Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2010, Blaðsíða 33
alltaf,“ segir Hrefna en sex ár eru liðin frá því ajð
Skoppa og Skrítla litu dagsins ljós. Þær vita því vel
hvað þarf til að búa til góða barnasýningu.
„Það skiptir rosalega miklu máli að maður
hafi gaman af þessu sjálfur. Ef maður hefur það
þá hefur maður hjartað með sér og það hlýtur að
smita út frá sér. En umfram allt að elska viðfangs-
efnið.“
ALLT AÐ GERAST Í BANDARÍKJUNUM
Hrefna og Linda fara til Bandaríkjanna eftir tvær
vikur og dvelja í Boston og New York. Nú þeg-
ar hafa fjárfestar í Bandaríkjunum lýst yfir mikl-
um áhuga á að semja við þær um verkefnið og
vinna að þróun nýrra tækifæra. Þær Hrefna og
Linda hafa sett saman hóp af sérfræðingum úti í
Los Angeles til að sjá um þróun á alþjóðaútgáfu
byggðri á íslenskri útgáfu Skoppu og Skrítlu. Eru
þær komnar með John Hardman sem listræn-
an stjórnanda að verkefni sínu í Bandaríkjun-
um og Brendu Wooding sem alþjóðlegan sölu-
stjóra Skoppu og Skrítlu. Þau tvö eru mikils metin
í Bandaríkjunum og verða Hrefna og Linda með
annan fótinn vestan hafs. „Það þýðir ekkert að
spá í þreytu. Maður sefur bara í vélinni og mætir
svo ferskur á fundi. Síðast þegar við skutumst til
Ameríku var þetta þannig,“ segir Hrefna og Linda
bætir við:
„Það var búið að ákveða að sýningin yrði unn-
in hratt og örugglega. Við eigum náttúrulega alla
búninga og leikmuni tilbúna en svo eins og gjarn-
an gerist þá stækkar þetta og í síðustu viku upp-
götvuðum við hvað þetta er orðið mikið fyrir-
tæki. Þetta er tæknilega flókið en það er gaman.
Við bökkuðum samt aðeins því þetta er fyrir allra
minnstu vinina okkur og þeir eru ekki að koma í
leikhús til að sjá eitthvert Avatar-dæmi. Aðalmál-
ið er að hjartað sé á réttum stað, það sé einlægni
og að það sé gott að koma í leikhúsið – það er það
sem okkur finnst mikilvægast. Að þau komi og
eigi dýrlega stund.“
Á AÐ BERA VIRÐINGU FYRIR BÖRNUM
Gunnar Helgason leikstýrir þeim í fyrsta sinn
en hann er enginn nýgræðingur í að gera gott
og skemmtilegt barnaefni. Hópurinn sem hef-
ur komið nálægt þessari sýningu hefur enda
skemmt sér vel og það hefur mikið verið hlegið.
„Gunni er bara sjálfur svo mikið barn í sér. Alveg
á sömu hillunni og við erum. Þegar við komum
inn í leikhúsið verðum við alveg eins og krakkar.
Höfum gaman af lífinu og hömumst og hlæjum.
Gunni veit alveg hvað á að segja og gera í leik-
húsi. Hann hefur mikla reynslu í því, ekki bara að
stjórna heldur líka að vera á sviðinu,“ segir Linda
og bætir við að það sé ekkert auðveldara að gera
sýningu númer þrjú en númer eitt. „Við erum eig-
inlega á byrjunarpunkti því þessi er svo miklu
stærri en allar hinar.
Við erum komnar með ákveðinn grunn – það
þarf ekki að finna neina karaktera, bara heiminn
í kringum þær Skoppu og Skrítlu. Þetta er samt
ábyrgð, þetta er hópur sem maður þarf að bera
virðingu fyrir. Það á ekki að fylla börnin af vitleysu
og einhverjum ranghugmyndum um lífið. Þó að
það sé lítil og stutt teiknimynd í sjónvarpinu getur
hún haft gríðarleg áhrif.
Það skiptir máli hver boðskapurinn er. Litla
fólkið er að læra á lífið og það verður það sem við
fyllum það af,“ segir Hrefna.
