Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2009, Qupperneq 22
Föstudagur 29. maí 200922 Fréttir
VIKINGAHEIMAR
REYKJANESBÆ
SÖGULEG SKEMMTUN!
VÍKINGASKIPIÐ ÍSLENDINGUR OG SMITHSONIAN SÝNINGIN VIKINGS Í VÍKINGAHEIMUM Í REYKJANESBÆ - OPIÐ ALLA DAGA MILLI 11:00 & 18:00 - SÍMI 422 2000 - WWW.VIKINGAHEIMAR.COM
DV0905284734
DV0905287364
DV0905286229
DV0905289904
Sýningarsalur skammt frá hlutlausa svæðinu milli Norður- og Suður-Kóreu
Ferðamaður skoðar myndir af Kim Jong-il, hinum „ástkæra föður“.
„Ég veit að ég sæti gagnrýni í heiminum, ef ég er umtalaður hlýt ég að vera að gera réttu hlutina.“
Kim Jong-il, hinn „ástKæri faðir“
Í huga umheimsins er Kim Jong-il,
leiðtogi Norður-Kóreu, ráðgáta að
mörgu leyti og ekki fráleitt að ætla að
hann fagni þeirri goðsögn sem virð-
ist umlykja hann og styrki hana vit-
andi vits til að halda Vesturlöndum í
óvissu. Hingað til hefur Norður-Kór-
ea ekki haft úr miklu að moða sem
einhverja vigt hefði í alþjóðasam-
skiptum, en nú er öldin önnur.
Sendifulltrúar og andófsmenn
sem flúið hafa land hafa lýst Kim
Jong-il sem hégómlegum, tortryggn-
um, koníaksþambandi vænisjúkl-
ingi, en greinar hafa ekki komist að
niðurstöðu um hvort sérviska hans
sé gríma slægs manns sem er meist-
ari í kænskubrögðum eða hvort hún
afhjúpi órökrænan brjálæðing.
Kim Jong-il er vel meðvitaður
um hve umdeildur hann er, en sam-
kvæmt orðum hans má ætla að það
sé ekki af hinu illa: „Ég veit að ég sæti
gagnrýni í heiminum, ef ég er um-
talaður hlýt ég að vera að gera réttu
hlutina.“
Kvikmyndaáhugamaður
Sagt hefur verið að Kim Jong-il eigi
safn 20.000 Hollywood-kvikmynda
og hafi jafnvel skrifað bók um kvik-
myndir. Uppáhaldsmyndir hans eru
sagðar vera Friday the 13th, Rambo,
James Bond og Godzilla og reynd-
ar allar myndir sem skarta Elizabeth
Taylor.
Hægt er að sjá spaugilegu hliðina
á dálæti Kims Jong-il á James Bond,
en áhöld eru um hvort hann sé hrifn-
ari af Bond eða andstæðingi hans
sem oftar en ekki er illmenni sem
hyggst stefna jörðinni í glötun. Tíma-
ritið Newsweek uppnefndi Kim Jong-
il „Dr. Evil“ í janúar 2003 og skírskot-
aði til skúrks í grínmynd í anda James
Bond.
Reyndar gekk Kim Jong-il svo
langt árið 1978 að láta ræna Chie Eun
Hee, frægustu kvikmyndastjörnu
Suður-Kóreu, og eiginmanni hennar,
Shin Sang Ok kvikmyndaframleið-
anda. Þau neyddust til að gera röð
áróðurskvikmynda fyrir Kim Jong-il,
áður en þeim tókst að flýja eftir níu
ár. Þess má geta að þetta gerðist áður
en Kim Jong-il tók við valdataumun-
um í Norður-Kóreu.
Lífsins lystisemdir
Smekkur Kims Jong-il fyrir því fram-
andlega nær yfir fleira en erlend-
ar kvikmyndir og matargerðarlist er
nokkuð sem hann lætur sig varða.
Kim Jong-il ku vera flughræddur,
sem hann kann að hafa fengið í arf
frá föður sínum, og hefur farið í op-
inberar ferðir til Rússlands og Kína í
brynvarinni lest.
Rússneskur sendimaður, Kon-
stantin Pulikovsky, sem eitt sinn var
í fylgd hins „ástkæra leiðtoga“ Norð-
ur-Kóreu á ferðalagi í Rússlandi í
brynvarinni einkalest skýrði frá því
að hann hefði látið fljúga með lifandi
humra í veg fyrir lestina daglega, og
humarsins neytti Kim Jong-il með
silfurprjónum.
Mennirnir tveir drukku kampa-
vín í félagsskap „íðilfagurra og vel
gefinna“ kvenna, en í huga sumra
er Kim Jong-il smávaxinn glaum-
gosi og öflugur drykkjumaður. Það
er reyndar mynd sem er á skjön við
þá stjórnarhætti sem honum eru til-
einkaðir.
Þegar Kim Jong-il hitti Kim Dae-
jung, forseta Suður-Kóreu, árið 2000
vakti athygli að hann drakk tíu glös
af víni á meðan fundur þeirra stóð
yfir. Annars hefur Kim Jong-il mikið
dálæti á Hennessy VSOP-koníaki.
Leiðin á toppinn
Dulúðin sem umlykur Kim Jong-il
nær allt aftur til fæðingar hans. Hann
fæddist í Síberíu árið 1941, en þá var
faðir hans í útlegð þar sem þá voru
Sovétríkin. Reyndar ber þeim upp-
lýsingum ekki saman við norðurkór-
esk skjöl og yfir þeim hvílir ævintýra-
legur ljómi. Samkvæmt þeim kom
Kim Jong-il í heiminn í bjálkakofa í
skæruliðabúðum Kim Il-sung, föður
hans, á Baektu, hæsta fjalli Norður-
Kóreu, í febrúar 1942, og segir sagan
að tvöfaldur regnbogi og björt stjarna
á himni hafi auðkennt viðburðinn.
Kim Jong-il, leiðtogi Norður-Kóreu, hef-
ur verið ráðgáta í augum umheimsins
til langs tíma. Nú hefur Norður-Kórea
ákveðið að henda fyrir róða samkomulagi
sem stöðvaði Kóreustríðið fyrir meira en
fimmtíu árum og Suður-Kóreumenn og
bandarískir bandamenn þeirra eru í við-
bragðsstöðu. Lítið fer fyrir friðarboðskap
hjá stjórnvöldum Norður-Kóreu.
KoLbeinn þorsteinsson
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Kim Jong-il Heiðraður af
norðurkóreskum hermönnum.