Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2010, Page 54

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2010, Page 54
UMSJÓN: INDÍANA ÁSA HREINSDÓTTIR, indiana@dv.is FRÍSKAÐU ÞIG VIÐ! Lítil skref gera kraftaverk Reyndu að huga að heils- unni á hverj- um degi. Farðu í allsherjar læknisskoðun Fáðu að vita hvað má betur fara og einbeittu þér að komast í al- hliða gott form. Slappaðu af Nokkrar mínútur af hugleiðslu, jóga eða bara teygjum gefa þér nauðsynlega afslöppun eftir erf- iðan dag. Stattu bein Horfðu á þig í stórum spegli og skoðaðu líkamsbeit- inguna. Réttu úr þér! Mundu eftir morgun- matnum Byrjaðu hvern dag á nær- ingarríkum morgunverði. Hafragraut- ur er hollur valkostur. Taktu vítamín Fáðu upplýsingar hjá lækni um það hvaða vítamín þig vantar. Haltu þér í formi Gerðu reglubundna líkamsrækt að lífsstíl. Með hálftímapúli á hverjum degi kemstu í flott form. KYNLÍF LÉTTIR KARLMENN Hinn þekkti læknir Dr. Oz segir kynlíf grenna karlmenn. Ekki vegna þess að ástarleikur brenni kalóríum, en Oz segir flesta einungis brenna 25 kaloríum í rúminu eða því sem samsvari minna en hálfri brauðsneið, held- ur vegna þess að kynlíf losi um hormón sem láti okkur líða sem við séum elskuð og södd. Enn fremur, segir Dr. Oz, bætir betra líkamsástand kynlífið. „Marg- ir of þungir karlmenn safna fitu í kringum kynfæri sín sem gerir það að verkum að lengd limsins styttist. Þegar þeir grennast hverf- ur fitan og þeir fá sentimetrana sína til baka,“ segir læknirinn sem er vikulegur gestur hjá spjall- þáttadrottningunni Opruh. Rut Ingólfsdóttir nemi í grafískri hönnun tekur skemmtilegar myndir af sjálfri sér. Rut hræðist ekki nektina og bregður sér í allra kvikinda líki þegar hún situr fyrir á eigin mynd- um. Rut segir sjálfsmyndina ævagamalt listform sem fólk hætti til að líta niður á. Hins veg- ar megi ekki gleymast að margir af hinum gömlu meisturum gerðu af sér sjálfsmyndir. Rut segist stefna að því að nota fyrirsætur í framtíðinni en þangað til æfi hún sig á sjálfir sér. 46 FÖSTUDAGUR 5. febrúar 2010 HELDUR MAKINN FRAM HJÁ? Fyrirtæki bandarísks njósnara sem sérhæfir sig í að fylgjast með ótryggum mökum, segir óvenjulegan fjölda SMS-skilaboða geta verið merki um framhjáhald maka. Önn- ur merki séu þau að síminn sé alltaf í vasa hans og að hann yfirgefi herbergið til að svara bæði SMS-um og símtölum sem jafnvel berast á hinum furðulegustu tímum. Önnur merki séu að makinn sé sífellt þreyttur, hann vinni lengi fram eftir og að hann sýni þér minni áhuga en vanalega. „Ég byrjaði að taka sjálfsmyndir því ég vildi hreinlega æfa mig og þar sem ég er mikið ein heima með strákinn minn þá er best að nýta tímann vel. Ef mig langar allt í einu að mynda gefst sjald- an tími til að finna módel,“ segir Rut Ingólfsdóttir, íslenskufræðingur og nemi í grafískri hönnun í Listaháskóla Íslands, en ljósmyndir Rutar hafa vak- ið verðskuldaða athygli. Rut hefur allt- af haft mikinn áhuga á ljósmyndum og er ávallt með myndavélina á sér en á mörgum mynda sinna situr hún sjálf fyrir auk þess sem hún vinnur mynd- irnar sjálf. Hún lítur þó ekki á sig sem sjálfsmyndarlistamann og vildi helst nota aðrar fyrirsætur. Vildi hafa