Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2010, Blaðsíða 4
SANDKORN
n Þóra Tómasdóttir, fyrrverandi
liðsmaður Kastljóssins, var ekki
lengi að fá vinnu ef marka má
Fréttablaðið. Sama dag og hún
var rekin bauðst henni starf í
Noregi við
yfirumsjón á
gerð heim-
ildamynda.
Þóra er þekkt
fyrir að vera
snögg til
ákvarðana og
verka. Sem
hendi væri
veifað var hún komin til Noregs
og búin að festa sér íbúð og und-
irrita starfssamning. Fyrrverandi
sambýlismaður hennar, Sigmar
Guðmundsson, heldur aftur á
móti starfi sínu í Kastljósi.
n Það er fremur þungbúið and-
rúmsloft innan Ríkisútvarpsins
í kjölfar síðustu uppsagnahrinu.
Páll Magnússon útvarpsstjóri
býr enn við sömu kjör þótt látið
hafi verið í veðri vaka að ofurlaun
hans hefðu
verið skert. Í
ljós er komið
að launum
var breytt í
hlunnindi
þannig að
kostnaður-
inn við hann
er svipaður.
Þá hefur orðið dráttur á því að
útvarpsstjórinn skili sportjepp-
anum sem almenningur þarf að
standa undir.
n Framganga Jóhönnu Sigurðar-
dóttur forsætisráðherra í embætti
verður sífellt furðulegri. Hernað-
arleynd ríkir um fund hennar hjá
Evrópusambandinu og fjölmiðl-
um er haldið víðs fjarri. Hugsan-
lega er það
vegna tungu-
málaerfið-
leika hennar.
Þá mætir hún
ekki í viðtöl
nema um
sé að ræða
drottning-
arviðtal þar
sem hún situr ein fyrir svörum.
Bloggarinn Gunnar Th. Gunnars-
son á Reyðarfirði gerði Jóhönnu
að umtalsefni. Niðurstaða hans
er sú að hún sé „mállaus manna-
fæla“ sem er kannski ofsagt.
n Facebook-hrekkir eru vinsælir,
sérstaklega þegar fólk bregður sér
frá tölvunni og skilur hana óvarða
eftir. Vinir Helga Seljan sjón-
varpsmanns voru farnir að halda
á fimmtudag að hann væri á leið
í framboð á æskuslóðum eftir
að hafa séð á Facebook að hann
hefði tekið tilboðinu og væri á
leið til Reyð-
arfjarðar.
Ekki var það
þó svo. Helgi
þakkaði fljót-
lega Sigmari
Guðmunds-
syni fyrir
statusinn.
Sögunni var
þó ekki lokið því fljótlega bað
Helgi Sigmar afsökunar og varp-
aði sökinni á „Moskvu-barnið“
Þóru Arnórsdóttur.
n Ekki eru allir sáttir við þær
skýringar Össurar Skarphéðins-
sonar sem fram komu á DV.is að
allt sé uppi á borðum varðandi
stofnfjárhlut hans í SPRON. Öss-
ur segir að hann hafi selt hlutinn
með 30 milljóna gróða áður en
til ráðherradóms hans kom árið
2007. Nú spyrja menn hvort önn-
ur siðalögmál hafi verið
í gildi þegar hann var
umhverfisráðherra
1991-1995. Raunin
mun vera sú að hann
hafi átt mun smærri
hlut í þá daga en
bætt smám sam-
an við sig þegar
það bauðst.
4 FÖSTUDAGUR 5. febrúar 2010 FRÉTTIR
Deilur halda áfram í kirkjustarfi á Selfossi. Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, fór
nýverið formlega fram á það við Kristin Ágúst Friðfinnsson, sóknarprest Selfosspresta-
kalls, að hann gæfi eftir Selfosskirkju og héldi sig áfram í sveitakirkjum sóknarinnar.
Kristinn Ágúst Friðfinnsson, sókn-
arprestur nýs sameinaðs presta-
kalls á Selfossi, hefur verið beðinn
um að gefa frá sér völdin í Sel-
fosskirkju og halda sig áfram við
sveitakirkjurnar þrjár í sókninni.
Það var biskup Íslands, Karl Sig-
urbjörnsson, sem fór fram á þetta
formlega við prestinn.
Deilum í Selfosssókn ætlar seint
að linna þar sem deilt er um eftir-
mann séra Gunnars Björnssonar,
sem vikið var úr embætti sókn-
arprests og færður í sérþjónustu-
störf hjá Biskupsstofu síðastliðið
haust. Sameining átta prestakalla
var samþykkt á síðasta kirkju-
þingi Þjóðkirkjunnar og ein þeirra
var sameining Hrunaprestakalls
og Selfossprestakalls, sem bæði
voru í Árnesprófastsdæmi, í eitt.
Hið sameinaða prestakall heitir
Selfoss prestakall og yfir því er séra
Kristinn sóknarprestur. Sóknar-
nefnd Selfosskirkju sættir sig ekki
við það og sendi áskorun til bisk-
ups þess efnis að Kristinn yrði
beðinn um að afsala sér völdum í
kirkjunni. Biskupi hefur greinilega
litist vel á tillöguna því hann hefur
nú óskað eftir þessu formlega við
sóknarprestinn. Því hafnar séra
Kristinn alfarið.
Skrítin beiðni biskups
Séra Kristinn staðfestir að biskup
hafi sent formlegt erindi þessa efnis
og undrast presturinn beiðnina. Að-
spurður segir hann beiðni biskups
snúast um að hann hafi sig hægan
og afsali sér völdum í Selfosskirkju.