VEGUM HVOR AÐRA UPP
Þær Linda og Hrefna eru búnar að vera í dag-
legum samskiptum í hartnær sex ár – frá morgni
til kvölds. Árið 2010 verður mikið ferðast á milli
Vesturheims og Íslands og því ekki úr vegi að
spyrja hvort þær verði aldrei þreyttar hvor á ann-
arri. „Nei í rauninni ekki. Við þurfum á hvor ann-
arri að halda. Ég held það,“ segir Hrefna og Linda
bætir við: „Það eru svo margir hlutir sem þarf að
hugsa um og þetta er eins og gott hjónaband – við
vegum hvor aðra upp. Það er ákveðin verkaskipt-
ing og mikið traust.
Við erum búnar að vera að þessu í sex ár og
höfum lent í ýmsu. Þetta er búið að vera lær-
dómsríkt og við eigum fullt af hugmyndum á lag-
er sem við eigum eftir að framkvæma og langar að
gera.“ benni@dv.is
M
Æ
LI
R
M
EÐ
...
... BRÁÐUM HATA ÉG ÞIG
Leikrit útskriftarhóps Nemenda-
leikhúss LHÍ. Þetta er býsna góður
hópur og ættu
flestir að eiga
möguleika eftir
útskrift.
... FAUST
Leikur Vestur-
portsmanna
og Leikfélags
Reykjavíkur er
vel unninn og ásjálegur á allan
hátt.
... THE Road
Algjör
eymd en
ágætis
ræma.
... GÓÐUM ÍSLENDINGUM
Það var margt
reglulega smell-
ið í þessu sem
auðheyrilega
hitti í mark.
... TILBRIGÐI VIÐ STEF
Ágætis verk
í Iðnó.
... IT´S COMPLICATED
Ótrúlega illa
heppnuð
þrátt fyrir
gott úrval
leikara.
M
Æ
LI
R
EK
KI
M
EÐ
...
FÓKUS 5. febrúar 2010 FÖSTUDAGUR 33
Hljómsveitin Árstíðir fær aðstoð við upptökur:
Vinna með Ólafi Arnalds
FÖSTUDAGUR
n Rokk á Sódómu
Þriðji Afleggjari X-ins 977 fer fram
á föstudagskvöld á Sódómu. Fram
koma hljómsveitirnar Kimono,
Mammút, Úlpa og Morðingjarnir.
Þarna eru komin saman nokkrar af
bestu rokkgrúppum landins. Kostar
1000 kall inn og húsið er opnað kl.
23.
n Spot
Sjóðheit Boogienights-stemning sem
aldrei fyrr! Það er enginn annar en
sjálfur Siggi Hlö í öllu sínu veldi og
diskóboltinn Valli Sport sem munu
saman fá fólk til að dansa frá sér allt
vit. Það kostar 1200 krónur inn og
húsið er opnað klukkan 23.
n Ljótu hálfvitarnir á Græna
hattinum
Ein allra skemmtilegasta hljómsveit
landsins, Ljótu hálfvitarnir, mun loks
gleðja Akureyringa með tónleikum á
Græna hattinum. Vegna gríðarlegra
vinsælda verður að tryggja sér miða
í tíma því að það hefur alltaf verið
uppselt á tónleika þeirra þar. Allir
norður!
n Menn ársins á Rósenberg
Hljómsveitin Menn ársins leikur fyrir
gesti og gangandi á Kaffi Rósenberg
í kvöld. Þetta er skemmtilegt band
sem spilar lög að eigin geðþótta. Það
verða frumsamin sem og tökulög.
Menn ársins eru Sváfnir Sigurðarson,
Haraldur Vignir Sveinbjörnsson,
Sigurdór Guðmundsson og Kjartan
Guðnason.
LAUGARDAGUR
n Duplex #4 á Sódómu og
Batteríinu
Duplex-kvöld númer fjögur verður
haldið um helgina á skemmtistöð-
unum Batteríinu og Sódómu. Fram
koma hljómsveitirnar Ultra Mega
Technobandið Stefán, Sometime,
Cliff Clavin, Dynamo Fog, Futuregr-
apher, Tonik og Mukkaló. Það kostar
1000 krónur inn og húsið er opnað kl.
