Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2010, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2010, Blaðsíða 6
SANDKORN n Hrannar B. Arnarsson, að- stoðarmaður forsætisráðherra, er með allra viðkvæmustu ein- staklingum. Hermt er að álag á hann hafi minnkað eftir að Einar Karl Haraldsson, sérleg- ur spuna- meistari, var ráðinn í forsætis- ráðuneyt- ið og varð eins konar aðstoðar- maður líka. Meginverk- efni Hrannars er sagt vera það að fylgjast með bloggi og Face- book og refsa þeim sem glefsa til ráðherrans. Í fyrrakvöld vogaði húmoristinn Sveinn Kjarval sér að setja inn eftir- farandi færslu á síðu Hrann- ars: „Ég hélt að Jóhanna þyrfti bara túlk í útlöndum.“ Hrannar lokaði umsviflaust á hann. n Viðtal Helga Seljan við Bjarna Benediktsson, formann Sjálf- stæðisflokksins, í Kastljósinu hefur vak- ið blendin viðbrögð. Bjarni var þráspurður um ábyrgð sína á við- skiptum tengdum Vafningi sem hann liðkaði fyrir. Hann hafnaði því að bera ábyrgð. Bjarni viðurkenndi að hann hefði haft af því persónulegan ávinning ef viðskiptin hefðu gengið upp og bótasjóðs- peningar Sjóvár þannig gagnast vel. Annað athyglisvert í við- talinu var að Bjarni sagðist ekki hafa átt fundi með Karli Wern- erssyni, viðskiptafélaga sínum, eftir að málið komst í hámæli með umfjöllun DV. n Einn þeirra sem horfði á Bjarna Benediktsson í Kast- ljósi var sá hárbeitti blogg- ari Björg- vin Valur Gíslason á Stöðvar- firði. Hann var andvaka eftir. „Í allt gærkvöld og fram eftir nóttu hugs- aði ég um viðtal Helga Seljan við Bjarna Ben II í Kastljósinu og þegar ég vaknaði í morgun, hljómaði þessi setning í höfð- inu á mér: Það er dásamlegt að rænulítill og óupplýstur sendill geti orð- ið formaður Sjálfstæðisflokks- ins, nokkurn veginn fyrirhafn- arlaust,“ bloggaði Björgvin Valur eftir vökunóttina. n Þeir eru fáir sjálfstæðis- mennirnir sem treysta sér til að slá skjaldborg um formann sinn. Sá eini sem heldur uppi vörnum er Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráð- herra, sem telur siðlaust af DV að fjalla um mál frænda síns af Engeyjarætt. Björn gefur Bjarna siðferðisvottorð rétt eins og Bjarni gaf Ásbirni Ótt- arssyni vottorð um að hann hefði mátt brjóta lög. Í þessu samhengi er rétt að horfa til þess að Björn var einn meðeig- enda Bjarna og fjölskyldu að BNT sem rekur bensínstöðvar N 1. Hlutur ráðherrans þáverandi var metinn á 12 millj- ónir króna. 6 FÖSTUDAGUR 5. febrúar 2010 FRÉTTIR „SJÁLFUR ER ÉG BÚINN AÐ GRÆÐA“ Nokkur hundruð Íslendinga sem lögðu sparifé sitt inn í píramídafé- lagið Finanza Forex, FFX, á árun- um 2007 og 2008 bíða enn eftir því að fá peninga sína til baka og hafa afar litlar upplýsingar um mál- ið. Fjármálaeftirlitið hefur varað við Finanza Forex sem píramída- svindli og á fjölmörgum erlendum vefsíðum er varað við félaginu. Finanza Forex kynnir fjárfesting- ar sínar sem áhættusamt gjaldeyr- isbrask sem geti skilað tíföldum hagnaði og í viðtali við DV árið 2008 sagði Sigurður Örn Leósson, einn forsvarsmanna félagsins hér á landi, að ef fólk ávaxtaði vel gæti það orðið milljarðamæringar. Frá því í bankahruninu hafa fjárfest- ar hins vegar ekki fengið krónu til baka, en Sigurður segir að nú sé von