Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2010, Blaðsíða 52
52 FÖSTUDAGUR 5. febrúar 2010 LÍFSSTÍLL
ÚR UNDIRFÖTUM Í KVIKMYNDIR
Nýr kærasti Samönthu í Sex and the City
2 er enginn annar en ofurhönkið og fyrir-
sætan Noah Mills. Þetta mun vera fyrsta
mynd hans eftir vel heppnaðan fyrirsætu-
feril, en Noah hefur unnið fyrir Dolce &
Gabbana, Tom Ford, John Galliano og
Michael Kors.
Stórstjarnan og söngkonan Bey-
oncé Knowles hefur látið framleiða
sitt fyrsta ilmvatn. Ilmurinn hef-
ur fengið nafnið Heat, eða Hiti, og
kynnti söngkonan hann á miðviku-
daginn var. „Ég vildi vera frumleg
og vildi ekki vera eins og allar hinar
stjörnurnar,“ segir söngkonan um
ilminn en til þess að það næðist
hafi verið lögð gríðarleg vinna í að
þróa lyktina.
„Það hefur tekið tvö ár að búa
hann til. Allt niður í minnstu smá-
atriði er mjög persónulegt þannig
að það er óhætt að segja að þetta
sé minn ilmur. Ég er alveg ótrúlega
stolt af þessu.“
Vinsældir Beyoncé hafa aldrei
verið meiri þó ótrúlegt megi virð-
ast því hún hefur verið vinsæl-
asta poppstjarna heims um árabil.
Þrátt fyrir að vera aðeins
28 ára gömul. Síðastlið-
inn sunnudag hlaut hún
hvorki meira né minna
en sex Grammy-verðlaun
en aldrei hefur kvenkyns
listamaður fengið fleiri
verðlaun á einu kvöldi.
Fyrsta ilmvatnið frá Beyoncé Knowles:
TVÖ ÁR AÐ FINNA ILMINN
UMSJÓN: HELGA KRISTJÁNSDÓTTIR
NÁTTÚRULEG
FÆÐING
Gisele Bündchen eignaðist nýverið
strák sem hún nefndi Benjamin. Hún
segist ekkert hafa fundið fyrir
sársauka við fæðingu drengsins og
ekki viljað nein verkjalyf eða
deyfingu en hún átti drenginn í
baðkarinu heima. Það eru ekki allar
konur sem myndu treysta sér í svo
náttúrulega fæðingu en svona var
þetta gert öldum og árþúsundum
saman áður en læknavísindunum
fleytti fram.
VIKTRORÍUTÍMA-
BILIÐ INNBLÁSTUR
Ofurfyrirsætan Coco Rocha er komin
með nafn á nýja tískulínu sína, en
hún nefndi hana Rococo. Hún
frumsýndi kjól frá línunni sinni á
Grammy-hátíðinni á dögunum.Hún
segist heillast af fötum sem sækja
innblástur sinn til Viktoríutímabilsins.
SAMA OG 2001
Britney Spears vakti athygli á
Grammy-hátíðinni fyrir að klæðast
fötum svipuðum þeim sem hún
klæddist árið 2001. Kjóllinn er úr
gegnsæju efni og er frá Dolce &
Gabbana. Hárið á henni hefur ekki
verið jafnfallegt síðan áður en hún
rakaði það af, en í þetta sinn nutu
dökkir lokkar hennar sín vel.
Beyoncé Fór á milli staða
í New York á miðvikudag
til að kynna ilminn og
skipti um kjól í tækifæri.
Hvenær byrjaðir þú að syngja?
„Ég byrjaði fyrir alvöru að syngja í
kringum sjötta bekk. Þá tók ég þátt í
minni fyrstu söngkeppni og stóð þar
uppi sem sigurvegari. Ég man sterk-
lega eftir þessu því ég var ótrúlega
stressuð. Söng lagið hennar Celine
Dion, Immortality, og þá uppgötvaði
ég að ég vildi verða söngkona.“
Var Eurovision alltaf draumurinn?
