Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2010, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2010, Qupperneq 10
10 FÖSTUDAGUR 5. febrúar 2010 FRÉTTIR „VAR ÞETTA EINHVER LEIKÞÁTTUR?“ Forsetaembættið hefur ekki enn rökstutt hvers vegna maður var ráðinn í stöðu umsjónarmanns á Bessa- stöðum þrátt fyrir að uppfylla ekki skilyrði auglýs- ingar. Umsækjendur furða sig á ráðningunni. „Hvernig í veröldinni geta það tal- ist vönduð vinnubrögð að taka fjór- tán manna hóp út, og svo aftur fjóra menn úr fjórtán manna hópnum og einn þeirra er ekki með meirapróf?“ spyr Sveinn Erlendsson lögreglu- þjónn, einn umsækjenda um stöðu umsjónarmanns fasteigna á Bessa- stöðum. „Var þetta einhver leikþáttur til þess að sýna fram á vinnubrögð og vandaða úrlausn? Slíkt leitar á huga manns þegar svona ber við,“ spyr Sveinn. Að mati sérfræðinga hjá BSRB var óeðlilega staðið að ráðningunni hjá forsetaembættinu um áramótin. DV greindi frá málinu í síðustu viku. Embætti forseta Íslands réð mann í embætti umsjónarmanns fasteigna á Bessastöðum þrátt fyrir að hann uppfyllti ekki kröfu auglýsingar um meiraprófsréttindi. Forsetaembætt- ið hefur ekki enn þá útskýrt hvers vegna ráðið var þannig í starf um- sjónarmanns þrátt fyrir að DV hafi sent embættinu formlega fyrirspurn um málið. DV ræddi við nokkra umsækjend- ur sem telja að forsetaembættið þurfi að gera almennilega grein fyrir ráðn- ingunni. Þeirra á meðal er umsækj- andi sem athugar nú réttarstöðu sína með lögfræðingi. Vísbendingar hafa einnig borist um að ófaglega hafi verið að staðið að ráðningu í starf ráðsmanns árið 2003. Óvönduð vinnubrögð Sveinn Erlendsson lögregluþjónn var einn umsækjendanna. Hann upp- fyllti öll skilyrði auglýsingarinnar og er handhafi meiraprófsskírteinis. Hann telur athugavert að sá sem ráð- inn var í starfið hafi ekki uppfyllt öku- réttindaskilyrðið er auglýst var eftir. „Það er það sem maður hengir sig á,“ segir Sveinn en hann var einn þeirra sem komust alla leið í fjögurra manna úrtak umsækjenda. Hann undrast það að maður hafi verið ráð- inn án þess að hann uppfyllti þær kröfur sem voru teknar fram þegar starfið var auglýst. Manninn vantaði meiraprófið. „Sem er í sjálfu sér eina prófið sem krafist er. Ég skil það ekki hvernig hægt er að vinna svona úr umsóknum – að maður sem uppfyllir ekki skilyrðin fari í gegnum öll úrtök og fái svo stöðuna. Maður skyldi ætla að sá sem uppfyllir ekki skilyrði um eina prófið sem krafist er ætti ekki að eiga heima slíku úrtaki,“ segir Sveinn Erlendsson. Kom á óvart Hann segir að ráðningin hafi kom- ið sér verulega á óvart. „Ég spyr mig spurningar: Átti allan tímann að láta þennan mann fá stöðuna? Var þetta einhver leikþáttur til þess að sýna fram á vinnubrögð og vandaða úr- lausn? Slíkt leitar á huga manns þeg- ar svona ber við.