Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2009, Side 31
Föstudagur 29. maí 2009 31Fókus
Tónlistarhátíðin AIM Festival á Ak-
ureyri hefst í dag, föstudag, en hátíð-
in er nú haldin í fjórða sinn. Hátíðin
verður sett með flugdansi loftlista-
mannsins Arngríms Jóhannssonar
en hann ætlar að leika listir sínar
undir Flugvalsi Jóns Hlöðvers Ás-
kelssonar. Lagið verður flutt sam-
tímis í útsendingartíma Útvarpi
Norðurlands klukkan 17.30 í dag.
Fyrstu tónleikarnir af mörgum á
AIM Festival í ár verða svo á Græna
hattinum á föstudagskvöldinu þeg-
ar hljómsveitin Hjálmar stígur á
svið. Hjálmar eru uppfullir af nýj-
um straumum beint frá Jamaíka
þar sem þeir voru að taka upp sína
fjórðu hljómplötu. Á dagskránni
með Hjálmum þetta kvöld er unaðs-
sveitin Retro Stefson og pönksveitin
Buxnaskjónar sem eru nýkrýndir
sigurvegarar úr hljómsveitarkeppni
AIM Festival, besti byrjandinn.
Stórsveitir eru áberandi á dag-
skrá AIM Festival í ár. Nýstofnuð
Stórsveit Akureyrar undir stjórn
Spánverjans Alberto Carmona, sem
er mjög þekktur stjórnandi í Evr-
ópu þrátt fyrir ungan aldur, leikur á
Græna hattinum á laugardagskvöld.
Eitt áhugaverðasta atriði Listahátíð-
ar Reykjavíkur, saxófónsnillingurinn
Bob Mintzer, heiðrar svo hátíðina
með nærveru sinni og spilar með
Stórsveit Reykjavíkur í Ketilhúsinu
á hvítasunnudag. Á meðal annarra
flytjenda á hátíðinni eru Ný dönsk,
Deep Purple Tribute ásamt Eyþóri
Inga, Reykjavík!, Sudden Weather
Change, Megasi og Senuþjófunum.
AIM Festival lýkur ekki fyrr en á
fimmtudaginn í næstu viku þegar
Mótettukór Hallgrímskirkju flytur
nýsamið verk eftir Jón Hlöðver Ás-
kelsson í Akureyrarkirkju.
Nánar á aimfestival.is.
m
æ
li
r
m
eð
...
The BoaT ThaT Rocked
góðir leikarar, skotheldur sögu-
þráður og
geðveik
tónlist.
X-men
oRigins:
WolveRine
góður leikur með
skemmtilegum
viðbótum við
sögu myndarinnar.
gRillhúsið
TRyggvagöTu
Hinn ágætasti
skyndibitastaður.
Úrvalið gott og
þjónustan fín.
hagsýni og hamingja
Lára Ómars-
dóttir býður
góð ráð um
hvernig komast
má í gegnum
kreppu.
alfReð elíasson og
lofTleiðiR
Vel þess virði að sjá
myndina þótt einhver
segði að jafnmagnaður
maður ætti skilið
magnaðri mynd.
gullfoss seafood
& gRill
slök þjónusta, löng bið, frosið
brauð, volgt kaffi og hringorm-
ur. Blaðamaður gerði ekki góða
ferð á gullfoss seafood & grill.
m
æ
li
r
eK
Ki
m
eð
...
föstudagur
n kk í Borgarnesi
snillingurinn KK verður í mennta-
borg í Borgarnesi á föstudagskvöldið
en ætlar að ferðast um landið með
öll sín helstu lög í farteskinu. Hann
mun einnig spila ný lög af plötunni
svona eru menn en 2.000 krónur
kostar inn í menntaborgina og
hefjast herlegheitin klukkan 21.00.
n Blúshátíð í Rangárvallasýslu
Haldin verður Blúshátíð í rangár-
vallasýslu um hvítasunnuhelgina
undir nafninu „Norden Blues
Festival“. Það er Hekla Blúsfélag sem
stendur fyrir hátíðinni. tónleikar
verða haldnir á 11 stöðum og eru
skipulagðir tónleikar á hátíðinni
liðlega 40 talsins. 2.900 krónur kostar
inn.
n svört föt á Players
Hressasti söngvari íslands, Jón
Jósep snæbjörnsson eða Jónsi,
verður ásamt svörtu fötunum sínum
á Players um helgina. miðar eru
seldir á miði.is og við innganginn en
tónleikarnir hefjast klukkan hálf eitt
á föstudagskvöldið.
n Taggað á prikinu
Það verður krotað á veggi á
föstudagskvöldið á Prikinu ef veður
leyfir en þar verður haldið tagg-partí.