„Ég skil eiginlega ekkert í þessu og
er orðlaus. Ég fylgi inn í sameining-
una sem sóknarprestur, það liggur
fyrir. Engu að síður sendir sóknar-
nefndin kröfu til biskups og biskup
biður mig síðan að nýr prestur sem
valinn yrði stjórni og ráði Selfoss-
kirkju. Það má segja að ég sé beðinn
um að hafa mig hægan og nýr prest-
ur yfirtaki alfarið starf mitt í stærstu
sókninni og höfuðstöð prestakalls-
ins. Það finnst mér með ólíkindum,“
segir Kristinn.
Ingimar Pálsson, organisti í Sel-
fossprestakalli, tekur í sama streng
og skilur lítið í beiðni biskups. Hann
efast um lögmæti beiðnarinnar.
„Mér finnst þetta skrítið. Persónu-
lega finnst mér áskorun almenns
sóknarfundar stríða gegn lögum
því séra Kristinn er sóknarprest-
ur prestakallsins samkvæmt lögum
með þeim skyldum sem því fylgir
og lög segja fyrir um. Ef biskup tek-
ur undir þessa áskorun þarf hann að
skýra það því mér finnst það skrítið,“
segir Ingimar.
Biskupinn í taumi?
Óskar Hafsteinn Óskarsson starfar
sem afleysingaprestur í Selfosskirkju
en sóknarnefndin hefur lýst yfir
stuðningi við áframhaldandi störf
hans hjá sókninni. Þannig hafa full-
trúar í valnefnd kirkjunnar um nýjan
prest á Selfossi skrifað undir stuðn-
ingsyfirlýsingu og skráð sig í stuðn-
ingshóp Óskars á Facebook.
Selfossprestakall virðist ætla að
valda Karli biskupi frekari hugar-
angri en hann hefur átt erfitt með
að lægja öldurnar í sókninni eftir að
kærur á hendur séra Gunnari um
kynferðisbrot komu fram um mitt
ár 2008. Sé tímabilið skoðað er útlit
fyrir að sóknarnefnd kirkjunnar hafi
tök á biskupi því hann virðist þríveg-
is hafa breytt áherslum sínum eftir
áskoranir eða þrýsting frá nefndinni.
Fyrst skipti hann um skoðun varð-
andi endurkomu séra Gunnars sem
sóknarprests í Selfosskirkju þegar
sóknarnefndin hafði með ákveðnum
hætti barist gegn endurkomunni, þá
hætti hann við að leggja fram tillögu
á síðasta kirkjuþingi um sameiningu
prestakalla í Árnesprófastsdæmi eft-
ir að sóknarnefndin hafði lagst gegn
sameiningunni og nú síðast tók hann
jákvætt í áskorun sóknarnefndarinn-
ar varðandi störf séra Kristins í Sel-
fosskirkju.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir feng-
ust ekki svör frá Karli Sigurbjörns-
syni, biskupi Íslands, við vinnslu
fréttarinnar.
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
BISKUP BIÐUR PREST
AÐ SKILA KIRKJUNNI
n Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson,
hugðist leggja fram tillögu um sameiningu
tveggja prestakalla í Árnesprófastsdæmi á
síðasta kirkjuþingi enda var fyrirhugað að
kjósa þar um sameiningu fleiri prestakalla í
hagræðingarskyni. Sóknarnefnd Selfoss-
kirkju lagðist hins vegar gegn sameining-
unni og lagði áherslu á að söfnuðurinn
fengi að velja sér nýjan sóknarprest í
staðinn. Til að valda ekki frekari usla í
sókninni ákvað biskup að draga til baka
sameiningartillöguna á Selfossi en það
kom ekki í veg fyrir að tillagan kæmi fram
því hana lagði séra Kristján Björnsson í
Vestmannaeyjum fram. Sameiningin varð
að staðreynd á kirkjuþinginu og í kjölfarið
ljóst að séra Kristinn yrði sóknarprestur yfir
hinu sameinaða prestakalli Selfoss.
Lagði ekki til sameiningu
n Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, hafði tilkynnt sóknarnefnd Selfosskirkju í
mars á síðasta ári að séra Gunnar Björnsson, þáverandi sóknarprestur kirkjunnar,
fengi að snúa til baka og það hafði prestinum einnig verið tilkynnt. Sóknar-
nefndin sætti sig ekki við þá ákvörðun biskups og leitaði til Úrskurðarnefndar
Þjóðkirkjunnar í þeirri von að séra Gunnari yrði meinað að snúa aftur. Nefndin
komst að því að hann hefði brotið af sér siðferðislega í starfi en hafnaði því að
mæla fyrir að Gunnar fengi ekki aftur starf sitt. Engu að síður skipti biskup um
skoðun og meinaði séra Gunnari um endurkomu. Þeir komust síðar að samkomu-
lagi þess efnis að presturinn héldi áfram störfum fyrir Biskupsstofu, næstu fimm
árin, en ætlast er til þess að hann starfi heima hjá sér og fær fyrir það full laun út
samningstímann. Þar mun hann meðal annars sinna ýmsum þýðingarverkefnum
og fær fyrir það tugi milljóna króna.
Hætti við endurkomu séra Gunnars
Það má segja að ég sé beðinn um að hafa mig hægan og nýr prestur
yfirtaki alfarið starf mitt í stærstu sókn-
inni og höfuðstöð prestakallsins.
Skrítin beiðni Beiðni Karls
biskups um að sóknarprestur gefi
eftir Selfosskirkju er gagnrýnd og
efast er um réttmæti hennar.