Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.2007, Page 42
Hér má líklega sjá þrætuepli frá elstu máldögunum. Kirkju bólsfólk og
íbúar þeirra jarða sem þangað greiddu tíundir voru ekki skyldugir að
sækja messu á Eyri og meðan ekki var messað að Kirkjubóli fékk klerkur
ekki sinn hlut þaðan.
Erindi sr. Jóns og Ragnheiðar fara, hvort í sínu lagi, til biskups og
amtmanns. Þeir bera sig saman og senda málið utan.103 Svarið var einfalt.
Annars vegar var vísað í bréf konungs frá 1717 og hins vegar í erindisbréf
Knúts Steens frá 1555 og 1556 (þar með Bessastaðasamþykkt).104 Þar með
hafi Ragnheiður heimild til að taka kirkjuna niður. Til eigenda Kirkjubóls
falli helmingur eigna kirkjunnar. Sr. Jóni beri samt sem áður tekjurnar sem
hann hefði haft af henni og voru fundnar reglur til þess. Eyrarkirkju beri
hinn helmingurinn af eignum hennar sem og allir innanstokksmunir sem
messuhaldi tilheyri. Það sem móðurkirkjunni henti ekki beri að selja á
uppboði og gera greinargerð þar um.105 Þar með má áætla að kirkjan hafi
verið tekin niður ef til vill strax vorið 1735. Innanstokksmunir, bekkir,
altari, stóll, kertastjakar, patína o.s.frv. hafa farið til Eyrarkirkju annaðhvort
beint eða verið seldir að loknu uppboði. Um það finnast ekki reikningar
eða heimildir. Fróðlegt væri að vita, þótt það sé ekki skoðað hér, hvort
sama aðferð hafi verið notuð til að leggja niður aðrar kirkjur og bænhús á
þessum tíma.
Lokaorð
Að Kirkjubóli voru rannsakaðar minjar um kirkjugarð og kirkju. Kirkjan
var fyrst byggð á miðöldum sem hornstólpakirkja, líklega um 1300 eða
fyrr. Hún var rifin á fjórða áratugi 18. aldar og eftir það var rústin notuð
sem skemma um tíma. Allskýrar minjar fundust um gerðþróun kirkjunnar
sem var hálfkirkja eða bænhús. Sjá mátti merki um 3-4 byggingarskeið.
Í garðinum voru líkamsleifar illa farnar og því erfitt að ná þeim upp.
Hluti þeirra var jarðsettur í nýjum kirkjugarði á Ísafirði eftir aukafund
bæjarstjórnar106 en fjórar beinagrindur fóru á Þjóðminjasafnið til frekari
rannsóknar og varðveislu.107
Miðað við fjölda grafa er það tilgáta mín að grafirnar hafi tilheyrt
fyrri hluta tímabilsins og að greftranir hafi lagst af þegar kom fram yfir
siðaskipti.
Ritheimildir um kirkjuna eru ríkulegar og þar með finnst greinargóð
lýsing á kirkjunni frá 18. öld. Að auki eru til mörg bréf um málefni
hennar, þ.á.m. dómsmál frá 17. öld og um niðurlagningu hennar.
Ef menn leyfa sér að lesa milli línanna í þessum skjölum má lesa út að
KIRKJUBÓL VIÐ SKUTULSFJÖRÐ 41