkum launaviðtölum
og jafnvel gengið svo langt að raða lækn-
um sem hefja störf einhliða í launaflokk.
Þetta telur LÍ vinnubrögð sem ekki er
unnt að una við. Laun eru samningsatriði
og nýr kjarasamningur gefur talsvert
svigrúm fyrir lækna til að semja um laun
sín. LÍ þekkir dæmi þess að þrátt fyrir
nýjan kjarasamning raði stofnanir læknum
í launaflokk 200 eða 300 við ráðningu og
lofi launaviðtali „seinna“. Svo líður og
bíður og ekkert verður af launaviðtali. Þá
þekkir LÍ dæmi þess að læknum hafi verið
stillt upp við að „verða að skrifa undir
ráðningarsamning“ þó launaviðtal hafi
ekki farið fram svo unnt sé að opna fyrir
þá aðgang að tölvukerfum stofnunar og
fleiru álíka. LÍ telur að slík vinnubrögð
eigi ekki að tíðkast. Það er ábending LÍ til
félagsmanna sinna að skrifa aldrei undir
ráðningarsamning og hefja aldrei störf
hjá heilbrigðisstofnun fyrr en skýrt hefur
verið samið um það í launaviðtali milli
hans og launagreiðanda hver launakjörin
verði.
Það er ekki sjálfsagt að taka fyrsta til-
boði um laun. Fylgiskjal II spilar hér sterkt
inn í og læknir þarf að gæta þess að taka
ekki að sér starfsbundna þætti skv. því
án þess að fá fyrir það umbun með röðun
í hærri launaflokk. Það skiptir miklu að
undirbúa launaviðtalið vel. Starfsmenn LÍ
eru læknum til stuðnings í þeim undir-
búningi. Læknar geta leitað til skrifstofu
LÍ og fengið margvíslegar upplýsingar
bæði um kjarasamninginn og hver launa-
kjör lækna eru samkvæmt þeim gögnum
sem LÍ hefur undir höndum.
Heimildir
1. Kjarasamningurinn er hér: lis.is/Assets/Kjara-
samn ingar/2014.01.07-Kjarasamningur%20
L%C3%8D_N%C3%9DR.pdf
2. Frétt á innri vef heimasíðu LÍ um fylgiskjal II: innri.lis.is/
forsida/frettir/nanar/7951/bokun-4-og-fylgiskjal-ii-med-
kjarasamningi-
3. Bréfið er á innri vef heimasíðu LÍ: innri.lis.is/Assets/
Fr%C3%A9ttir/L%C3%A6knaf%C3%A9l%20
%C3%ADsl%20br%C3%A9f.pdf
LÆKNAblaðið 2015/101 597