Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2010, Síða 72

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2010, Síða 72
n Spennan um það hvaða lag verður framlag Íslands í Eurovision-söngva- keppninni magnast en úrslitakvöld- ið verður á laugardag. Í tilefni þess er Hera Björk Þórhallsdóttir, sem singur lagið Je Ne Sais Quoi, í viðtali við Eurovision-vefsíðuna ESC Today þar sem farið er um víðan völl. Hera er meðal annars spurð út í hvað- an nafnið á laginu er komið. Hún segir að hún og Örlygur Smári, sem samdi lagið með henni, hafi verið að horfa á Britains Got Talent og þar hafi franski frasinn verið notaður óspart. Ákváðu þau að grípa nafnið og eftir það varð ekki aftur snúið. Hera segir að þó lagið sé fjörugt og líflegt sé það í raun óður til ástarinnar og lýsi því þegar fólk verður ást- fangið við fyrstu sýn. Davíð þriðji! FRÉTTASKOT 512 70 70 DV BORGAR 2.500 KRÓNUR FYRIR FRÉTTASKOT SEM LEIÐIR TIL FRÉTTAR. FYRIR FRÉTTASKOT SEM VERÐUR AÐALFRÉTT Á FORSÍÐU GREIÐAST 25.000 KRÓNUR. FYRIR BESTA FRÉTTASKOT VIKUNNAR GREIÐAST ALLT AÐ 50.000 KRÓNUR. ALLS ERU GREIDDAR 100.000 KRÓNUR FYRIR BESTA FRÉTTASKOT HVERS MÁNAÐAR. „Þetta er tækifæri sem ég er þakk- látur fyrir og er náttúrulega ómetan- legt fyrir mig. Þegar ég er spurður út í þetta svara ég oftast í gríni: Þetta er lítið skref fyrir mannkynið en stórt fyrir mig,“ segir Geir Ólafsson stór- söngvari sem heldur brátt á vit æv- intýranna í hinni stóru Ameríku og heldur tónleika 12. mars á stað sem heitir The Baked Potato. Meðal und- irleikara hjá Geir verður Don Randi, sem er píanisti Nancy Sinatra og einn allra þekktasti djasspíanisti heims. Randi hefur spilað með fjölmörg- um heimsþekktum tónlistarmönn- um eins og Abba, Bette Midler, Di- önu Ross, Elvis Presley, Ike og Tinu Turner, Neil Young, The Jackson 5 og Tom Jones svo einhverjir séu nefndir. „Hann er stór kall og hefur hóað í nokkra aðra sem eru frábærir tónlist- armenn. Ég verð í viku þarna úti og spila þarna á þessum stað 12. mars. Staðurinn er líka rosalega frægur,“ segir Geir en staðurinn býður upp á 20 mismunandi tegundir af bökuð- um kartöflum. Clint Eastwood er tíð- ur gestur á staðnum og aldrei að vita nema hann berji Geir augum. Næst er hægt að sjá Geir Ólafs á Kringlu- kránni um helgina ásamt Agli Ól- afssyni, Helgu Möller og Óttari Felix Haukssyni. „Við lofum góðu stuði,“ segir Geir hress og kátur enda á leið- inni í sólina. benni@dv.is SÓTTU HUGMYNDINA TIL BRETLANDS ÚTSÖLUNNI LÝKUR SUNNUDAGINN 7. FEBRÚAR 60-70% AF ÖLLUM ULLARMOTTUM OG VIÐ MEINUM ÖLLUM ULLARMOTTUM! © I LV A Í s la n d 2 0 10 ILVA Korputorgi, Blikastaðavegi 2-8, 112 Reykjavík s: 522 4500 www.ILVA.is laugardagur 10-18 sunnudagur 12-18 mánudaga - föstudaga 11-19 ILVA kaffi: laugardaga 10-17 sunnudaga 12-17 mánudaga-föstudaga 11-18 sendum um allt land Bjóðum uppá vaxtalaust lán til 6 mánaða Smurt heilhveitihorn og kaffi 590,- kaffi Geir Ólafsson á leið til Los Angeles: SPILAR MEÐ SVEIT STÓRSTJARNA n Þrátt fyrir að mikið hafi verið böl- sótast út í ráðningu Davíðs Odds- sonar á ritstjórastól í Hádegismó- um, þaðan sem Morgunblaðið er gefið út, má segja að hann sé stað- fastur í helstu lykiltölum. Vorið 2003 leiddi Davíð Sjálfstæðisflokkinn í síðasta skipti í þingkosningum. Þá greiddu 33 prósent kjósenda Sjálf- stæðisflokki Davíðs atkvæði sitt, eða þriðjungur. Síðan er langur tími lið- inn en þetta fylgi meðal almennings virðist loða dálítið við Davíð. Sú er nefnilega reyndin að 32,3 prósent landsmanna segj- ast lesa Morg- unblað Davíðs, þrátt fyrir mik- ið fall í lestri, eða um það bil þriðjungur. Sumt breytist því ekki hjá mann- inum sem bjó til heitið „staðfast- ar þjóðir“. STAÐFASTUR RITSTJÓRI n Sjónvarpsmaðurinn Sölvi Tryggvason skellti sér ásamt hundruðum annarra Íslendinga til Austurríkis til að styðja strák- ana okkar í handboltan- um. Sölvi fór síðan eftir bronsleikinn út á lífið með strákunum og sló í gegn. Strákarnir okkar fengu sér í aðra tána á skemmtistað í Aust- urríki ásamt liðs- mönnum Frakka og skemmtu sér vel. Þar voru einnig aðrir blaðamenn, meðal annars Adolf Ingi en athygli vakti að hann fór ekki úr úlpunni – inni á staðnum. SÖLVI Á EM Á leið í sól og sumar Geir Ólafsson mun spila á Bökuðu kartöflunni 12. mars.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.