Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2010, Side 59

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2010, Side 59
5. febrúar 2010 FÖSTUDAGUR 59 Pústþjónusta, ísetningar á dempurum og bremsuklossum Dugguvogi 21, Sími 588-2555 Tveir risaleikir fara fram í enska boltanum um helgina. Stórleikur- inn er á sunnudaginn þegar Lund- únaliðin í toppbaráttunni, Chelsea og Arsenal, mætast á Brúnni en í hádeginu á laugardaginn er Bítla- borgarslagur Liverpool og Everton sem fer í þetta skiptið fram á heima- velli þeirra rauðklæddu. Arsenal verður í það minnsta að gera jafn- tefli við Chelsea því tap gæti þýtt að liðið kveðji titilbaráttuna enn eitt árið. Liverpool verður líka að vinna Everton til að halda í við liðin í kringum sig í baráttunni um Evr- ópusæti. Ekki bara meistaradeild- arsæti, heldur sæti í Evrópukeppni yfir höfuð. Titill úr augsýn hjá Arsenal? Klukkan sex á sunnudaginn gæti titilbaráttu Arsenal verið lokið þetta tímabilið. Arsenal er sem stendur í þriðja sæti úrvalsdeildarinnar, fjór- um stigum á eftir Manchester Unit- ed. Chelsea er síðan á toppnum, sex stigum á undan Arsenal. Manchest- er á leik gegn fallkandídötum Ports- mouth á laugardaginn þar sem sig- ur ætti að vera meira en formsatriði fyrir meistarana. Tap hjá Liverpool gegn Chelsea myndi þá þýða að lið- ið væri sjö stig- um á eftir Man. United þó vissu- lega væri nóg eftir af deild- inni. Arsenal hef- ur aðeins hikst- að að und- anförnu, gert jafntefli og tapað síðastu tveimur leikj- um sínum, alls aðeins inn- byrt átta stig af fimmtán mögulegum í fimm síð- ustu leikjum. Það er þó Arsenal- mönnum til happs að Hull stöðvaði aðeins Chelsea-maskínuna í vik- unni með jafntefli á KC-vellinum. Fyrir það hafði Chelsea unnið fjóra síðustu leiki sína og litið afar sann- færandi út. Chelsea-menn eiga líka í varn- arvandræðum þessa dagana eins og Carlo Ancelotti, þjálfari liðsins, viðurkenndi eftir jafnteflið gegn Hull. „Við fáum á okkur of mikið af mörkum úr föstum leikatriðum. Öll lið á Englandi eru með að minnsta kosti einn stóran og sterkan skalla- mann og eru öll sterk í föstum leika- triðum. Við skorum nóg en fáum of mikið á okkur finnst mér,“ segir Ancelotti. Hressandi borgarslagur Allt stefnir í skemmtilegan borgar- slag í Liverpool á laugardaginn þeg- ar heimamenn mæta erkifjendun- um í Everton. Bæði liðin hafa verið á góðu skriði undanfarið, Liverpool með þrjá sigurleiki og tvö jafntefli í síðustu fimm leikjum á meðan Ev- erton hefur unnið síðustu þrjá leiki sína og innbyrt 13 stig af 15 mögu- legum í síðustu fimm leikjum. Það hefur verði allt annað að sjá Everton síðustu vikur og getur liðið enn eitt tímabilið kennt slakri byrjun um lokaniðurstöðuna þegar talið verð- ur í vor. Sigur hjálpar Everton upp töfl- una og gefur því veika von um baráttu um Evrópusæti. Gífurlega mikilvægt er þó fyrir Liverpool að vinna þar sem baráttan um fjórða og fimmta sætið er gífurlega hörð í ár. Tottenham er í fjórða sætinu stigi á undan Liverpool sem rígheldur í sæti Í Evrópudeildinni eins og stað- an er. Manchester City er þó búið að jafna Liverpool að stigum og á tvo leiki til góða. Stigi á eftir kemur svo Aston Villa en það mætir Totten- ham um helgina og gætu góð úrslit í þeim leik hjálpað Liverpool mikið í sinni baráttu. tomas@dv.is Tveir stórleikir eru á dagskrá í enska boltanum um helgina. Chelsea og Arsenal mætast í Lundúnaslag þar sem Arsenal verður einfaldlega að vinna. Það stefnir allt í skemmtilegan borgarslag í Liverpool þar sem bæði heimamenn og Everton hafa verið að spila betur að undanförnu. KVEÐUR ARSENAL TITILBARÁTTUNA? Mikilvægur leikur Það er hætt við að von um titil renni Arsenal úr greipum tapi liðið gegn Chelsea um helgina. Þurfa einhverju að fagna Liverpool er í harðri baráttu um Evrópusæti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.