Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2010, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2010, Blaðsíða 38
38 FÖSTUDAGUR 5. febrúar 2010 VIÐTAL Fær nýra FRÁ PABBA Ólafur Karl Óskarsson er 16 mánaða glaðlyndur drengur sem þjáist vegna sjaldgæfra fæðingargalla. Ólafur fæddist með klumbu- fót, afmyndun á hryggjarlið- um og með ekkert rófubein. Svo eitthvað sé nefnt. Það alvarlegasta er þó nýrna- bilun og stefnir fjölskyldan á nýrnaígræðslu í haust. Foreldrar hans passa báðir sem gjafar og þótt mamma hans myndi gefa honum hjartað úr sér verður pabbi hans gjafinn. Fjölskyldan berst í bökkum fjárhagslega og hafa vandamenn opnað reikning þeim til stuðnings. Nýfæddur Tvísýnt var um líf Ólafs Karls en hann fæddist með eitt nýra, engan endaþarm og mjög þrönga þvagrás. Litla hetjan barðist fyrir lífi sínu og síðan hefur allt verið á uppleið. MYND/ÚR EINKASAFNI Í gifsi Ólafur Karl er ný- kominn úr vel heppnaðri mjaðmaaðgerð og er í gifsi frá nafla og niður. MYND ÚR EINKASAFNI F lestir taka því sem sjálf- sögðum hlut að eignast heilbrigt barn og í flest- um tilvikum er það raun- in. Þegar við fengum að vita að barnið sem við áttum von á yrði fatlað fórum við í gegnum heilmikið sorgarferli og eftir að hann fæddist tók við mikil vinna. Við verðum að muna að njóta þess að eiga hann en ekki bara líta á umönn- un hans sem vinnu,“ segir Ásrún Her- steinsdóttir, móðir 16 mánaða hetj- unnar Ólafs Karls. Þegar Ásrún var ófrísk að Ólafi Karli fengu hún og kærasti hennar, Óskar Árnason, að vita í 20 vikna són- ar að ekki væri allt með felldu með barnið. „Læknirinn sagði að hann væri aðeins með eitt nýra og að það starfaði ekki eins og það ætti að gera. Eins sá hann að eitthvað var að hrygg og fótum hans. Hann taldi líklegt að hann væri með klumbufætur, sem var raunin með annan fótinn,“ segir Ásrún og bætir við að hún hafi hætt að vinna snemma á meðgöngunni vegna grindargliðnunar og hún hafi notað tímann til að undirbúa sig und- ir komu barnsins. „Ég fékk því tíma til að velta þessu fyrir mér, verja tíma með stóra bróð- ur hans og reyna að njóta þess að vera ófrísk. Þessi meðganga reyndi miklu meira á andlega en líkamlega.“ Mamman besta hjúkkan Þegar Ólafur Karl kom í heiminn komu hins vegar fleiri gallar í ljós. Auk þess að vera með klumbufót hægra megin var hægri mjöðm Ólafs Karls úr lið og of mörg rifbein hægra meg- in. Ólafur Karl er með afmyndun á hryggjarliðum og ekki með rófubein. Bakflæði tengist þessum fæðingar- göllum og auk alls þessa fæddist hann ekki með endaþarm og er þar af leið- andi með kólóstóma. Þvagrás hans er mjög þröng svo hann getur ekki piss- að eins og aðrir strákar og er hann því með þvagstóma sem kemur beint úr nýranu. Það alvarlegasta er nýrað sem starfar langt undir getu svo Ólaf- ur Karl þjáist af alvarlegri nýrnabilun. Það er því mikið lagt á lítinn dreng en mamma hans segir að hann hafi það ágætt í dag. Hann sé þó tiltölu- lega nýkominn úr mjaðmaaðgerð og sé með gifs frá nafla og niður. Fjöl- skyldan er í startholunum fyrir nýrna- ígræðslu sem stefnt er á í haust og það er pabbinn sem er nýrnagjafinn. „Ólafur Karl er alveg ofsalega dug- legur, þó að í þroska sé hann á eftir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.