Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2010, Blaðsíða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2010, Blaðsíða 56
MICROSOFT RANNSAKAR RAFHLÖÐUENDINGU Eftir fjölmargar kvartanir frá Windows-notendum sem hafa uppfært í nýjasta stýrikerfi Microsoft, Windows 7, hefur fyrirtækið ákveðið að rannsaka orsakir breyttrar rafhlöðuendingar í fjölmörgum far- og fistölvum sem keyra nýja stýrikerfið. Kerfið birtir ítrekað viðvaranir til notenda um að skipta um rafhlöðu því eitthvað sé að henni. Einn- ig virðist ending rafhlaðanna vera mun verri og í sumum tilvikum hafa þær orðið ónothæfar eftir fárra vikna notkun með Windows 7. NEXUS ONE MEÐ FJÖLSNERTISKJÁ Google mun á næstunni gera eigendum Nexus One-símans kleift að uppfæra stýrikerfi símans til að hann öðlist fjölsnerti-viðmót líkt og iPhone-sími Apple. Þá er hægt með ákveðnum handarhreyfingum (pinch-and-zoom gestures) að kalla fram ólíkar skipanir til dæmis í netvafra símans. Talið var á tímabili að Google-fyrirtækið myndi ekki bæta þessu viðmóti við stýrikerfi símans vegna einkaleyfis Apple á tækninni en Google segir hins vegar að Nexus One sé fyrsti Android-sím- inn sem hafi nóg örgjörvaafl til að keyra fjölsnerti-viðmótið. VAFRASTRÍÐ Google-vafrinn Chrome er á mikilli siglingu þessa dagana. Á sínum stutta ferli frá því vafrinn kom fram á sjónarsviðið hefur hann náð 5,20 prósenta notendahlutdeild á heimsvísu sem verður að teljast einstakt á svo skömmum tíma í þessum geira. Internet Explorer heldur enn yfirburðastöðu þrátt fyrir sígandi lukku en samtals eru útgáfur vafrans með um 62 prósent markaðarins. Firefox er síðan með um fjórðung, eða 24,1 prósent. SKORTIR EINFALD- LEGA TÖFRANA Jim Zemlin, framkvæmdastjóri Linux Foundation, skrifaði á dögunum ítarlega grein á bloggi sínu um kosti og galla Linux-stýrikerfa. Greinin var nokkurs konar hugleiðing eftir að Apple-fyrirtækið kynnti hina nýju iPad-tölvu. „Það stenst enginn Apple snúning við að skapa einstaka upplifun og notandaviðmót. Það er eitthvað töfrum líkast við það. Við gagnrýnum Microsoft aðra hverja viku sem er auðvelt en Apple er sannur samkeppnisaðili.“ Zemlin viðurkennir síðan í áframhaldi að Linux-kerfin skorti einfaldlega þessa töfra. UMSJÓN: PÁLL SVANSSON, palli@dv.is Apple-fyrirtækið undir stjórn Steve Jobs hefur á undanförnum áratug sýnt og sannað að það hefur til að bera meiri skilning en önn- ur fyrirtæki á því hvað almenning- ur vill. Vinsældir iTunes, iPod og iPhone bera þess skýr merki. Sú þróun sem átt hefur sér stað síðastliðin ár með tilkomu ódýrra fistölva (netbooks) og lestölva hef- ur sjálfsagt gefið Apple þá hug- mynd að hér væri að opnast mark- aður fyrir nýja vöru sem sameinaði eiginleika les- og nettölvu. Og iPad er einmitt slík afurð. Það er því ekki úr vegi að bera saman í fljótu bragði eina vinsæl- ustu lestölvu heimsins, Amazon Kindle DX, við Apple iPad. Báðar eru með 9,7 tommu skjá (24,63 cm) og aðeins munar tíu dollurum í verði á ódýrustu útgáfu iPad ($499) og stærri útgáfu Kindle ($489). Stærð og verð eru því nánast hin sömu en eiginleikar og útlit eru sem dagur og nótt í samanburði. Amazon Kindle Kindle DX lestölvan er með 16 tóna gráskalaskjá, svokallaða E Ink-tækni sem gerir upplifun notandans sem líkasta því að hann sé að lesa raun- verulega prentaða bók. Skjárinn byggir ekki á baklýsingu og þreytir því augun minna auk þess að halda skýrleika sínum í mikilli birtu eins og sólarljósi. Skjáinn má nota bæði í lóðréttri og láréttri stöðu, það er sem dæmi hentugra að skoða ljósmynd- ir í láréttri stöðu. Notandinn fram- kvæmir síðan allar skipanir með því að ýta á hnappa sem staðsettir eru undir skjánum og við hægri jaðar hans. Vefverslun og 3G Kindle er nánast byggð utan um vef- verslun framleiðanda síns og þrátt fyrir að 3G-mótald sé innbyggt í þessa lestölvu gagnast það notand- anum nær eingöngu til að eiga við- skipti við amazon.com. Notandinn