um að fólk fái peningana sína til baka. Sigurður fullyrðir að hann hafi fengið mjög alvarlegar hótanir frá órólegum fjárfestum og að ákveð- ið hafi verið að borga þá út. Banki reyndi að ræna okkur Í bréfi til íslenskra fjárfesta FFX, sem DV hefur undir höndum, er reynt að róa óþolinmóða fjárfesta niður. Í bréfinu, sem gefur afar litlar upplýsingar um gang mála, seg- ir meðal ann- ars: „Markmiðið með starfi okkar er að sýna fram á að fjárfestingar, fjárfestingar og ávinningur sem starfsemi okkar hefur leitt af sér sé byggt á lög- mætum grunni og á réttum leyf- um. Við erum fullkomlega þess fullvissir að geta sannfært yfir- völd og endurgreitt fjárfestum allt þeirra fé.“ Aðspurður hver staðan á mál- inu sé núna, segir Sigurður Örn: „Staðan er sú að í bankahruninu lentu þeir í því að Crowne Gold- bankinn reyndi að stela af þeim sjóðunum,“ segir hann. Sigurður fullyrðir að Crowne Gold-bankinn hafi reynt að nýta sér glufu í lögum um peninga- þvætti til þess að hirða sjóðina. Verið sé að leita uppi hugasnlegt peningaþvætti sem teygir anga sína til Kólumbíu og það standi í vegi fyrir endurgreiðslu. „Það eru bara málaferli í gangi og þeir eru búnir að vinna þrjú af fjórum málum. Við erum með bandarískan lögmann til að verja hagsmuni okkar, hann hefur rætt við dómara og samkvæmt honum er ekki þörf á lögmanni því pen- ingunum verður skilað. Það hef- ur líka verið afsannað að þetta sé Ponzi-svindl. Fólk hefur upplýs- ingar og það er hægt að sjá þessi mál í bandaríska dómskerfinu, þau eru ekta og það hefur enginn verið blekktur,“ segir hann. Segir marga hafa tífaldað fjárfestinguna Sigurður er vongóður um að þegar dómsmálin í Bandaríkjunum hafa unnist muni fjárfestar hér á landi fá hverja krónu sem þeir lögðu inn til baka – með vöxtum. „Eftir fáar vikur verður greitt út af þeim hluta sem tengist fjárfestingum í Evrópu. Það eru sjóðir sem ekki eru frystir og það er verið að losa út fjárfestingarnar þar,“ segir Sig- urður Örn. Hann segir að innan fárra vikna muni landsmenn sjá heilsíðuauglýsingar í dagblöðum þar sem staða mála verði útskýrð, en fullyrðir að hann og fleiri fjár- festar í Finanza Forex hafi grætt á þessu. „Ég þekki menn sem hafa allt að tífaldað fjárfestingu sína. Sjálfur er ég búinn að græða eitt- hvað á þessu.“ En hvers vegna grædduð þið en aðrir hafa ekki séð neina pen- inga? „Þeir sem tóku peningana heim áður en bankarnir hrundu græddu. Í bankahruninu 2008 lenti þetta í stoppi.“ Staðan er sú að í bankahrun- inu lentu þeir í því að Crowne Gold-bankinn reyndi að stela af þeim sjóðunum. Finanza Forex, sem fékk hundruð Íslendinga til að taka þátt í gjaldeyrisbraski í von um skjótfenginn ofurgróða, hefur enn ekki greitt út krónu til margra fjárfesta. FME var- aði við viðskiptunum. Sigurður Örn Leósson segir Crowne Gold-bankann hafa reynt að ræna sjóði fyrirtækisins og félagið standi í málaferlum til að fá peningana aftur. Íslendingar muni hins vegar fá hverja krónu með vöxtum til baka á vormánuðum. Kæru fjárfestar FFX Á þessum fyrstu dögum febrúar viljum við upplýsa um þróun mála. Með tilliti til fjárfestinga í Bandaríkjunum, þá hefur náðst góður árangur síðastliðnar vikur í að undirbúa nauðsynleg skjöl