Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2010, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2010, Síða 32
UM HELGINA LISTAMANNASPJALL INGUNNAR Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir verður með listamannaspjall á sýningu sinni Ljósbrot í Hafnarborg á sunnudag. Sýning Ingunnar er innsetning þar sem hún leyfir litaspili og form- rænum flötum módernískra málverka að mætast. Leiðsögnin hefst klukkan 15. FÍFLAR OG LÝSISTANKAR Tvær sýningar verða opnaðar í Lista- safni ASÍ um helgina. Annars vegar er það listakonan Guðrún Gunnarsdótt- ir með sýninguna Að muna sinn fífil fegurri en þar er unnið út frá fíflum og horft á þá frá ýmsum sjónarhornum með ýmiss konar tækni. Hins vegar er það ljósmyndarinn Guðmundur Ing- ólfsson með sýninguna Heimild um horfinn tíma en þar fá áhorfendur að sjá syrpu ljósmynda frá 1993 af rým- um, flestar úr lýsis- eða olíutönkum. Báðar opnanirnar eru klukkan 15 og er aðgangur ókeypis. DON DJAMMSTAFF Í ÓPERUNNI Nemendaópera Söngskólans í Reykjavík flytur um helgina óperu bræðinginn Don Djamm- staff í samstarfi við Íslensku Óp- eruna. Óperan er samansett af ýmsum þekktum atriðum úr alls fjórtán óperum og segir frá vamp- írunni Don Djammstaff, sem er yfir sig ástfanginn af mennskri konu og setur allt í uppnám til að ná ástum hennar. Leikstjóri er Sibylle Köll og um undirleik sér Hrönn Þráinsdóttir. Lokasýning er laugardaginn 6. febrúar kl. 14. Miðasala er í Íslensku Óperunni og á midi.is/opera2. MAGNIFICAT Í FELLA- OG HÓLAKIRKJU Kór Fella- og Hólakirkju, Lúðrasveit verkalýðsins og Söngsveitin Fílharm- ónía ætla að sam- eina krafta sína um helgina og flytja tónverkið Magnificat eftir breska tónskáld- ið John Rutter. Einsöngvari er Nanna María Cortes og stjórn- andi er Snorri Heimisson. Verkið verður flutt í Fella- og Hólakirkju og eru fyrri tónleikarnir á laugardaginn og þeir síðari á sunnudaginn. Báðir tónleikarnir hefjast klukkan 17. Mið- ar eru seldir í versluninni 12 Tónum og hjá kórunum og lúðrasveitinni. Taumlaus gleði 32 FÖSTUDAGUR 5. febrúar 2010 FÓKUS Leikurinn Darksiders er ein af fyrstu stóru útgáfum ársins. Og vá hvað 2010, sem ku vera ár margra skugga- legra leikja, byrjar vel. Leikmenn fara í hlutverk War, sem er einn af fjórum hestamönnum heimsendis (horseman of apocalypse.) En þeir gæta þess að góðu öflin og vondu öflin fara ekki yfir strikið, í baráttu sinni og eru þar af leiðandi æðri en bæði guð og djöfullinn. Líður nú og bíður, einhver leið- inda atburðarás fer í gang, War er sviptur hæfileikum sínum og hlut- um og sendur aftur til jarðarinnar til að kippa málunum í lag, upp á von og óvon. Birtast svo hinir ýmsu skrattar og djöflar út leikinn og allt í gangi. Darksiders er svaðalega góður leikur. Hann minnir helst á God of War, með dassi af Zeldu og mögu- lega Devil May Cry. Hasaratrið- in eru ótrúleg, en eins og í öllum svona leikjum eiga þau það til að endurtaka sig, en hér er það bætt upp með rosalegum endaköllum sem er hrein dásemd að berjast við. Þrautir leiksins geta oft verið snún- ar, en lausnir þeirra eru konfekt á fingurgómum mínum. Svo er það eitt sem Darksiders hefur fram yfir