Plötusnúður mun halda uppi fjörinu
og verða veitingar í boði. Vilji menn
krota á veggi við dillandi undirspil
hefst partíið klukkan 21.00.
n Tígurliljur í Óperunni
Breska tríóið tiger Lillies hefur aldrei
brugðist því hlutverki sínu að koma
áheyrendum og áhorfendum á
óvart með sínum einstöku og allt að
því afbrigðilegu tónlistartilþrifum.
tríóið verður í íslensku óperunni á
föstudagskvöldið og kostar 3.500
krónur inn.
laugardagur
n jet Black joe á 800 Bar
strákarnir í Jet Black Joe kunna að
trylla lýðinn. Það gerist ekki mikið
betra en Jettara-ball. staðurinn 800
er eins árs þetta kvöldið og af því
tilefni verða afmælistilboð á barnum.
Húsið er opnað klukkan 23 og kostar
2000 krónur inn.
n hugarástand á jacobsen
tíu ára afmælishátíð Hugarástands
verður haldin með pompi og pragt
í kvöld. sérstakt afmælispartí verður
til miðnættis en þá byrjar fjörið
fyrir alvöru. arnar og Frímann þeyta
skífum fyrir lýðinn. Þú vilt ekki missa
af þessu.
n stjórin á Players
stjórnin, hin eina sanna, mun stíga á
svið á Players í kvöld. sigga Beinteins
og grétar örvars taka alla gömlu
góðu slagarana. Fjörið hefst upp úr
miðnætti og er hægt að kaupa sig
inn við innganginn.
n stelpukvöld á Prikinu
Bara stelpur leyfðar allt kvöldið.
rauðvín og hvítvín á tilboði á barn-
um. dj moonshine þeytir skífunum.
Opið til klukkan þrjú.
n Reyk Week á nasa
Helstu dansplötusnúðar landsins eru
komnir saman eitt kvöld til þess að
gera allt brjálað. aldurstakmark er
20 ára og það kostar 500 krónur inn.
Húsið opnað klukkan 23.
Hvað er að
GERAST?
Jamaíkabrúnir Hjálmar
hjálmar Koma ferskir
frá Jamaíka að spila á
aIm Festival.
mynd gúndi
gjört dæmi um það hversu heim-
ildarmyndaformið er teygjanlegt.
Myndin fjallar um þrjá vini sem hitt-
ast á bryggju og leggja drög að nýrri
hljómsveit. Þar er stemningin keyrð
áfram af bjór og sígarettum. Síðan er
önnur mynd eftir Pál Steingrímsson
sem heitir Undur vatnsins. Þar stúd-
erar hann vatn í kringum íslenska
náttúru. Þarna er langt á milli mynda
en samt er þetta á einhvern hátt
tengt,“ segir Huldar og viðurkenn-
ir að kreppan setji sitt mark á hátíð-
ina. Ekki fjárhagslega heldur í efnis-
tökum myndanna. „Í flokknum verk í
vinnslu er kreppan að koma inn. Þar
erum við til dæmis með mynd eftir
Ara Alexander sem heitir Aumingja
Ísland og svo er annað skemmtilegt
verkefni sem heitir Íslenska krónan.
Þar er ætlað að fjalla um fall krónunn-
ar og framtíð hennar á aðgengilegan
og skemmtilegan hátt,“ segir Huldar
en hljómborðsleikari Sprengjuhall-
arinnar, Atli Bollason, er annar höf-
unda myndarinnar um krónuna.
koma ekki til Reykjavíkur
Ekkert umfjöllunarefni er hátíð-
inni óviðkomandi og segir Huldar
að engri mynd hafi verið vísað frá
vegna þess. Í ár þurfti samt í fyrsta
skiptið að vísa myndum frá einfald-
lega vegna fjölda. „Við vonum bara
að þetta fólk komi aftur á næsta ári,“
segir Huldar. Ljóst er að
allir sannir áhugamenn
um heimildarmyndir mega hvergi
annars staðar vera en á Patreksfirði
um helgina þar sem þar er í raun eini
möguleikinn til að sjá myndirnar.