21. Kvöld sem enginn má missa af.
n Pallapartí á Nasa
Það er alltaf hægt að treysta á stuð
að eilífu þegar Páll Óskar er við
skífurnar. Hann ætlar að vera með
Eurovision-partý Páls Óskars í kvöld á
Nasa í tilefni af
Söngvakeppni
sjónvarpsins
og mun þakið
eflaust rifna
af húsinu. Það
kostar 2000
inn og er húsið
opnað klukkan
23. Forsala á
föstudegi milli
13 og 17.
n Vítamín í Keflavík
Það er hljómsveitin Vítamín sem
kemur og heldur alvöru ball í Top of
the Rock í Keflavík á laugardaginn.
Lagalistinn samanstendur af gömlu í
bland við nýtt. Þetta eru öll balllögin
sem fólk þekkir vel. Það kostar aðeins
1000 krónur inn og fylgir drykkur
með. Tilboð á barnum.
n Hvíta húsið Selfossi
Styrktarball meistaraflokks
knattspyrnudeildar Selfoss verður
í Hvíta húsinu á Selfossi. Ingó og
Veðurguðirnir ætla heiðra gesti með
nærveru sinni og sínum skemmtilegu
tónum. Það kostar 2000 krónur inn
og er húsið opnað klukkan 23. 18 ára
aldurstakmark.
n SSSól á Spot
Í fyrsta skipti á Spot munu Helgi
Björnsson og félagar hans í SSSól
rokka þakið af kofanum. Það er langt
síðan maður hefur heyrt slagara á
borð við Halló, ég elska þig og Geta
pabbar ekki grátið? á sviði. Það kostar
1800 krónur inn og hefst miðasala
klukkan 22.
Hvað er að
GERAST?
HJÓNABAND
FÁ ALDREI NÓG Hrefna og Linda fá aldrei nóg hvor af annarri né því að vera Skoppa og Skrítla. MYND SIGTRYGGUR ARI
SAMAN Á SVIÐI Hrefna og Linda
á Litla sviðinu í Borgarleikhúsinu. Við þurfum á hvor annarri að halda.
Tónlistarmaðurinn geðþekki Ólaf-
ur Arnalds og hljómsveitin Árstíðir
ætla leiða saman hesta sína á næst-
unni og vinna nýtt lag saman. „Ól-
afur er mjög góður vinur okkar og
hefur áður unnið með okkur,“ seg-
ir Ragnar Ólafsson, gítarleikari og
söngvari og segist er spenntur yfir
samstarfinu. „Við í hljómsveitinni
höfum miklar mætur á honum og
það er í raun mikill heiður að fá að
vinna með honum.“
Ólafur mun vera upptökustjóri
og pródúser á nýju lagi þeirra en
eins og áður kom fram er hljóm-
sveitin ekki ókunn þessum 24 ára
gamla snillingi. Hann aðstoðaði
þá við upptökur á plötu sem kom
út í kjölfar tónleika í Fríkikjunni í
desember 2008. Auk þess sem tveir
meðlimir Árstíða hafa spilað með
honum. Það eru þeir Karl Aldin-
steinn fiðluleikari og Hallgrímur
Jóhann Jensson sellóleikari. „Það
mun bara vera gaman að fá að
vinna með honum,“ segir Ragnar.
Árstíðir hafa verið að gera það
gott síðastliðið ár og gaf meðal ann-
ars út sína fyrstu plötu í júní 2009.
Ragnar er nú staddur í Stokkhólmi
að undirbúa tónleikaferð sem
hljómsveitin stefnir á í maí. „Ég er
bara að fara á milli staða og bóka
þá og tala við fjölmiðla og leggja
grunninn . Það gengur mjög vel.“
asdisbjorg@dv.is
Heiður Ragnar Ólafsson, gítarleikari
og söngvari Árstíða segir mikinn
heiður að vinna með Ólafi.