aðra leiki og það er að cut-atriðin eru ekki hallærisleg. Í sumum at- riðum rísa hárin á hnakkanum á manni og fyrr en varir gaggar mað- ur um eins og gæs. Það skín í gegn að mennirnir sem gerðu leikinn elska tölvuleikjaform- ið og finnst fátt skemmtilegra en að gera leiki. Það er þessi gleði, sköpun- argleði sem skín í gegnum allan leik- inn og henni ber að fagna. Vonandi fylgja fleiri slíkir leikir í kjölfarið, en þangað til býður Darksiders upp á næga valmöguleika. Húrra. Dóri DNA „Það var ekki á áætlun að setja upp leiksýningu þetta árið. Leikhúsin báðu okkur að setja á svið verk um þær Skoppu og Skrítlu og við ákváðum að koma hingað í Borgarleikhúsið því hér fengum við Litla sviðið. Okkur langaði að vera fleiri á sviðinu og ef maður á að stækka við sig og þróa sjálfan sig áfram þá var þetta næsta skref. Við erum búin að mynda stóran hóp af vinum og við viljum halda í hann – gera eitthvað nýtt fyrir þennan frábæra vinahóp sem við erum svo þakklátar fyrir,“ seg- ir Hrefna Hallgrímsdóttir önnur höfunda Skoppu og Skrítlu sem stíga á svið í þriðja sinn í leikhúsum borgarinnar. Hrefna hefur slegið í gegn ásamt Lindu Ás- geirsdóttur sem vinkonurnar Skoppa og Skrítla. Þær sendu frá sér bíómynd fyrir rúmu ári og eru komnar með mikla útgerð af stað í Bandaríkj- unum til að fylgja kvikmyndinni eftir en hún var einnig tekin upp á ensku. UNNIÐ Á MIKLUM HRAÐA Hrefna segir að stemmingin í hópnum sé mjög góð og mikil tilhlökkun að byrja. Allar æfing- ar hafi gengið vel en verkið er unnið á miklum hraða. Leikarar og dansarar mættu til leiks 4. jan- úar tilbúnir að byrja – búnir að læra handritið utan að. „Við erum sjö þegar mest er á sviðinu. Það eru ekki bara Skoppa og Skrítla eins og var þegar við byrjuðum.“ Þrír dansarar eru í sýningunni auk þeirra Vikt- ors Más Bjarnasonar sem bregður sér í fjölmörg hlutverk og Vigdísar Gunnarsdóttur sem túlk- ar Lúsí. „Þetta er orðið mikið meira um sig. Það er komið miklu meira af fólki bak við tjöldin og meira fólk á sviðinu þannig að útgerðin stækkar GUÐRÚN AUÐUNS- DÓTTIR Í ARTÓTEKI Sýning Guðrúnar Auðunsdótt- ur, Grunnsópað hefi ég gjörvallar hirzlur, verður opnuð í Artóteki föstudaginn 5. febrúar. Þetta er þriðja einkasýning Guðrúnar en hún á að baki langan og fjölbreytt- an starfsferil við sjónlistir. Hún hefur líka unnið sem kennari og rekið gallerí ásamt því að vera aðstoðarmaður Dachen Lindberg, fatahönnuðar í Kaupmannahöfn. Á sýningunni má finna textílverk, brot úr gömlum ljósmyndum, málverk og skissur. Opnunin er klukkan 17 og er öllum opin. Hrefna Hallgrímsdóttir og Linda Ásgeirsdóttir frum- sýna nýjasta verk sitt um Skoppu og Skrítlu um helgina. Gunnar Helgason leikstýrir. Hrefna og Linda búa nánast í ferðatöskum þetta árið en þær verða með annan fótinn í hinni stóru Ameríku þar sem Skoppa og Skrítla verða stærri og stærri með hverjum deginum. HJÓNABAND Eins og gott Darksiders „Það skín í gegn að mennirnir sem gerðu leikinn elska tölvuleikjaformið og finnst fátt skemmtilegra en að gera leiki.“ DARKSIDERS Tegund: Ævintýraleikur Spilast á: Xbox 360, PS3. TÖLVULEIKIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.