Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2010, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2010, Blaðsíða 46
F á málverk listasög- unnar hafa vakið upp jafnmargar vanga- veltur og Mona Lisa Leonardos da Vinci og er málverkið af mörg- um metið eitt hið frægasta í sögu lista. Vangavelturnar hafa snúist um hver fyrirsætan sé og ekki síst hvað búi að baki brosi Monu Lisu. Almennt er talið að fyrirsætan hafi verið Lisa del Giocondo sem til- heyrði fjölskyldu í Flórens, og gift- ist vefnaðarvöru- og silkikaup- manni. En hið tvíræða bros hefur verið túlkað á fjölda vegu og ólíka. Fjöldi lærðra manna hefur reynt að varpa ljósi á ólíka túlkun fólks á brosinu dularfulla og hefur með- al annars vísað í vísindakenning- ar um sjón mannsins. Einnig hafa þeir viðrað að túlkun fólks byggi á fyrir fram gefnum ályktunum um sjálfsmynd og tilfinningar Monu Lisu. Kólesteról og útfelling Nú hefur ítalskur vísindamaður, Vito Franco í Palermo-háskólan- um, viðrað þá kenningu sína að bros Monu Lisu megi rekja til þess að Mona Lisa hafi þjáðst af of háu kólesteróli. Máli sínu til stuðnings bendir Vito á að við nána athugun á andliti Monu Lisu megi sjá merki um uppsöfnun fitusýra í kringum augun og að fyrirsætan hafi glímt við útfellingu sem stafar af upp- söfnun kólesteróls undir húðinni sem sé áberandi í augnkrók vinstra auga hennar. Vito Franco fullyrðir aukin- heldur að hann hafi fundið aug- ljós merki sjúkdóma í nokkrum merkustu listaverkum listasögunn- ar. Á meðal þeirra sjúkdóma sem Vito nefnir eru vansköpuð bein og nýrnasteinar og segir hann upp- götvun sína varpa nýju ljósi á þá fullkomnun sem gjarna hefur verið tengd umræddum verkum. Annað sjónarhorn Í viðtali við breska dagblaðið Times sagði Vito Franco að hann hefði byrjað að leita ummerkja sjúk- dóma í listaverkum fyrir um tveim- ur árum og sagðist horfa á listaverk frá öðru sjónarhorni en sérfræð- ingar í listum, líkt og stærðfræðing- ur sem hlustaði á tónlist á annan hátt en tónlistargagnrýnandi. Að eigin sögn hefur Vito greint um eitthundrað listaverk, frá eg- ypskum skúlptúrverkum til mál- verka samtímans, en áhersla hans hefur þó beinst að verkum þeirra sem teljast til gömlu meistaranna. Niðurstaða Vitos er sú að það séu ekki einungis aðalsmenn í mál- verkum sem sýni merki um sjúk- dóma heldur einnig María mey, englar og hetjur úr goðsögnum, eða í að minnsta fyrirsætur lista- mannanna í þeim tilvikum. Hormónar og áttfætlur Vito Franco telur sig hafa fund- ið teikn um sjúkdóma í fleiri verk- um gömlu meistaranna og tekur sem dæmi verk Diegos Velázqu- ez, Las Meninas. Málverkið sýnir Margaritu Theresu, fimm ára dótt- ur Filipusar IV Spánarkonungs, þar sem hún er umkringd fylgdar- liði sínu við hirðina. Að mati Fran- cos virðist sem Margarita þjáist af Albright-heilkenni, „erfðatengd- um sjúkdómi sem hefur í för með sér bráðan kynþroska, lágan vöxt, beinsjúkdóm og hormónavanda- mál“. Annað málverk sem Franco nefnir til sögunnar er Portrait of a Young Man eftir Sandro Bott- icelli. Vito Franco segir að glæsi- leiki fyrirsætunnar sé „nánast kvenlegur“ vegna óeðlilegra fingra, „köngullóar fingra“ sem séu merki um sjúkdóm sem kenndur er við áttfætlur. Sá sjúkdómur mun vera tengdur Marfan-heilkenni, erfða- fræðilegum ágalla sem sé einnig greinilegur í verkinu La Madonna del Collo Lungo eftir Parmigiano, en heiti þess skírskotar til langs svanaháls Madonnunnar; Mad- onnan með langa hálsinn. Þeir sem þjást af Marfan-heilkenni eru alla jafna óeðlilega hávaxnir og grannir með hlutfallslega langa útlimi. Nýrnasteinar Michelangelos Veikindi meistara Michelange- los, sem Vito Franco greinir sem nýrnasteina, eru talin sjást í verki Rafaels Scuola di Atene, eða Skóli Aþenu. Þar situr gríski heimspek- ingurinn Herakleitus vinstra meg- in við miðju, en fyrirmynd hans var Michelangelo. Hné Michelang- elos eru sýnd undarlega þrútin og hnúskótt. Það skal tekið fram að hann mun hafa kvartað í bréfum yfir nýrnaverkjum og þvagblöðru- vandamálum, svo Vito Franco hefur ekki þurft að leita langt yfir skammt við greiningu sína. Hvað varðar Monu Lisu Leonar- dos mun bros hennar væntanlega áfram vekja spurningar og vanga- veltur. Brosir hún með sjálfri sér? Er henni hugsað til heimullegs elskhuga? Eða má rekja svipbrigð- in til uppsöfnunar fitusýru í augn- króknum og of hás kólesteróls? kolbeinn@dv.is 46 FÖSTUDAGUR 5. febrúar 2010 HELGARBLAÐ Bros Monu Lisu hefur bæði heillað og valdið vangaveltum. Lærðir menn hafa greint það og ástæður þess og leikir hafa brotið heilann um hvað býr að baki því. Ítalskur vísindamaður telur sig hafa fundið skýr- ingu á þessu dularfyllsta brosi listasögunnar. BROS MONU LISU Fjöldi lærðra manna hefur reynt að varpa ljósi á ólíka túlkun fólks á brosinu dularfulla og hefur meðal annars vís- að í vísindakenningar um sjón mannsins. Las Meninas Margarita þjáðist af Albright-heilkenni að mati Vitos Franco. MÁLVERK DIEGO VELÁZQUEZ Konan með dularfulla brosið Mona Lisa hefur verið mörgum ráðgáta. MÁLVERK LEONARDO DA VINCI Portrait of a Young Man Fyrirsætan þjáðist af erfðatengdum sjúkdómi. MÁLVERK SANDRO BOTTICELLI La Madonna del Collo Lungo Langur háls er rakinn til Marfan-heilkennis. ÁLVERK PARMIGIANO Michelangelo sem Herakleitus fyrir miðju á Scuola di Atene Hnúskótt hné sögð merki um nýrnasteina. MÁLVERK RAFAEL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.