„Eurovision hefur alltaf verið draum-
ur fyrir mér. Ég er í skýjunum
með að fá að vera með í undankeppn-
inni ár. Burtséð frá því hvort ég kemst
áfram eða ekki, þá er þetta frábær
reynsla og búið að vera æðislega gam-
an.“
Hver er fyrsta
Eurovision-minningin?
„Klárlega þegar ég horfði á keppnina
árið 1998, þá níu ára gömul. Íslend-
ingar voru ekki með, en ég sat sem
klettur með ömmu minni, með stiga-
töflu sem ég hafði klippt út úr ein-
hverju blaðinu, og spáði fyrir um öll
lögin og úrslitin. Hvort ég hafði rétt
fyrir mér er hins vegar önnur saga.“
Hvert er uppáhalds
Eurovision-lagið?
„Ég get hlustað á lagið Maria Magda-
lena aftur og aftur. Það keppti fyrir
Króatíu 1999. Lagið „Sá þig“ úr und-
ankeppninni árið 2003 í flutningi
Þóreyjar Heiðdal er uppáhalds ís-
lenska lagið mitt.“
Hvaða söngkonu
líturðu mest upp til?
„Beyoncé. Ég hef orðið rosalegur að-
dáandi síðustu mánuði. Ég horfi
á DVD með henni og er með stjörnur
í augunum. Ótrúlegt raddsvið, útgeisl-
un og hrikalega flottur listamaður.“
Hvernig er Eurovision-tískan
frábrugðin hefbundinni tísku?
„Tískan í Eurovision er öðruvísi
að því leytinu til að þú hefur um það
bil þrjár mínútur til slá í gegn. Fötin
sem þú ert í verða að vekja athygli.
Maður sér allt frá glæsilegustu gal-
akjólum yfir í mestu múndering-
ar, samanber finnsku skrímslin sem
unnu fyrir nokkrum árum.“
Hverju muntu klæðast
á lokakvöldinu?
„Ég mun klæðast öðruvísi kjól en ég
klæddist síðast, en ég fékk sterk við-
brögð við þeim kjól eftir undanúrslita-
kvöldið. Bæði góð og slæm. En það er
bara eitthvað sem maður verður að
vera undirbúinn fyrir. Á úrslitakvöld-
inu verð ég klædd sérsaumuðum kjól.
Sigrún Ragna, frænka mín, auk Haffa
Haff hönnuðu kjólinn. Erla Fanney
Óskarsdóttir sá um lokaútkomu og að
sauma kjólinn. Ég er rosalega sátt við
útkomuna en hann mun vera hern-
aðarleyndarmál. Eina sem ég get deilt
með fólki er að hann verður fjólublár
og svartur.“
Mestu tískuslys Eurovision?
„Því miður fannst mér kjóllinn sem
Chiara klæddist í fyrra ekki nógu góð-
ur. Mesta tískuslysið yfirhöfuð finnst
mér fyrst og fremst vera sú pressa að
vera sem minnst klæddur.“
Flottustu Eurovision-dressin?
„Það eru fjögur dress sem mér finnst
standa upp úr. Fyrst er það Hanna
Pakarinen sem keppti fyrir Finnland
árið 2007. Þetta var mjög rokkað lag og
mér fannst eitthvað mjög töff við kjól-
inn. Í fyrra söng Jade Ewen fyrir Bret-
land. Mér fannst kjóllinn hennar mjög
smekklegur og fallegur. Svo finnst mér
alltaf fallegt þegar atriðin eru þjóðleg,
búningarnir eða lögin. Armenía sendi
systur í fyrra og mér fannst klæðnað-
urinn þeirra mjög öðruvísi og smart.
Að lokum vil ég nefna þann klæðn-
að sem stendur upp úr fyrir að þora
að vera látlaus: Árið 2007 sendi Ung-
verjaland söngkonu sem söng blues-
lag í gallabuxum og bol.“
Íris Hólm hefur vakið athygli í undankeppni Eurovision í ár. Hún er til alls líkleg í úrslit-
unum um helgina en DV spurði hana út í Eurovision og tískuna sem fylgir keppninni.
OG -SIGRAR Í EUROVISION
TÍSKUSLYS
Íris Hólm Er margt til
lista lagt. MYND SIGTRYGGUR ARI