módel „Kosturinn við að hafa myndað sjálfan sig felst einna helst í því að geta gefið persónulegri ráðleggingar þegar mað- ur síðan myndar aðrar manneskjur. Auðvitað stefni ég á að vera með mód- el fyrir þau verk sem mig langar til að búa til og ætla að koma mér upp lista af módelum sem ég get þá hóað í þeg- ar ég vil mynda. Í sjálfu sér lít ég ekki á allar myndir af mér sem beinlínis sjálfsmyndir - þær eru einhvern veg- inn mismikið sjálfsmyndir en samt þá reyni ég alltaf að vera trú sjálfri mér. Auðvitað kemur persónuleiki alltaf í gegn, enda tel ég að Oscar Wild hafi haft rétt fyrir sér þegar hann sagði „Every portrait that is paint- ed with feel- ing is a portrait of the artist, not of the sitt- er“. Þannig að í raun vil ég að persónuleg einkenni komi fram hvort sem ég er fyr- ir framan eða aftan vélina.“ Hræðist ekki nekt Aðspurð segir hún að marg- ir líti niður sjálfsmyndina sem listform. „Fólk á það til að gleyma því að sjálfs- myndin er ekki bara „myndin sem þú tókst af þér í partíinu um daginn og notaðir síðan sem facebook prófílmynd“ - heldur einnig gamalt listform. Sjálfsmyndin hefur alltaf ver- ið til staðar, ekki má gleyma að margir hinna gömlu meist- ara gerðu af sér sjálfsmyndir,“ segir Rut sem bregður sér í allra kvikinda líki þegar hún er í þeim gírnum og getur birst sem undurfögur kona, árásargjarn töffari eða ráðvilltur úlfur. Þar að auki hræðist hún ekki nektina. „Að mínu mati er líkaminn fallegt fyrirbæri og mér finnst fallegt hvernig ljós fellur á bert hold og oft er það bara þannig að föt trufla flæði myndarinnar.“ Fikt ekki hættulegt Þegar hún er beðin um ráð handa fólki sem er að stíga sín fyrstu skref með myndavélina segir hún um að gera að prófa sig áfram. „Ef þú veist ekki í hvaða átt þú vilt fara þá er gott að skoða annarra manna myndir, finna þannig hvað heillar þig og vera síðan heiðarlegur í því hvernig þú vilt koma frá þér því sem þú vilt sýna, hvað þú vilt skapa, hvað þú vilt segja. Svo er um að gera að vera ekki feiminn við að prófa sig áfram - enda ekkert hættulegt sem getur gerst, það er alltaf einhver sem þolir ekki verkin þín, en gerir það eitthvað til í raun og veru?“ Rut verður með sýningu í Populus Tremula á Akureyri í byrjun apríl en hægt er að skoða fleiri myndir á www. flickr.com/photos/ringolfs. indiana@dv.is ÆFIR SIG Á sjálfri sér Rauðhetta og úlfurinn „Tveir vinir mínir skoruðu á nokkrar vinkonur sínar að taka svona tvífarasjálfsmynd. Ég hafði aldrei gert slíkt áður og ákvað því að hafa mína bara nógu klikkaða. Það tókst með hjálp frá Söru Ross myndlistar- manni sem smellti af fyrir mig.“ MYNDIR RUT INGÓLFSDÓTTIR Flott módel Rut vildi helst nota aðrar fyrirsætur en þar sem hún æfir sig á sjálfri sér er eins gott að hún myndast vel. Ógnvænleg „Þetta voru nú bara fíflalæti á eftir annarri myndatöku, ég hálfhræddi sjálfa mig með þessari mynd og fannst það óborganlega fyndið.“ Tvískipt eðli Rut tók myndina fyrir ljósmyndasamkeppni en þemað var ninja eða sjóræningi. „Ég vildi ekki velja á milli og gerði mig að hálfri ninju og hálfum sjóræningja og, já, þetta er ein mynd en ekki tvær photoshoppaðar saman.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.