borgar ekki fyrir sambandið held- ur verslunin sjálf en Amazon hefur gert reikisamninga við fjarskiptafyr- irtæki víðs vegar um heiminn til að geta haldið uppi þessari þjónustu. Í vefversluninni er boðið upp á um fjögur hundruð þúsund bókatitla auk áskrifta að dagblöðum og tíma- ritum. Enn fremur er hægt að tengj- ast bloggum og alfræðivefjum líkt og Wikipedia. Notkun og rými Þrátt fyrir að Amazon gefi upp þann eiginleika Kindle að geta hlustað á hljóðbækur virðist það hreinlega ekki vera raunhæf notkun á þess- ari lestölvu. Hljóðbókinni þarf að hala niður með hefðbundinni tölvu og tengja síðan með USB-kapli við Kindle til að geta fært hana inn á tölvuna. Geymslurými Kindle er ekki mikið, tæplega 4GB, og yrði fljótt uppurið með myndarlegu safni hljóðbóka. Hins vegar má vista um 3500 textabækur á Kindle og ef slökkt er á 3G-mótaldinu dugir rafhlaða tölvunnar í allt að tvær vikur. Not- andinn getur einnig hlaðið inn eigin texta- eða PDF-skjölum með aðstoð USB-kapals. Apple iPad Eins og allt sem Apple hannar er einfaldleikinn í fyrirrúmi þegar kemur að iPad-tölvunni. Við fyrstu sýn virkar útlit tölvunnar á mann líkt og um risavaxinn iPhone sé að ræða, stór svartur skjár með aðeins einum hnappi fyrir neðan. Og sú tilfinning er ekki fjarri sannleikan- um, stýrikerfi iPad er byggt á kerfi iPhone og getur keyrt sama hug- búnað og síminn, leiki og forrit. Og skjárinn er að sama skapi fjölsnerti- skjár líkt og í iPhone, með mismun- andi handarhreyfingum má kalla fram ólíkar skipanir. Innviðir og geta Innviðir iPad eru þó meira í lík- ingu við ferðatölvu, undir yfirborð- inu leynast til dæmis 1GHz ör- gjörvi, 16 GB Flash-minnisdiskur, Wi-Fi (802.11a/b/g/n) og Blátönn. Í raun getur iPad gert flest það sem hefðbundin ferðatölva getur, vafr- að um veraldarvefinn, spilað tón- list og kvikmyndir, sótt og sent póst, skiðað dagatal, póstfangaskrá og svo framvegis. En iPad er einnig miðuð að lestri bóka, hægt er að skipta yfir í sérstakt lestrarviðmót og er tölvan þá eins og hver önnur sérhæfð lestr- artölva. Bækur, tónlist og kvikmynd- ir má setja beint inn á tölvuna eða hlaða þeim niður í gegnum iTunes- verslunina. Apple er einnig að ljúka sérstakan iWorks-forritapakka fyr- ir iPad en þar má finna töflureikni, kynningarforrit (presentation) og ritvinnslu. palli@dv.is 56 FÖSTUDAGUR 5. febrúar 2010 HELGARBLAÐ Apple kynnti nýverið iPad-tölvuna en það má segja að hún sameini alla kosti fis- og lestölva og bjóði upp á útlit og hönnun sem almenningi er meira að skapi auk þess sem verðið kemur skemmtilega á óvart. Hér er iPad borin saman við Amazon Kindle DX. n Þykkt: 13,4 mm n Þyngd: 680 grömm n Skjár: 11,7 tommur, baklýstur LED 1024x768 fjölsnertiskjár með háglans, varinn fyrir húðfitu. n Örgjörvi: 1GHz Apple A4 n Geymslurými: 16 GB (einnig fáanleg í 32GB og 64GB útgáfum) n 3G: Nei, aðeins í dýrari útgáfu ($629) n SIM-kort: Nei, aðeins í dýrari útgáfu ($629) n WI-FI: 802.11a/b/g/n n Blátönn: Bluetooth 2.1 + EDR-tækni n Forritaverslun: App Store - yfir 100 þúsund forrit n Hljóðnemi: Já n Hátalari: Já n Tengi: 30-pinna kvíartengi (dock connector), 3,5-mm heyrnartóla- tengi, USB2 (í gegnum kvíartengi) n Skynjarar: Hraða- og birtuskynjari (ambient light sensor). n Rafhlaða: Endist í 10 klukkutíma - miðað við vefráp og afspilun á kvikmyndum og tónlist. Apple iPad n Þykkt: 9,65 mm n Þyngd: 535 grömm n Skjár: 11,7 tommur, 16 tóna 1200x824 gráskalaskjár byggður á E Ink-tækni. n Örgjörvi: Ekki gefið upp n Geymslurými: 4 GB (3,3 aðgengileg fyrir notandann) n 3G: Já, en takmarkað gegnum Whispernet-kerfi Amazon n SIM-kort: Nei n WI-FI: Nei n Blátönn: Nei n Forritaverslun: Nei n Hljóðnemi: Nei n Hátalari: Já n Tengi: 3,5-mm heyrnartólatengi, USB micro n Skynjarar: Nei n Rafhlaða: Endist í tvær vikur ef slökkt er á 3G mótaldi. Kindle DX SAMA STÆRÐ OG VERÐ, EN ÓLÍKIR EIGINLEIKAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.