Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2010, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2010, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 5. febrúar 2010 FRÉTTIR „Ef við stöndum saman verðum við besta ríki í heimi. Við gerum ráð fyrir öllum norrænu ríkjunum í hinu nýja ríki. Íslandi, Noregi, Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi og sjálfstjórnarsvæðum Græn- lands, Færeyja og Álandseyja,“ segir Thomas Thyrre strup frá sam- tökunum Norræn sýn. Samtök- in berjast fyrir að öll Norðurlönd- in verði sameinuð í eitt öflugt ríki með sjálfstjórnarhéröðum þar sem lýðræði yrði haft að leiðarljósi. Norræn sýn (Nordisk Vision), er starfa í Noregi, Danmörku og Sví- þjóð, hafa í nokkur ár barist fyrir hugmyndinni um sameinað stór- ríki á Norðurlöndum. Formað- ur Danmerkurdeildar samtak- anna, Thomas Tyrrestrup, segir í samtali við DV að skoðana- kannanir sýni að Norðurlanda- búar séu almennt áhugasam- ir um aukið samstarf þjóðanna fimm. Tíunda stærsta hagkerfið Sænski rithöfundurinn Gunnar Wetterberg setti fram hug- mynd um norrænt sambandsríki í blaðagrein sem birt- ist í sænska dagblað- inu Dag- ens Nyh- eter á sama tíma og Norð- urlandaráðsþing var haldið í Stokk- hólmi í október í fyrra. Wetterberg, sem er sagnfræðingur, stakk upp á því að norrænu ríkin fimm samein- uðust og mynduðu nýtt ríki. Wett- erberg benti á að hagkerfi Norður- landanna yrði það tíunda stærsta í heimi, stærra en hagkerfi ríkja eins og Rússlands og Brasilíu. Halldór til í tuskið „Ef norrænu ríkin eiga að taka skref í þá átt að mynda sambands- ríki er nauðsynlegt að þau öll gerist aðilar að NATO, ESB og evru-sam- starfinu,“ segir Halldór Ásgríms- son, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, í tilkynn- ingu sem bendir til að hann styðji hugmynd Wett- erbergs og Norrænn- ar sýnar. Halldór Ásgríms- son hef- ur sagt að sér fynd- ist afar já- kvætt að hugmynd- ir Gunnars Wetter- berg hefðu kveikt umræður um norrænt samstarf. Háar upphæðir sparaðar Á heimasíðu Norrænnar sýnar má lesa stefnuskrá samtakanna. „Sameinuð Norðurlönd geta orðið efnahagslega sterk. Norðurlöndin eiga gríðarlegar náttúruauðlindir og hafa mikla getu á mörgum svið- um. Þar að auki myndum við losna við ríkisstofnanir sem vinna sama starf á mörgum stöðum. Við gæt- um til dæmis haft eina veðurstofu, eina vegagerð, eitt utanríkisráðu- neyti og margt fleira. Hægt væri að spara háar upphæðir með því að leggja niður fjórar af hverjum fimm ríkisstofnunum og fjögur af hverjum fimm sendiráðum.“ Auðvelt að vinna saman Thomas Thyrrestrup er einn stofn- meðlima samtakanna. „Við erum samtök fólks sem trúir að sam- einuðum Norðurlöndum myndi vegna betur á alþjóðasviðinu. Ef við sameinumst höfum við betri efnahagslega stöðu og menning- arlega,“ segir Thomas. Aðspurð- ur hvers vegna samtökin telji það segir hann að fólk af sama upp- runa vinni vel saman. „Það þýðir þó ekki að við álítum menningu annarra minna virði. Okkur finnst að menning Norð- urlandanna sé einstök og menning Miðjarðarhafs- landanna frábær á sama hátt. Við höldum því einn- ig fram að þar sem við deilum sama menning- arlega arfi sé mjög ákjós- anlegt að vinna saman og auðvelt. Við erum þverpólitísk samtök og stöndum ekki í flokkapólitík. Í röð- um okkar eru íhaldsmenn og sósí- alistar og allt þar á milli.