“ Sveinn segir að í umsóknarferlinu hafi ekki hvarflað að honum að eitt- hvað óeðlilegt væri á seyði. „En það var ekki fyrr en eftir á, þegar ég frétti að maður sem uppfyllti ekki skilyrði væri kominn þarna inn, að maður velti fyrir sér hvort það hafi staðið til allan tímann að ráða hann,“ segir Sveinn. Fleiri hefðu sótt um Eftir því sem DV hefur komist næst hefðu fleiri sótt um ef þeir hefðu vitað að meirapróf væri ekki ótvírætt skil- yrði, en hættu við þar sem þeir töldu að án meiraprófs hefðu þeir ekki von um að fá starfið. Sveinn tekur undir þetta. „Ég veit um einn einstakling sem harmaði að vera ekki með meirapróf því hann langaði að sækja um starf- ið. Það hvarflaði hins vegar ekki að honum að sækja um þar sem hann uppfyllti ekki skilyrðin. Enda hugs- ar maður með sér: hvernig í veröld- inni dettur manni í hug að sækja um stöðu þar sem krafist er meiraprófs, án þess að hafa það?“ spyr Sveinn. „Það er eitt að hafa hugmyndaflugið til að sækja um slíka stöðu og annað að vera ráðinn á endanum, þrátt fyr- ir allt.“ Bíður eftir rökstuðningi Hrefna Gerður Björnsdóttir sótti um umsjónarmannsstöðuna, rétt eins og Sveinn. Hún segir rökstuðninginn fyrir ráðningunni óskýran. „Það var bara sagt að það væri búið að ráða í stöðuna og þakkað fyrir umsókn- ina. Þeir voru fallnir á tíma og maður bjóst við að fá að heyra betur í þeim. Þeir hefðu betur sleppt því að setja skilyrðið í auglýsinguna ef það var svo ekki skilyrði. Menn setja ekki eitthvað skilyrði í atvinnuauglýsingu þegar þeim er svo alveg sama hvort um- sækjendur séu með það. Ég bíð enn þá eftir ítarlegum rökstuðningi fyr- ir ráðningunni,“ segir Hrefna. Henni fannst skorta nákvæmni og gegn- sæi í ráðningarferlinu. „Þetta er bara furðulegt í heild sinni. Manni dettur alltaf í hug að það sé búið að ákveða ráðninguna fyrir fram þegar svona kemur upp, en það er auðvitað bara hugdetta,“ segir Hrefna að lokum. Gengið fram hjá Vinnu.is Þegar starf ráðskonu á Bessastöðum var laust árið 2003 leitaði forseta- embættið til ráðningarfyrirtækisins Vinnu.is til að annast umsóknarferl- ið. DV ræddi við konu sem sótti um starfið þá, en hún vill ekki láta nafns síns getið. „Vinna.is var látin sjá um þetta og ég sótti þar um ásamt um 100 manns. Mér fannst faglega staðið að öllu hjá Vinnu.is.“ Konan segir að í umsóknarferl- inu hafi Vinna.is valið þær hæfustu og þær hefðu farið í viðtöl hjá for- setaembættinu. Hún segir að þegar á hólminn var komið hafi hins vegar verið ákveðið af embættinu að ráða engan af umsækjendunum. „Það birtist allt í einu einstaklingur sem hafði ekki verið í ráðningarferlinu og öllum sagt að hann hafi verið ráðinn í starfið. Ég held að starfsfólkið hjá Vinnu.is hafi verið mjög ósátt. Það vantaði alveg faglegu vinnubrögðin, sem maður hélt að forsetaembættið ætti að sýna.“ Leikrit frá A-Ö Hún lýsir umsóknarferlinu frá 2003 eins og leikriti. „Þetta var ofboðs- lega skrýtið. Það voru allir dregnir á asnaeyrunum í mjög löngu ferli og fengu löng viðtöl. En þá birtist allt í einu maður bakdyramegin og sem sagt er að sé búið að ráða. Þetta var eins og leikrit frá A-Ö.“ Konan segist vera fegin í dag að hafa ekki verið ráðin á Bessastaði árið 2003. „Ég þakka mínum sæla fyrir að vera ekki þarna í dag. Ég fékk gæsahúð þarna því það var engin virðing borin fyrir umsækjendum.“ Það er eitt að hafa hug- myndaflugið til að sækja um slíka stöðu og annað að vera ráð- inn á endanum, þrátt fyrir allt. TRAUSTI HAFSTEINSSON blaðamaður skrifar: trausti@dv.is Beðinn um útskýringar Örnólfur Thorsson forsetaritari hefur ekki rökstutt ráðningu umsjónarmannsins nægilega, að mati umsækjenda.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.