Það er ekkert framhald af hátíðinni
í Reykjavík. Aðspurður hvort aldrei
hefði komið til tals að framlengja há-
tíðina í kvikmyndahúsum Reykjavík-
urborgar sagði Huldar: „Það hefur
bara aldrei komið til tals. Það er bara
vonandi að myndirnar sjálfar finni
sér leiðir inn í kvikmyndahúsin eða
sjónvarpið Málið hefur bara verið að
fá enn fleiri Reykvíkinga vestur.“
úrslitin tilkynnt
eftir limbókeppni
Patreksfjörður hefur seint þótt mekka
bíógesta eða bíómenningar á Íslandi
og því athyglisverður staður til að
halda kvikmyndahátíð á. En hvað
kom til að þessi fallegi fjörður fyrir
vestan varð fyrir valinu? „Á Patreks-
firði er þetta Skjaldborgarbíó. Einn
af okkur sem sjá um hátíðina ramb-
aði inn í þetta bíó og átti ekki til orð.
Þarna er mjög fallegur rauður pluss-
klæddur salur og öll aðstaða fyrir
hendi. Það var eins og það væri bara
verið að bíða eftir því að eitthvað yrði
gert þarna. Við fórum að velta fyr-
ir okkur hvað væri skemmtilegt að
gera þarna og komum niður á heim-
ildarmyndahátíð. Það á líka ágætlega
við heimildarmyndagerðarmenn að
ferðast svolítið. Því er Patreksfjörð-
ur fínn staður,“ segir Huldar en mik-
ið er að gerast á staðnum í kringum
hátíðina.
„Fólk getur farið á sjóstöng og
svo er bjargið og Rauðasandur ekki
langt frá. En nú hafa bæjarbúar ver-
ið að koma meira og meira inn í
þetta. Þeir eru farnir að brydda upp
á hlutum eins og sumarmarkaði og
reiðhjólaleigu. Svo er fastur liður að
kvenfélagið á staðnum er með plokk-
fiskveislu fyrir hátíðargesti og einn-
ig er brjáluð sjávarréttaveisla í sjó-
ræningjahúsinu. Þetta endar svo allt
með limbókeppni í félagsheimilinu
þar sem áhorfendaverðlaunin eru af-
hent,“ segir Huldar.
hagamúsin er klikkuð
Heiðursgestur hátíðarinnar er mik-
ill meistari í heimildarmyndagerð,
Þorfinnur Guðnason. Þorfinnur á að
baki magnaðar myndir sem allir hafa
séð. Má þar helst nefna hina goð-
sagnakenndu mynd um hagamúsina
sem sýnd hefur verið í öllum skólum
landsins, myndina um Lalla Johns og
svo Draumalandið sem kom út í ár.
„Þorfinnur er náttúrlega frábær kvik-
myndagerðarmaður og sýnir manni
í hverri mynd hversu skemmtileg-
ur staður heimildarmyndin er,“ seg-
ir Unnar af mikilli innlifun um Þor-
finn.
„Hann á mjög frumlegan og heill-
andi feril þannig að það lá bara beint
við að bjóða honum að koma og ég
hlakka til að sjá myndirnar hans
á risastóru tjaldi. Ég er viss um að
Þorfinnur er stanslaus innspýting
og andagjöf fyrir þá sem eru að gera
heimildarmyndir á Íslandi,“ seg-
ir Unnar en myndir Þorfinns verða
sýndar í Skjaldborgarbíóinu um
helgina og ræðir hann feril sinn að
gestum viðstöddum. Skjaldborg er
málið og Patreksfjörður staðurinn
um helgina fyrir sanna áhugamenn
um heimildarmyndir.
tomas@dv.is
myndiRnaR á
skjaldBoRg
aumingja ísland mynd um þjóð sem
þekktust var fyrir fornbókmenntir, tónlist
og gjöful fiskimið en er í dag alræmd á
alþjóðavettvangi.
chukotka á hjara veraldar myndin
er um líf og vonir fólks á Chukotka-
landsvæðinu við norðurheimskautsbaug
í síberíu.
dularöfl snæfellsjök-
uls snæfellsjökull sem er í senn jökull
og eldfjall er þekktur um allan heim.
eldmessan Eldmessan er tölvugerð
mynd um skaftárelda og móðuharð-
indin.
feathered cocaine Fálkar eru stöðu-
tákn í Persaflóanum. Ef þú átt góðan
fálka ertu maður með mönnum.
gott silfur gulli betra myndin fjallar
um undirbúning handboltalandsliðsins
fyrir Ólympíuleikana í Peking 2008.
gus gus - sos Rescue operation
episode 1 í kreppu sem öðru er aðeins
eitt mikilvægast, að hárgreiðslan sé í lagi.
in and out of the Blue í myndinni
sem er frá árinu 1994 er varpað fram
spurningum um sjálfsmynd okkar
íslendinga.