til þess að sanna lögmæti fjárfestinga okkar og fjárfesta okkar og bandarísk stjórnvöld ætla einnig að rannsaka hvort einhvejir hafi fjárfest hjá okkur með ólöglegum peningum. Markmiðið með starfi okkar er að sýna fram á að fjárfest- ingar, fjárfestingar og ávinningur sem starfsemi okkar hefur leitt af sér sé byggt á lögmætum grunni og á réttum leyfum. Við erum fullkomlega þess fullvissir að geta sannfært yfirvöld og endurgreitt fjárfestum allt þeirra fé. Varðandi fjárfestingar í Evrópu þá verður búið að losa þar fjárfestingar innan fárra vikna og fjárfestar geta ráðstafað þeim hluta. Við skiljum að skortur á upplýsingum skapar spennu og óvissu, en skylda okkar er að tryggja að fjárfestar haldi sínu og getum við því takmarkað upplýst fjárfesta um gang mála, þó svo við vitum að það er ekki vinsælt. Við erum að vinna dag og nótt að því að leysa þessi mál. Bestu kveðjur E. Administration M.G. Bréf til fjárfesta Sigurður Örn Leósson „Það hefur líka verið afsannað að þetta sé Ponzi- svindl. Fólk hefur upplýsingar og það er hægt að sjá þessi mál í bandaríska dómskerfinu, þau eru ekta og það hefur enginn verið blekktur.“ VALGEIR ÖRN RAGNARSSON blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is Fjármálaeftirlitið varaði við Íslenskum fjárfestum var ráðlagt að treysta ekki Finanza Forex. Fyrrverandi forstjóri Milestone segir Bjarna Benediktsson hafa rætt við sig: Bjarni spurði um Vafning „Já, já, við höfum svo sem alveg átt samskipti. Er það eitthvað óeðlilegt?“ spyr Guðmundur Ólason, fyrrver- andi forstjóri Milestone, þegar hann er spurður um það hvort Bjarni Bene- diktsson hafi átt í samskiptum við fyrr- verandi eigendur og stjórnendur Mil- estone eftir að DV byrjaði að fjalla um Vafningsmálið í desember. Guðmundur segir að Bjarni hafi haft samband við sig til að ræða um Vafningsmálið. Guðmundur segir jafnframt að Bjarni og eigendur og stjórnendur Milestone hafi ekki átt fund út af Vafn- ingsmálinu upp á síðkastið. Bjarni var spurður að þessu atriði í viðtali við Helga Seljan í Kastljósi á miðvikudag- inn og neitaði Bjarni því að hafa fund- að með þeim Milestone-mönnum. Orð Guðmundar staðfesta að sam- skipti hafi átt sér stað á milli Bjarna og Milestone þó að eiginlegur fundur hafi ekki verið haldinn. „Ég get staðfest það að við höfum ekki átt fund út af þessu máli í kjölfar umfjöllunar DV. Ég get svarað fyrir mig en ég get ekki svar- að fyrir hönd annarra starfsmanna og eigenda Milestone,“ segir Guðmundur. Hann segir að samskiptin við Bjarna hafi gengið út á það að Bjarni hafi spurt um Vafningsviðskiptin og eðli þeirra. Bjarni hefur því vilj- að glöggva sig á viðskiptunum en lík- legt er að hann hafi viljað spyrja Guð- mund um tiltekna þætti þeirra, eins og til dæmis fasteignaverkefnið í Makaó. Bjarni hefur því leitað til Guðmundar til að fá betri heildarmynd af Vafnings- viðskiptunum. „Við höfum talað sam- an, alveg eins og ég er að tala við þig núna,“ segir Guðmundur. ingi@dv.is Rætt um Vafning Fyrrverandi forstjóri Milestone segist hafa átt í samskiptum við Bjarna Bene- diktsson út af Vafningsmálinu frá því DV byrjaði að fjalla um málið í desember.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.