Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2010, Blaðsíða 34
34 FÖSTUDAGUR 5. febrúar 2010 VIÐTAL
Svavar Gestsson gerðist sendiherra árið 1999 en er nú hættur eftir 11 ára þjón-ustu. Í þrjá áratugi var hann áberandi á vinstrivæng íslenskra stjórnmála sem
ritstjóri Þjóðviljans og síðar þingmaður og ráð-
herra fyrir Alþýðubandalagið. Reyndar er hann
eini sósíalistinn sem ratað hefur inn í raðir send-
herra þjóðarinnar allan lýðveldistímann frá
1944.
Í byrjun árs 1999 biðu blaðamenn spennt-
ir eftir því að hann kæmi fram og tilkynnti um
framboð til þings og eftir hverju hann sæktist í
prófkjöri Samfylkingarinnar sem þá var nýlega
orðin til með sameiningu Alþýðubandalagsins.
Alþýðuflokksins, Kvennalistans og Þjóðvaka.
Öllum að óvörum kom hann fram á sviðið og
tilkynnti að hann væri orðinn sendiherra. Fyrst
fór hann til Winnipeg í Kanada ásamt eiginkonu
sinni, Guðrúnu Ágústsdóttur, fyrrverandi borg-
arfulltrúa, því næst til Stokkhólms og loks til
Kaupmannahafnar. Svavar og Guðrún helltu sér
út í störfin fyrir utanríkisþjónustuna. „Þetta var
gefandi og skemmtilegt og við erum þakklát fyrir
að hafa fengið þetta tækifæri,“ segir Svavar sem
varla hefur rætt við fjölmiðla undanfarin 11 ár.
Svavar kom auk þess nálægt undirbúningi að
umsókn Íslands um aðild að öryggisráði Sam-
einuðu þjóðanna og síðastliðið vor varð hann
formaður Icesave-samninganefndarinnar fyrir
hönd stjórnvalda.
Svavar hefur mátt þola ýmsar aðdróttan-
ir síðustu mánuði vegna aðildar sinnar að Ice-
save-samningunum og jafnvel persónulegar
svívirðingar. Hann skilur hins vegar vel hitann
í fólki eftir allt það sem hefur gengið yfir en lýsir
eftir sanngirni af hálfu þeirra sem taka þátt í op-
inberri umræðu. „Margir í fjölskyldunni taka
aðdróttanir í minn garð nærri sér. Ég reyndi
að gera þetta eins vel og ég gat og hafði til þess
fullt umboð frá allri ríkisstjórninni þegar þessi
vinna hófst fyrir einu ári.“
Svavar er harðánægður með ríkisstjórnina,
pólitíska forystu og baráttuþrek Steingríms J.
Sigfússonar fjármálaráðherra og þykir Dala-
maður í framættir, frændi sinn fjarskyldur, Össur
Skarphéðinssson utanríkisráðherra, orðinn góð-
ur og slípaður stjórnmálamaður. „Honum hefur
farið fram.“
Þess má geta fyrir þá sem ekki vita að Svavar
er faðir Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráð-
herra, sem þykir mælsk eins og pabbinn. – Hann
er ekkert búinn að gera upp við sig hvað hann
muni taka sér fyrir hendur. „En ég er að skrifa
bók sem kemur út á þessu eða næsta ári. Ég vil
ekki ræða efni hennar en ýmsir fara kannski
nærri um það.“
Pólitískur grunnur Iceave-samningsins
Svavar var settur formaður Icesave-nefndarinn-
ar fyrri hluta árs í fyrra. Það var gert á tvíþættum
forsendum. Annars vegar á grundvelli reynslu
hans eftir 20 ára þingsetu og tíu ára ráðherra-
setu. Hins vegar hafði hann 10 ára reynslu sem
sendiherra.
„Síðan eru með mér í nefndinni og rétt að
gera grein fyrir því, Indriði H. Þorláksson, full-
trúi fjármálaráðuneytisins, Sturla Pálsson, yf-
irmaður alþjóðasviðs Seðlabankans, Páll Þór-
hallsson, lögfræðingur og sérstakur fulltrúi
forsætisráðherra í nefndinni, Áslaug Árnadótt-
ir sem situr fyrir Tryggingasjóð innstæðueig-
enda og fyrir efnahags- og viðskiptaráðherra
og Marteinn Eyjólfsson, lögfræðingur í utan-
ríkisráðuneytinu, þannig að þetta er í raun og
veru 6 manna embættisnefnd. Hver og einn
hefur sitt svið; Áslaug sinn Tryggingasjóð til að
hugsa um, Sturla sérfræðingur um kjörin og
svo eru þarna öflugir lögfræðingar. Þegar kom
að samningnum sjálfum bættust við einir 7 til
8 lögfræðngar úr ýmsum áttum. Í viðræðun-
um um Icesave skipti mjög miklu máli að tala
minnst einu sinni á hverjum fundi um efna-
hagsleg hryðjuverk Breta á Íslendingum. Það
gerðum við algerlega svikalaust.
Hvað er svo í þessum Icesave-samningi?
Ég held að menn séu að flækja hlutina helst til
mikið vegna þess að samningurinn er fyrst og
fremst pólitískur. Hann er pólitísk tilraun til
lausnar á svakalega erfiðu og flóknu deilumáli.
Í fyrsta lagi er í honum ákvæði um að í stað
þess að borga allt á 10 árum úr ríkissjóði mega
líða 7 ár áður en greiðslur hefjast úr ríkissjóði.
Að vísu verður það tekið sem kemur í gegnum
Landsbankann.
Svavar Gestsson skrifaði langan kafla í stjórnmálasögu íslenska lýðveldisins
sem þingmaður og ráðherra. Hann gerðist síðar sendiherra og kemur nú fram
á sjónarsviðið sem einn umdeildasti maður þjóðarinnar í hlutverki formanns
Icesave-samninganefndarinnar. Hann er eindreginn þingræðissinni og vandar
Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta og gömlum samherja sínum í pólitíkinni, ekki
kveðjurnar. Í samtali við Jóhann Hauksson segir Svavar að innstæðutryggingar
séu fyrir almenning en ekki auðmenn.
UPPREISN
FORSETANS
GEGN ÞINGINU
Regluverk eins og Trygging-arsjóður innstæðueigenda er
til fyrir almenning. Þetta regluverk
er ekki til fyrir auðvaldið því það þarf
ekki á slíku regluverki að halda.