íslensk alþýða í íslenskri alþýðu
skyggnumst við inn í nær 400 manna
samfélag sem er tignarlega afmarkað
innan grárra, steinsteyptra „borgarmúra“
mitt í Vesturbæ reykjavíkur.
íslenska krónan íslenska krónan er
heimildarmynd sem snýst um eitt mik-
ilvægasta málefni íslenskrar samtíðar:
Krónuna
íslenskt forystufé Eins og nafnið
bendir til fjallar myndin um sérstakt kyn
búfjár, sem haldist hefur óbreytt hér á
landi síðan á Landnámsöld
konur á rauðum sokkum í kvikmynd-
inni Konur á rauðum sokkum segja þær
sjálfar sögu einnar umdeildustu og
litríkustu hreyfingar íslandssögunnar.
living on the edge „Living on the
Edge“ er heimildarmynd um líf á
endamörkum hins byggða bóls í Evrópu,
íslandi.
lúðrasveit verkalýðsins og 200.000
naglbítar Árið 2007 ákváðu Lúðrasveit
verkalýðsins og 200.000 naglbítar að
gera saman plötu. meðlimir lúðrasveit-
arinnar eyddu öllum sínum frítíma í
verkefnið.
mona lisa & musteri hórunnar í
þessari tilraunakenndu heimildarmynd
fylgjumst við með stjörnugerðarmannin-
um BBPrince búa til mynd þar sem reynt
er að endurskapa þá stemningu sem ríkti
á ástandsárunum á íslandi.
Pólitískt bíó
sumarið 2005 fór hópur fólks upp að
Kárahnjúkum til þess að mótmæla
byggingu virkjunar sem sjá átti álveri
alcoa á reyðarfirði fyrir rafmagni.
save me í myndinni fylgjumst við
með fjölþjóðlegum leiðsögumönnum
að störfum við flúðasiglingu (rafting) í
ánum.
siRkus mynd um hinn goðsagna-
kennda skemmtistað í miðborg
reykjavíkur.
sjónarhorn Á menningarnótt 2008
tóku 50 manns, á aldrinum 5-67 ára, sér
vídeókameru í hönd og skjalfestu einn
klukkutíma af tónleikunum á miklatúni.
slingin’ the cream, livin’ the dream
í lok sumars 2004 ákvað ísmaðurinn
matt allen að halda svo kallað „Ice Cream
social“ í bænum ashland í Oregon-fylki
og gefa afgangsbirgðir sínar af íspinnum.
spói - lengra en nefið nær spóinn
er einn einkennisfugla í umhverfi
okkar. Það sem vekur athygli leikmanns
á þessum sérstæða fugli er dillandi
söngur hans sem ómar alls staðar þar
sem fuglinn ber niður bæði í lofti og á
jörðu.
sætir strákar í janúar síðastliðnum var
í framhaldsdeild FsN á Patreksfirði boðið
upp á áfangann „heimildarmyndagerð
103“. Ein af myndunum sem voru sýndar
þar er „sætir strákar“ en hún varpar
skemmtilegu ljósi á líf unglinganna í
þorpinu.
The foreign minister Fjallar um
óopinbera heimsókn serbnesks
utanríkisráðherra til íslands.
The gentlemen Þrír ungir menn hittast
á bryggju sem er byggð af þessu tilefni í
stúdíói. Þeir rifja upp gömul afrek, grípa
í gítarana sína og leggja drög að nýrri
hljómsveit.
The story of suyash Þetta er sagan af
götustráknum og heróínfíklinum suyash
sem opnaði meðferðarstöð í Katmandú.
undur vatnsins Hvergi í heiminum er
auðveldara að fylgjast með margvíslegri
hegðun vatns og á íslandi.
yoko ono: imagine Peace Tower Við
gerð myndarinnar eltum við fjörutíu
ára sögu friðarsúlunnar. Frá hugmynd
að veruleika og fáum skýra mynd af
hugsjónum og listsköpun Yoko Ono.
heiðursgestur Þorfinnur guðnason
er heiðursgestur hátíðarinnar en hann
hefur gert myndir eins og Lalla Johns
og draumalandið.