Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2009, Side 20
Föstudagur 29. maí 200920 Fréttir
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vest-
mannaeyjum, segir tæknilega
ómögulegt fyrir bæjarfulltrúa að
verða vanhæfir til þess að fjalla um
mál í bæjarráði eða bæjarstjórn þeg-
ar ekki er um að ræða afgreiðslu þess
eða ákvarðanir heldur einvörðungu
kynningu á því.
Tekist hefur verið á um lögmæti
ráðninga á tveimur mönnum í störf
hjá Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja.
Arnsteinn Ingi Jóhannesson, ný-
ráðinn forstöðumaður Íþróttamið-
stöðvarinnar, er eiginmaður Páleyjar
Borgþórsdóttur lögfræðings, en hún
er formaður bæjarráðs Vestmanna-
eyjabæjar af D-lista. Vignir Guðna-
son, sem ráðinn hefur verið í hluta-
starf við Íþróttamiðstöðina, er faðir
Elliða bæjarstjóra. Vignir hefur um
áratugaskeið verið hjá Vestmanna-
eyjabæ í öðru starfi.
Elliði áréttar að störfin hafi ver-
ið auglýst og ráðið í störfin af sviðs-
stjóra fjölskyldu- og félagsmálasviðs
bæjarins. „Þessar ráðningar hafa ekki
komið fyrir hið pólitíska auga nema
sem kynning í gögnum sem lögð eru
fyrir bæjarráð.“
Ábyrgð hjá bæjarstjórn
Fyrir réttu ári var staða forstöðu-
manns Íþróttamiðstöðvarinnar
auglýst laus til umsóknar. Þá sóttu
nokkrir um stöðuna og reyndust að
minnsta kosti tveir til þrír vel hæfir.
Einn umsækjendanna þá var Arn-
steinn, eiginmaður Páleyjar, forseta
bæjarstjórnar.
Úr varð að Arnsteinn var ráðinn til
afleysinga. Þannig var hjá því kom-
ist að bæjarráð og bæjarstjórn fjöll-
uðu sérstaklega um ráðninguna. Í
sveitarstjórnarlögum er kveðið á um
að sveitarstjórnir ráði starfsmenn í
helstu stjórnunarstöður hjá sveit-
arfélagi og stofnunum þess og veiti
þeim lausn frá starfi.
Á síðasta ári var samþykkt starfs-
mannastefna Vestmannaeyjabæjar.
Þar er til þess ætlast að bæjarstjórn
ráði bæjarstjóra og aðra starfsmenn
í helstu stjórnunarstöður svo sem
framkvæmdastjóra fagsviða. „Fram-
kvæmdastjórar ráða aðra starfsmenn
með vitund bæjarstjóra.“
Umsækjandi krafðist skýringa
Að minnsta kosti einn umsækjandi,
Jóhanna Jóhannsdóttir, gerði athuga-
semdir við ráðninguna í fyrrasumar
og bað um skýringar og rökstuðning,
ekki aðeins frá Jóni Péturssyni sviðs-
stjóra heldur einnig bæjarráði. Jón
svaraði í fyrrasumar að um væri að
ræða tímabundna ráðningu í stöð-
una sem hann annaðist. Öðru máli
gegndi ef ráða ætti nýjan starfsmann
í stjórnunarstöðu; um slíkt tæki bæj-
arstjórn ákvörðun.
Athyglisvert er að starfsmanna-
stefnan er samin nokkrum mánuð-
um eftir að Jón svaraði Jóhönnu og
á þeim tíma þegar Arnsteinn gegndi
stöðunni til afleysinga. Jón segir hins
vegar á vefmiðlinum eyjafrettir.is í
gær að unnið hafi verið að öllu leyti
eftir samþykktri starfsmannastefnu
bæjarins.
Hæglega má álykta að forstöðu-
maður Íþróttamiðstöðvar Vest-
mannaeyjabæjar sé stjórnunarstaða
hjá „sveitarfélagi og stofnunum þess“
eins og segir í sveitarstjórnarlögun-
um. Sé þessu þannig varið bar bæjar-
ráði og bæjarstjórn að ráða í starf for-
stöðumanns Íþróttamiðstöðvarinnar
en ekki Jóni Péturssyni sviðsstjóra.
Á grÁu svæði
með ei inmanninn
Hart er deilt í Vestmannaeyjum vegna ráðningar á tveimur vensla- og skyldmennum bæjarfulltrúa í störf hjá
Íþróttamiðstöð bæjarins. Sveitarstjórnarlög kveða á um að bæjaryfirvöld ráði í stjórnunarstöður hjá sveitarfé-
lögum og stofnunum þess.
„Þessar ráðningar hafa ekki
komið fyrir hið pólitíska auga
nema sem kynning í gögnum
sem lögð eru fyrir bæjarráð.“
Jóhann haUksson
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Bæjarstjórinn tæknilega er
ómögulegt fyrir bæjarfulltrúa að verða
vanhæfir til þess að fjalla um mál í
bæjarráði eða bæjarstjórn þegar ekki
er um að ræða afgreiðslu þess eða
ákvarðanir, segir Elliði.