“ Besta land í heimi „Ríkin fimm búa yfir ríkri sér- fræðikunnáttu á ólíkum sviðum. Norðmenn hvað olíu varðar, Sví- ar í iðnaði, Íslendingar í fiskveið- um og Danir kunna að koma fram með lausnir á ýmsum sviðum. Ef hægt væri að samnýta þekkinguna yrðum við líklega besta landið í heiminum,“ segir Daninn Thomas Thyrrestrup. Aðspurður hvort norrænt sam- starf sé ekki öflugt og gott í dag eins og það er, spyr Thomas blaða- mann á móti af hverju við ætt- um að draga mörkin við það. „Við Norræn samtök berjast fyrir sameiningu allra Norðurlanda í nýtt stórríki. Danskur meðlimur segir að nýtt, sameinað ríki yrði besta land í heimi. Yrði af slíkri sameiningu yrði til tíunda stærsta hagkerfi í heimi, stærra en hagkerfi Rússlands og Brasilíu. HELGI HRAFN GUÐMUNDSSON blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is Norræna stórríkið n Norðurlandabúar eru 25.524.773 talsins. Sameinað ríki yrði 47. fjöl- mennasta ríki heims og með svipaða íbúatölu og til dæmis Venesúela, Sádi-Arabía, Malasía og Afganistan. n Samanlagt flatarmál Norðurlanda er 3.501.721 ferkílómetri. Sameinað ríki yrði sjöunda stærsta land í heiminum, stærra en Indland. n Átta tungumál eru opinber tungu- mál á Norðurlöndunum: Danska, færeyska, finnska, grænlenska, íslenska, norska, samíska og sænska. n Á Norðurlöndunum eru fimm opinberir gjaldmiðlar: evra, sænsk króna, dönsk króna, norsk króna og íslensk króna. Fáni stórríkisins Samtökin Norræn sýn vilja að þessi gamli fáni Kalmarsambandsins verði þjóðfáni hins nýja norræna stórríkis. Fyrst í ESB og svo … Halldór Ásgrímsson, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndar- innar, hefur fagnað grein Gunnars Wetterberg um sameiningu Norðurlandanna. Hann vill þó að öll norrænu ríkin gerist meðlimir í ESB áður en þau sameinist. NOREGUR Íbúafjöldi: 4.850.440 Höfuðborg: Ósló SVÍÞJÓÐ Íbúafjöldi: 9.336.487 Höfuðborg: Stokkhólmur DANMÖRK Íbúafjöldi: 5.532.531 Höfuðborg: Kaupmannahöfn ÍSLAND Íbúafjöldi: 319.368 Höfuðborg: Reykjavík GRÆNLAND Íbúafjöldi: 57.600 Höfuðborg: Nuuk FÆREYJAR Íbúafjöldi: 48.647 Höfuðborg: Þórshöfn FINNLAND Íbúafjöldi: 5.352.000 Höfuðborg: Helsinkí ÁLANDSEYJAR Íbúafjöldi: 27.700 Höfuðborg: Maríuhöfn n Sameinað ríki Norðurlandanna gæti státað af frábæru knattspyrnuliði. Íþróttadeild DV tók saman norrænt draumalið. Norrænir heimsmeistarar? Markvörður: Jussi Jaaskelainen, Finnlandi. Hægri bakvörður: Grétar Rafn Steinsson, Íslandi. Vinstri bakvörður: John Arne Riise, Noregi. Miðvörður: Brede Hangeland, Noregi. Miðjumaður: Christian Poulsen, Danmörku. Miðjumaður: Kim Källström, Svíþjóð. Framherji: Zlatan Ibrahimovic, Svíþjóð. Framherji: John Carew, Noregi. Framherji: Nicklas Bendtner, Danmörku. Miðvörður: Daniel Agger, Danmörku. Sóknarsinnaður miðjumaður: Eiður Smári Guðjohnsen, Íslandi. „BESTA LANDIÐ Í HEIMINUM“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.