Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2010, Blaðsíða 58

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2010, Blaðsíða 58
58 FÖSTUDAGUR 5. febrúar 2010 KYNLÍFSFÍKILLINN TIGER Maðurinn sem allir höfðu tekið í guðatölu og héldu að ekkert gæti gert rangt. Ekkert mál var stærra á árinu 2009 en framhjáhald Tigers Wood. Fyrst komst upp um málið þegar Tiger keyrði á brunahana og slasaðist. Þá var því haldið fram að kona hans hefði bjargað honum með því að brjóta afturrúðuna með golfkylfu. Málið var þó auðvitað að hún hafði komist að framhjáhaldi golfarans. Olíu var síðan hellt á eldinn trekk í trekk þegar hver konan á fætur annarri sagðist hafa sofið hjá Tiger og sögðu nokkrar að hann vildi hafa kynlífið gróft. Hann er nú í fríi frá golfi ótímabundið og er í meðferð við kynlífsfíkn. ENGIN ÁRÁS EN FRAMHJÁHALD Sumarið 2003 var besti körfu- boltamaður heims, Kobe Bryant, handtekinn og ákærður fyrir að nauðga nítján ára stelpu í Denver í Colorado. Bryant hafði þá gist á hóteli í borginni og undirbjó sig fyrir hnéaðgerð. Málinu var vísað frá þegar stúlkan neitaði að gefa vitnisburð um málið og var samið utan réttarsals. Seinna meir viðurkenndi Bryant að hafa átt kynmök við stúlkuna en sagði það hafa verið með samþykki hennar. Fyrir atvikið missti Bryant ýmsa stuðningsaðila sína, sá stærsti var McDonalds sem hafð gert við hann risasamning. Kona Kobes Bryant ákvað að yfirgefa hann ekki en Kobe gaf henni fjögurra milljóna dollara hring til að sýna iðrun sína. AF TOPPNUM Í TUKTHÚSIÐ Mike Tyson hefur gert margt rangt á sinni ævi. Líklega ekkert þó jafnslæmt og það sem hann gerði árið 1992 þegar hann var á toppi heimsins og álitinn einn besti þungavigtarboxari allra tíma. Þetta ár var hann handtekinn og ákærður fyrir nauðgun á ungri stúlku í Rhode Island-fylki í Bandaríkjunum. Sagði stúlkan sem heitir Desiree Washington að Tyson hefði nauðgað sér á hótelherbergi í Indianapolis árið 1991. Eftir löng réttarhöld var Tyson fangelsaður og átti að dúsa þar í sex ár. Hann sat aðeins inni í þrjú ár og snéri þá aftur í hringinn. SIGAÐI FAUTA Á KEPPINAUTINN Einn athyglisverðasti skandallinn í íþróttasögunni varð í íþrótt sem maður hefði haldið að væri nokkuð friðsamleg, listhlaupi á skautum. Fyrir æfingamót hjá bandaríska landsliðinu 1994 lét skautadrottning að nafni Tonya Harding eyðileggja fyrir helsta keppinauti sínum, Nancy Kerrigan. Kærasti Harding réð fauta til þess að berja fast í hné Kerrigan með kylfu svo hún gæti ekki tekið þátt á Ólympíuleikunum í Lillehammer sama ár. Þetta heppnaðist í fyrstu, Kerrigan gat ekki tekið þátt í æfingamótinu sem Harding vann. Á Ólympíuleikun- um sjálfum endaði Kerrigan þó í öðru sæti og Harding í því áttunda. Harding hefur ætíð neitað að hafa átt þátt í að skipuleggja árásina og kom sökinni alfarið yfir á fyrrverandi kærastann. KYNLÍFSGRENI VÍKINGANNA Í október 2005 gerðu 17 liðsmenn bandaríska NFL-liðsins Minnesota Vikings sér glaðan dag í stóru húsi við Minnetonka-vatn í Minnesota. Þarna voru allir mættir, með þeim leikstjórnandinn sjálfur, Dante Culpepper. Flogið var með vændiskonur frá Atlanta og Flórída til þess að gera partíið nú almennilegt og voru menn duglegir við að nýta þjónustu þeirra. Culpepper og þrír aðrir leikmenn, Fred Smoot, Bryant McKinnie og Moe Williams, gengu þó öllu lengra og voru með afar dónalega tilburði fyrir framan allt fólkið með hjálp vændiskvennanna. Á endanum voru þeir dæmdir fyrir athæfi sitt. Smoot og McKinnie fengu 1.000 dollara sekt og samfélagsvinnu, Williams var dæmdur sekur fyrir ósiðlegt athæfi en mál Culpeppers féll niður. VERSTI DAGUR Í HEIMI Einn blíðsumardagur árið 1999 verður tenniskapp- anum Boris Becker alltaf minnisstæður. Þennan dag féll hann úr leik á Wimbledon-mótinu í tennis sem haldið er á Englandi. Ekki nóg með það heldur reifst Becker einnig við konu sína, Barböru að nafni, sem í ofanálag var ólétt. Becker var svo fúll að hann fór einn á veitingastað í London þar sem hann hitti fyrirsætuna Angelu Ermakova. Á sama tíma hélt kona Beckers að hún væri komin að því að fæða annað barn þeirra og hélt því ein á spítalann því ekki svaraði Becker. Á meðan konan var í skoðun á spítal- anum var Becker upptekinn við að eiga samræði við fyrirsætuna í næsta stigagangi við veitingastaðinn. Ekki nóg með þetta allt heldur varð fyrirsætan ólétt og fæddi barn sem Becker átti. Þetta kostaði Becker gífurlegar fjárhæðir því konan skildi við hann, tók húsið og fékk forræði yfir báðum sonum þeirra. Becker gifti sig aftur í fyrra og á von á barni. Vonum að það gangi betur í þetta skiptið. UTAN VALLARVAN DRÆÐI Íþróttasagan er full af hæfileikaríku fólki sem vann mikil afrek innan vall- ar en lenti í vandræðum utan hans. Sumir brugðust mökum sínum með- an aðrir hreinlega brutu lög og þurftu að sætta sig við fangelsisvist.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.