Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2010, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2010, Síða 20
20 föstudagur 18. júní 2010 fréttir Lögfræðingar, sem DV hefur haft samband við, eru sammála um að dómur Hæstaréttar í vikunni um verðbindingu krónulána við erlenda gjaldmiðla snerti aðeins gengisvið- miðun lánasamninga en hrófli í engu við vaxtaákvæðum slíkra samninga. Þannig sé óheimilt að mæta áföllum, sem lánastofnanir telja sig verða fyrir vegna hæstaréttardómsins, með nýj- um tegundum verðbóta eða hækkun vaxta. Sigurður G. Guðjónsson lögfræð- ingur telur að samkvæmt dómsins hljóðan haldi þeir sem tóku óverð- tryggð lán með gengisviðmiðun sömu vaxtakjörum og er að finna í upphaflegum lánasamningum. Þannig megi ætla að þegar búið verði að gera upp gengishallann gegn skuldurunum verði þeir með hag- stæðari vexti en þeir sem tóku verð- tryggð íslensk lán. „Það er vitanlega hægt að setja lög í kjölfar hæstaréttardómsins um skuldauppgjör milli skuldara annars vegar og fjármögnunarfyrirtækjanna og bankanna hins vegar ef það þyk- ir sanngjarnt og almannaþörf kallar á slíkt.“ Þrýstir á almennar aðgerðir Sigurður telur að semja verði um við- mið; mögulegt sé til dæmis að miða uppgjör skuldara og lánveitenda í kjölfar dóma Hæstaréttar við vísitöl- ur og gengi í árslok 2007. Hann vísar í þessu sambandi til laga um samn- ingsgerð og fleira frá árinu 1936. Þar segir meðal annars í 36. grein, að samningi megi víkja til hliðar í heild eða að hluta, eða breyta, ef það yrði talið ósanngjarnt eða andstætt góðri viðskiptavenju að bera samninginn fyrir sig. Tekið er fram í lögunum að líta verði í því sambandi til efnis samnings, stöðu samningsaðila og atvika við samningagerðina og atvika sem síðar geta komið til. Sú röksemd hefur ver- ið sett fram að ósann- gjarnt sé að þeir sem tóku bíla- eða húsnæðislán á sínum tíma með gengis- áhættu, en lægri vöxtum en bjóðast hér á landi, fái nú gengisáhættuna niðurfellda en haldi jafn- framt þeim lágu vöxt- um sem gengistryggðu lánunum fylgdu. Á móti er bent á að lög séu lög; Hæstiréttur hafi nú dæmt gengisviðmiðunina ólög- mæta en hafi ekkert um vexti lánanna að segja. Byrðar deilist á fleiri Eins og frá er greint á öðr- um stað í opnunni telur Steingrím- ur J. Sigfússon fjármálaráðherra að dómurinn þýði að lánin séu innlend eftir að gengisviðmiðunin hafi ver- ið dæmd ólögmæt. „Þá er spurning hvaða lánskjör og vexti eðlilegast er að miða við, úr því hin eru ólögmæt,“ segir hann og bætir við að í vaxtalögum sé leið- sögn þess efnis að óverð- tryggð eða verðtryggð lán skuli bera hagstæðustu vexti Seðlabankans. Beint liggi við að skoða hvort sú leiðsögn sé fullnægjandi. Sigurður G. Guðjóns- son bendir á að dómur Hæstaréttar knýi stjórn- völd til að leita almennra úrræða og sáttar á breið- um grundvelli. „Við blas- ir að þeir sem ekki vildu taka gengisáhættu í heim- ilisrekstri sínum á sín- um tíma bera einnig mik- inn skaða, meðal annars með mikilli verðbólgu sem hlaust af hruni krónunnar. Þetta mætti orða sem svo að með dómi Hæstaréttar hafi verðbólga verið strikuð út úr bókhaldi þeirra sem tóku gengisáhættu í heimilisrekstri sínum. Þeir einir eigi að bera verðbólgutjónið sem tóku verðtryggð innlend lán.“ Höfuðstóll færður niður Í þessu sambandi er á það að líta að um leið og Hæstiréttur kvað upp dóm um gengisbundnu lánin kvað hann einnig upp annan dóm í máli NBI-bankans gegn Þráni ehf. Bank- inn taldi að veðsettar eignir nægðu ekki lengur fyrir skuldum sem höfðu hækkað verulega á lánstím- anum með falli íslensku krónunn- ar. Krafðist því bankinn kyrrsetning- ar eigna og gjaldþrotaskipta. Í sem skemmstu máli höfnuðu dómstólar beiðni bankans um gjaldþrotaskipti á þeim grundvelli að ekki fengist rétt mynd af fjárhag skuldara mið- að við að upprunalegur höfuðstóll lánsins hefði verið um 358 milljón- ir króna. Krafa NBI-banka nam hins vegar 865 milljónum króna í höfuð- stól auk vaxta. Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem Hæstiréttur Íslands staðfesti, er til þess tekið að núgild- andi vaxtalögum hafi ekki verið ætl- að að auka heimildir til að tengja lán við erlenda gjaldmiðla. „Lögun- um var þvert á móti ætlað að útiloka DV hefur áþreifanleg dæmi um mál sem gætu nú tekið nýja stefnu í kjölfar dóma Hæstaréttar gegn gengisbindingu lána. Í öðru tilvikinu er um að ræða 10 milljóna króna myntkörfulán með fast- eignaveði og einum gjalddaga. Lán- ið var tekið nokkrum misserum fyrir bankahrunið og fall krónunnar. Höfuð- stóll þess stendur nú í um 23 milljón- um króna. Viðkomandi banki hefur einhliða gjaldfellt lánið þar sem veð skuldarans duga hvergi fyrir þeirri upp- hæð. Bankinn hefur lýst sig reiðubúinn til þess að mæta skuldaranum á miðri leið, það er, að hann greiði um 17 millj- ónir króna. Hitt dæmið varðar 1,3 milljóna króna bílalán með gengisviðmiðun. Lántakandi hefur nú greitt um 600 þús- und krónur af láninu. Höfuðstóll þess stendur eftir sem áður í 1,9 milljónum króna. Samkvæmt dómum Hæstaréttar ber að færa höfuðstól fyrra lánsins niður í 10 milljónir króna. Við blasir að láveitand- inn og skuldarinn þurfa því að endur- meta forsendur og hefja skuldauppgjör á nýjum forsendum. Í síðara tilvikinu gæti skuldarinn bent lánveitandanum á að nú þegar hafi verið greiddar 600 þúsund krón- ur af 1,3 milljóna króna höfuðstól. Eft- irstöðvar höfuðstóls lánsins séu því um 700 þúsund krónur, en ekki 1,9 milljónir króna og miða verði skuldauppgjör við þá upphæð. Fikt með vextina óheimilt Stjórnvöld eiga ekki hægt um vik að hækka vexti á lánum þótt gengisviðmiðun þessara sömu lána hafi nú verið dæmd ólögleg. Lög- fræðingar eru almennt þeirrar skoðunar að lög heimili ekki fikt með vexti á gerðum samningum þó svo að gengisviðmið falli úr gildi. Lögmaður líkir dómi Hæstaréttar við að verðbólgu síðari ára hafi verið létt af þeim sem tóku gengislán. jóHann Hauksson blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Ekkert fikt Marinó G. Njálsson hjá Hagsmunasamtökum heimilanna telur fráleitt að unnt sé að hrófla við vöxtum þótt gengisviðmið hafi verið dæmd ólögmæt. Dæmi um gengisbundin lán einstaklinga og heimila til bíla- eða íbúðakaupa eru margvísleg. Staðan væri allt önnur ef allir lán- takendur hefðu fengið lánin afhent í erlendum gjaldmiðli. Höfuðstóll færður niður Bílalánin umdeildu Ekkert hefði verið ólöglegt við að afhenda lánin í viðkomandi mynt eða myntum. Talsmann Samtaka lánþega grunar að stjórnvöld ætli að setja lög: „Búsáhaldabyltingin eins og skírnarveisla“ „Þessi hluti lánanna er ólöglegur og þar af leiðandi fellur gengistrygging- in á brott. Annað stendur eftir. Mér finnst það alveg skýrt,“ segir Guð- mundur Andri Skúlason, talsmað- ur Samtaka lánþega, um dóminn sem féll á miðvikudag. Hann segist ánægður með niðurstöðu dómsins. Fyrstu viðbrögð stjórnvalda við dómnum voru að lýsa því yfir að ríkisstjórnin myndi á næstu dög- um skýra frá því hvaða ákvarðana yrði gripið til vegna dómsins „… að höfðu víðtæku samráði um málið.“ Guðmundur segir varasamt ef stjórnvöld ætli sér að setja lög á fólk hvað þetta varðar. „Í fyrsta lagi finnst mér þetta koma skýrt fram í dómnum og svo bendi ég á annan dóm Hæsta- réttar þar sem fram kom að óheim- ilt væri að koma með verðtryggingu í staðinn fyrir gengistryggingu. Ef fjár- mögnunarfyrirtækin eða stjórnvöld vilja hafa þetta eitthvað öðruvísi þá þurfa þau einfaldlega að sækja slíkt fyrir dómstólum,“ segir Guðmundur. Hann hefur undanfarin misseri barist af miklum krafti fyrir réttlæti í málefnum lántakenda. „Við erum búin að bíða í tvö eða þrjú ár eftir því að stjórnvöld standi með lánþegum og almenningi en þau hafa algjör- lega neitað því. Nú hrópa menn upp fyrir sig og segjast verða að bregðast við því að dómurinn féll gegn fyrir- tækjunum. Það er einfaldlega ekki í boði,“ segir hann en segist gruna að stjórnvöld ætli að reyna að hlutast til um niðurstöðuna. „Mér finnst það skína í gegn og menn tala um ein- hverja lagasetningu sem sé nánast tilbúin,“ segir hann og heldur áfram:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.